Skinfaxi - 01.05.1990, Side 16
LANDSMÓTSSPÁ
Loks komið
að UMSK?
Noröur- Þingeyski blakmaöurinn, Þróttarinn
Gunnar Árnason, sem var landsliösmaöur í blaki frá
1974 -1983 spáir í blakúrslit á Landsmóti.
Níu lið taka þátt í blakkeppni
Landsmótsins að þessu sinni og hafa
aldrei verið fleiri. Þeim er skipt í tvo
riðla.
A-riðill: HSK, HSÞ, UNÞ, UMSS og
UDN.
B-riðill: UMSK, UÍA, UMFK og
UMSE.
Þrjú þessara liða eru skipuð
leikmönnum sem tóku þátt í keppni 1.
deildar með félagsliðum sínum
síðastliðinn vetur þ. e. UMSK, UÍA og
HSK og verða þau að teljast líklegust til
að hafna í þremur efstu sætunum.
Þingeyingar og Eyfirðingar hafa nokkuð
langa blakhefð og eru líklegastir til að
berjast um 4.-6. sætið, en UMSK, UMSS
og UDN eru lítt þekkt og því má ætla að
þeim reynist erfitt að ná einu af sex efstu
sætunum. Rétt er þó að minna á að
Keflvíkingar töpuðu naumlega leik um
bronsið á síðasta Landsmóti.
Á Landsmótunum í Keflavík og á
Húsavík sigraði HSK í
stórskemmtilegum úrslitaleikjum við
UMSK, en að þessu sinni tel ég að
UMSK sigri, þar sem ungu mennirnir
þar eru nú reynslunni ríkari og hafa á að
skipa jöfnu og sterku liði. Helstu
keppinautar þeirra í riðlinum verða UIA,
en búast má við að Keflvíkingar og
Eyfirðingar verði þeim auðveld bráð að
þessu sinni.
Lið Keflvíkinga verður ekki eins sterkt
og á Húsavík og ég hef trú á að
Eyfirðingum takist að verða í þriðja
sæti í B-riðlinum.
HSK verður öruggur sigurvegari í A-
riðlinum, en keppnin um annað sætið
verður hörð á milli Þingeysku liðanna
og í þetta sinn tekst UNÞ að leggja
stjóra bróður að velli og leika um
bronsið.
Nýliðarnir í blakkeppni Landsmótsins,
UMSS og UDN bítast á botninum og ég
geri ráð fyrir að þátttaka Skagfirðinga í
öldungamótum undanfarin árnægi þeim
til að forðast neðsta sætið í A-riðlinum.
Samkvæmt þessu verður lokaröðin
svona: 1. UMSK 2. HSK 3. UÍA 4.
UNÞ 5. HSÞ 6. UMSE 7. UMFK 8.
UMSS 9. UDN.
Liö UMSK (Mfl. karla hjá Blakdeild HK): Aftari röö frá vinstri: Albert H. N. Valdimarsson, liösstjóri, Kristján M. Arason, Karl
Sigurösson, Steinn Einarsson, Stefán Þ. Sigurösson og Qiu Feng Rui, þjálfari. Fremri röö frá vinstri: Guöbergur E. Eyjólfsson,
Einar Þór Ásgeirsson, Vignir Hlööversson, Geir S. Hlööversson, Jón G. Axetsson og Skjöldur Vatnar Björnsson.
Á myndina vantar: Ými Bj. Arthúrsson, Stefán Sigurösson og Kristján Sveinbjörnsson. Qiu Feng Rui er farinn heim til Kína, en
landi hans Jia Chang Wen mun stjórna liöinu í sumar.
16
Skinfaxi