Skinfaxi - 01.05.1990, Page 18
LAN DSMOTSSPA
Hluti af UMSK liöinu.
Þrettán lið hafa skráð sig til keppni á
Landsmótinu, en þau eru: HSK, UMSK,
UÍA, HSB, UMSB, HSÞ, FJÖLNIR,
HSH, UDN, HVÍ, ÓÐINN-
VESTM.EYJUM., UMFN, og USVH
Ég hef átt tal við forráðamenn flestra
liðanna og eru allir nokkuð kokhraustir
ígarð sinnafélaga. Enef litiðerraunsætt
á málin, þá eru það 4-5 lið sem eru
nokkuð afgerandi og þá um leið lfklegust
til að berjast um sigurinn.
Liö UMSK
Liðið hjá UMSK samanstendur af
sundfólki úr Mosfellsbænum og
Kópavogi.
Hafþór Guðmundsson, einn af
forsvarsmönnum UMSK liðsins segir
að karlasveitin sé jafnsterk og ræður
það að líkindum úrslitum um árangur
liðsins í keppninni. Geir Sverrisson,
Kristján Sigurðsson, Sverrir Sverrisson
og fleiri eru nokkuð jafnvígir á flest
sund og kemur það sér vel fyrir liðið.
Kvennaliðið er vel svo frambærilegt en
þó kannski ekki eins sterkt og karlaliðið.
Hrafnhildur Örlygsdóttir, Rakel
Reynisdóttir, Auður Sigurðardóttir og
fleiri komatil með aðnæla ístig. Öruggt
má telja að UMSK takist að manna allar
greinar og vel það. En það er fyrst og
fremst styrkur liðsheildarinnar sem
skilar liðinu í eitt af efstu sætum mótsins
í sundinu.
Lið HSK
LiðHSK er ekki sama stórveldið og það
var t.d. á landsmótinu á Akureyri árið
1981, en samt nokkuð sterkt. Að sögn
Hrafnhildar Guðmundsdóttur þjálfara,
samanstendur liðið af sundfólki frá
Þorlákshöfn, Selfossi og Hveragerði.
Frá Þorlákshöfn koma systkinin
Magnús, Bryndís og Arnar Ólafsböm.
Þau verða án vafa aðal styrkur liðsins.
Frá Hveragerði kemur meðal annars
Unnsteinn Grétarsson. Hann er ungur
að árum en ætti að geta stutt við liðið að
nokkru leyti, t. d. í boðsundunum. Ein
helsta sundkonan frá Selfossi,
Kristgerður Garðarsdóttir verður ekki
með á Landsmótinu. Af þessu sést að
styrkur liðsins byggist að mestu á
nokkrum góðum einstaklingum. Lið
HSK gæti átt í erfiðleikum með að
ntanna allar greinar og eins að fylla upp
í boðsundssveitirnar, einkanlega
kvennasveitirnar. Ekki má þó gleyma
því að á mótum sem þessu er oft gripið
til þess ráðs að fá til liðs við hópinn
gamla sundmenn, sem hafa haldið sig
frá keppni, jafnvel í nokkur ár, til að
fylla í skörðin, og skal ekki vanmeta þá
ef til þeirra kasta kemur.
Þrátt fyrir mannfæðina í liði HSK spái
ég liðinu velgengni og kentur það til
með að blanda sér í toppbaráttuna.
Liö HSB
Lið Bolungavíkur hefur verið nokkuð
brokkgengt síðastliðin ár. Eldri
sundmenn hafa horfið til náms fjarri
heimaslóðum og fyrir vikið farið að
keppa fyrir önnur lið. Hannes Már
Sigurðsson og Guðmundur Reynisson
fóru á sínum tíma yfir í IA og varð þá
skarðfyrirskildi hjáBolvíkingum. Þeir
hafa nú gengið aftur í raðir HSB svo að
horfurnar eru nokkuð góðar hjá liðinu.
Jónas Pétur Aðalsteinsson þjálfari HSB
telur liðið nokkuð jafnsterkt, bæði karla
og kvennaliðið. Fyrir utan þá ofantöldu
ntá nefna sterka sundntenn, s.s.
Guðmund Arngrímsson, Ernu
Jónsdóttur, Halldóru Sveinbjörnsdóttur,
Halldóru Sigurgeirsdóttur o.fl.
Bolvíkingar hafa að öllum líkindum
nægan mannskap í allar greinar. Lið
HSB verður eitt þeirra liða sem koma til
með að keppa um sigurinn á mótinu.
Lið HSÞ
Að sögn Birkis Fanndals, þjálfara
Mývetninga, eru sundmenn HSÞ ungir
að árum, flestir 15 ára eða yngri.
Líkt og Bolvíkingar missa Þingeyingar
elsta sundfólkið til annarra félaga þegar
komiðeráframhaldsskólaaldurinn. Það
er margt efnilegt sundfólk í liði HSÞ, s.
s. Viðar Sævarsson, María Birkisdóttir,
Þórunn Harðardóttir, Ingibjörg
Gunnarsdóttir o. fl. Þingeyingar rnunu
að líkindum eiga erfitt með að manna
allar greinar. Fyrir vikið verður liðið
varla nógu sterkt til að blanda sér í
toppbaráttuna, verður einhvers staðar
nálægt miðju.
Lið UMSB
Borgfirðingar hafa mjög frambærilegu
liði á að skipa. Að sögn Óskars
Hjartarsonar, þjálfara,
eru líkur á að flestir bestu sundmenn
þeirra verði með, að undanskildri Sigríði
Dögg Auðunsdóttur og er þar skarð
fyrir skildi. Eins er ekki komið á hreint
hvort Hlynur Þór Auðunsson og
18
Skinfaxi