Skinfaxi - 01.05.1990, Side 13
LANDSMÓTSSPÁ
Gunnarsson,UMSB,inunu verðaerfiðir
í horn að taka. Svo gæti farið að það
þurfi að hlaupa undir 15:15 mín til að fá
stig.
Tvö einvígi í hástökki
Einn af hápunktum Landsmótsins gæti
orðið einvígi Þórdísar Gísladóttur og
Þóru Einarsdóttur í hástökki kvenna.
Þórdís hefur nú loks fengið verðugan
keppinaut og mun þurfa að hafa fyrir
því að sigra Þóru. Ég hef trú á að henni
takist það vegna þeirrar reynslu sem
hún hefur. Keppnin um þriðja sætið
verður einnig hörð, en þar eru margar
stúlkur svipaðar. Gunnlaugur
Grettisson og Unnar Vilhjálmsson munu
heyja einvígi í hástökki karla. Ef
Gunnlaugi tekst að halda ró sinni mun
hann sigra, en Unnar er erfiður
andstæðingur.
Þórdís Gísladóttir Vminn/Pétur
Kastarar á
heimsmælikvarða
Á Landsmótinu á Húsavík 1987 var
Einar Vilhjálmsson í sviðsljósinu, enda
setti hann Norðurlandamet í spjótkasti.
Þá var spumingin einungis sú hversu
langt hann myndi kasta. Nú bregður
hins vegar svo við að óvíst er hver
verður sigurvegari í spjótkasti karla.
Sigurður Matthíasson er í góðu formi
um þessar mundir og mun vafalaust
freista þess að taka sigurinn af Einari.
íris Grönfeit Vminn/Pétur
Það verður ekki auðvelt því Einar er
einkar laginn við að safna sér saman og
ná góðum árangri undir pressu. Vésteinn
Hafsteinsson ætti að vera öruggur
sigurvegari í kringlukasti og kasta yfir
60 nt. Pétur Guðmundsson er enn
öruggari sigurvegari í kúluvarpi.
Spennan snýst um það hvort hann nái að
kasta yfir 20 m. Hann hefur komið vel
út á vormótunum og virðist í feiknagóðri
æfingu. Ég spái kringlukösturunum
Eggerti Bogasyni og Vésteini næstu
sætunum, þó svo Andrés Guðmundsson
og Helgi Þór Helgason eigi einnig að
hafa góða möguleika á því að komast í
verðlaunasæti.
Unnar Garöarsson
Þrefalt hjá Guðrúnu
Arnardóttur?
Guðrún Arnardóttir er líkleg til að sigra
í 100 m, 200 m og 100 m grindahlaupi.
Því ntiður er ólíklegt að Svanhildur
Kristjónsdóttir, UMSK, geti verið með
vegna meiðsla. Hún hefur verið með
eindæmum óheppin hvað meiðsli varðar
undanfarin ár, en íslandsmet hennar í
100 m og 200 m eru frá árinu 1985.
Guðrún kom á óvart seinasta ár með
góðum árangri í 100 m grindahlaupi.
Gaman verður að sjá hvort framhald
verðiþará. Hin 15 áraogsnöggaHeiða
B. Bjarnadóttir gæti veitt Guðrúnu
keppni í100 m.
Guörún Ingólfsdóttir vminn/Pétur
Fríða Rún á heimavelli
Það síefnir allt í mjög harða keppni í
millivegalengdum kvenna milli Fríðu
Rúnar Þórðardóttur og Margrétar
Brynjólfsdóttur. Þær hafa báðar æft
mjög vel og eru líklegar til að gefa
hvergi eftir. Fríða Rún er gjörn á að
leiða hlaup og setja strax upp mikinn
hraða. Henni ætti að takast að halda út
í 800 m á heimavelli og sigra. Margrét
hefur hins vegar betri langhlaupsgrunn
og hef ég meiri trú á henni á lengri
vegalengdinni.
Dalvíkingur sigurvegari í
langstökki kvenna?
Snjólaug Vilhelmsdóttir er bráðefnileg
Skinfaxi
13