Skinfaxi - 01.05.1990, Side 22
G R E I N
Laugarvatn, miðstöð
almenningsíþrótta,
paradís fyrir alla
Óþrjótandi möguleikar til tómstunda
og útiveru bæöi aö vetri og sumri
íþróttir, seglbretti, bátar, golf,
tennis, kraftþjálfun, gönguskíöi,
skautar, hestar, hnit, mínígolf,
fjallgöngur, vélsleóar o. fl.
íþróttir er það fyrsta sem mörgum
dettur í hug þegar minnst er á
Laugarvatn. Þessi fallegi staöur er
umhverfisparadís þarsem allirgeta
fundið sér eitthvaö skemmtilegt aö
gera. Stundaö íþróttir, s. s. golf,
eöa hnit, leigt sér seglbretti eöa
bát, fariö í gufubaö eöa sólbaö,
skokkaö eftir skokkstígum á
bökkum Laugarvatns eöa í hlíöum
Laugarvatnsfjalls eða einfaldlega
legiö í leti og notiö þess aö vera úti
í náttúrunni.
íþróttamiðstöð íslands á Laugarvatni
rekur margskonar þjónustu allt árið um
kring. Allt bendir til að UMFÍ og ÍSÍ
muni standa sameiginlega að rekstri
Iþróttamiðstöðvarinnar og að
ríkissjóður muni sjá um uppbyggingu
íþróttamannvirkja í tengslum við hana.
A Laugarvatni er fullkomið íþróttahús
sem er mjög vel búið tækjum, annað
minna íþróttahús og innisundlaug. Þá
eru margir íþróttavellir og grasflatir til
leikja, íþrótta og útiveru. Við vatnið
eru leigðir út bátar og ýmsar gerðir af
seglbrettum. Við vatnið er líka
mínígolfvöllur og víðfrægt náttúrulegt
gufubað, sem byggt er ofan á hver.
Tekið er á móti hverskonar hópum s. s.
frá félögum, fyrirtækjum, skólum og
einnig einstaklingum sem vilja fara út
að skokka kl. 7 á morgnana, leggja svo
leið sína í sund eða gufu, spila tennis
eftir hádegi og fara í golf síðdegis.
Möguleikarnir til tómstunda eru
óþrjótandi.
Fundir og
almenningsíþróttir
íþróttamiðstöð íslands hefur það að
markmiði að allir, sama á hvaða aldri
þeir eru, geti komið og notað aðstöðu
við sitt hæfi og fengið tilsögn og fræðslu
fráhæfustu leiðbeinendum. Góð aðstaða
er til funda- og ráðstefnuhalds og geta
allt að 150 manns þingað í einu. Einn
helsti kosturinn við að halda fundi eða
ráðstefnur á Laugarvatni er að þar geta
menn hresst upp á heilasellurnar með
því að njóta útiveru og íþrótta milli
funda. Þetta er vænlegur kostur til að
ná árangri bæði á líkama og sál.
I sumar verður unnið að því að fullgera
sex holu golfvöll, ásamt stórri púttflöt,
en fullgerður verður völlurinn níu holur.
Rétt við vatnsbakkann hjá gufubaðinu
rekur Iþróttamiðstöðin einnig mínígolf
og þar er báta- og seglbrettaleiga.
A þessu ári eða því næsta, verður hafist
handa við að byggja nýja sundlaug sem
verður staðsett við hliðina á nýja
íþróttahúsinu. I framtíðinni er einnig
ráðgert að setja upp sundlaug í vatninu,
en ntikið af heitu vatni er á staðnum og
rennur það m. a. í Laugarvatn rétt við
gufubaðið.
Göngu- og skokkbrautir liggja eftir
hlíðum Laugarvatnsfjalls og bökkum
Laugarvatns. Brautirnar eru lagðar í
gegnum skógivaxið landið og eiga
eflaust eftir að verða mjög vinsælar. A
nokkrum stöðum verða æfingaflatir þat'
sem skokkarar geta tekið nokkrar
æfingar, hvílt sig, hlustað á söng
fuglanna og haldið af stað aftur.
Þeir sem hyggja á gönguferðir geta
valið um margar athyglisverðar
gönguleiðir. Tveir
almenningsíþróttavellir með mörkurn
eru stutt frá skokkbrautunum og geta
allir notfært sér þá sem þess óska.
Aðstaða fy rir afreksfólk er fyrsta flokks.
Nýtt og fullkomið íþróttahús gerir það
að verkum að betri árangur næst.
Þá verður einnig kappkostað að sinna
íþróttum fatlaðra.
22
Skinfaxi