Skinfaxi - 01.02.1992, Page 30
VERÐLAUNASAGAN
Einu sinni var...
Höfundur: Stefán Bogi Sveinsson,
f. 9. október 1980
Einu sinni var kóngur í ríki sínu,
hann hét Pelé og ríki hans var knatt-
spymuvöllurinn. Og þegar hann ríkti
þar voru háttvísi og riddaramennska í
hávegum höfð, kóngurinn gaf gott for-
dæmi og allir vildu vera eins og hann,
þannig að allir urðu háttvísir. En Pelé
var ekki alltaf kóngur, aðrir kóngar tóku
við og þeir vom ekki allir jafn góðir og
Pelé. Þeir beittu öllum ráðum til þess
að halda völdum, þeir svindluðu, höfðu
rangt við og stofnuðu til illinda.
Ef þið skiljið ekki söguna skal ég
útskýra. Þegar Pelé var upp á sitt besta
hafði hann sem afburða íþróttamaður
mikið vald yfir ungum íþróttamönnum.
Og hann var góð fyrirmynd. En þegar
aðrar fyrirmyndir tóku við voru þær
ekki allar verðugar. Þær óðu uppi með
rifrildi, áflog, beittu brögðum og ég
veit ekki hvað og hvað. Og þeir juku
keppnisskapið þannig að sigur varð
númer eitt. Keppnisskap er gott í hófi,
en of mikið af því getur skemmt íþrótt-
irnar. Því þegar aðalatriðið er sigur
fara menn að brjóta reglur og svindla
og allir fara í fýlu vegna þess að aðeins
einn sigrar. Þess vegna freistast sumir
til þess að nota hormónalyf eða svo-
kallaða stera, t.d. Ben Johnson og
nokkrir ileiri. Enn aðrir eru með kjaft
og leiðinda móral út í dómara og aðra
keppnismenn og ungir íþróttamen
herma eftir þeim. Útkoman verður
ekki skemmtileg, oft er sem sigurinn
skipti öllu ináli. Ef háttvísi væri í há-
vegum höfð og keppnisskapið minnk-
aði örlítið þá yrði sagan líklega svona:
Einu sinni var kóngur í ríki sínu,
hann hét Pelé. Hann var góður kóngur
því hann var svo háttvís. Svo þegar
hann hætti koinu aðrir kóngar og þeir
mundu eftir Pelé og voru háttvísir.
Allir gerðu eins og þeir og lifðu ham-
ingjusamir til æviloka. Svona á þetta
að vera og þetta gæti orðið svona ef
við munum eftir kjörorðinu, háttvísi -
höfum rétt við.
J