Skinfaxi - 01.05.1990, Side 31
G R E I N
Mosfellsbær gefur
tóninn
Kristján E. Yngvason, stjórnarmaður UMFÍ skrifar
Séö heim að Laugum
Nú þegar styttist í Landsmót er ekki úr
vegi að staldra við og skoða hvað gerst
hefur frá síðasta móti sem var á Húsavík
1987. Þá er í mfnum huga merkast það
lofsverða framtak bæjarstjórnarmanna
Mosfellsbæjar að ráðast í að útbúa
fullkominn frjálsíþróttavöll með
varanlegu efni á hlaupa- og
atrennubrautum. Eg tel að hér sé um
stefnumarkandi framkvæmd að ræða
sem verður öðrum héruðum til
hvatningar, þannig að innan skamms
verði kominn í það minnsta einn slíkur
völlur í hvert hérað. Til þess að svo
megi verða þurfa sveitarfélög og
héraðssambönd að taka höndum saman
og velja stað sem verði íþróttamiðstöð
héraðsins. Víða eru þessir staðir í raun
til, en til þess að tryggja að á þá komi
varanlegt gerviefni verður að ganga frá
formlegu samkomulagi og hefja svo
markvissa uppbyggingu. Þá er fullljóst
að ríkisvaldið verður að koma
myndarlega inn í þessar framkvæmdir.
Reyndar er ljóst að ríkisvaldið mun
styðja við uppbygginguna á
Laugarvatni. Sú aðstaða kemst ígagnið
fyrir Landsmótið 1993, en væntanlega
verður lagt á hlaupabrautirfyrr, jafnvel
1991.
Þáereinnigljóstaðáárinu 1991 verður
lagt varanlegt efni á hlaupa- og
atrennubrautir á íþróttavöllinn á Laugum
í Suður- Þingeyjarsýslu. Að þeim velli
standa átta sveitarfélög í sýslunni í
gegnum Framhaldskólann á Laugum,
en þar er nú komin þriggja ára starfstengd
íþróttabraut með nýju sniði. Völlur
þessi á Laugum er heldur minni en þeir
tveir fyrr töldu, hann verður með 4
brautum fyrir 400 m hringinn, en 6
brautum fyrir 100 m hlaup.
Ekki þarf að fjölyrða um hvað svona
vellirerumikilsvirðifyriralltíþróttastarf
í héraði. Nú er svo komið að ef
íþróttafólk ætlarsér að náárangri verður
það að lengja æfingatímabilið með
æfingaferðum til annarra landa á vorin.
Slíkar ferðir eru mjög kostnaðarsamar
og má taka þann kostnað inn í dæmið
við vallargerðina því með tilkomu
þessara valla má í það minnsta fækka
slíkum æfingaferðum eða jafnvel sleppa
þeim alveg.
Þá er einnig ljóst að þessa velli á að nýta
fyrir almenningsíþróttir, en þær eru
vaxandi og er það vel. Brýnt er að
ungmennafélögin sinni þeim meira en
gert hefur verið.
Og í ljósi þess að íþróttir fyrir alla, koma
til með að spara heilbrigðisþjónustunni
umtalsverðar upphæðir, er mjög eðlilegt
að ríksivaldið leggi verulegt fjármagn í
þessa íþróttavelli, því það fær það til
baka með góðum vöxtum. Ymsa fleiri
þætti mætti nefna, sem styðjaþað, hversu
nauðsynlegt er að svona vellir komi í
hvert hérað. Það verður ekki gert í
þessari hugleiðingu, en ef til vill síðar.
Skinfaxi
31