Skinfaxi - 01.02.1995, Síða 5
Umhverfis
verkefnið
Nú í sumar gangast UMFÍ og umhverfisráðuneytið með aðstoð
fleiri góðra aðila fyrir umfangsmiklu hreinsunarátaki á ströndum
hafs, ár og vatna. Þar er ungmennafélagshreyfingin ekki að byrja á
alveg nýju verkefni þar sem um áraraðir hafa mörg félög vítt um
landið sinnt líkum málum bæði hvað varðar strendur og með veg-
um. Það er okkur öllum íslendingum hollt og gott að takast á við
þetta verkefni. Við höfum alla möguleika á að halda landi okkar í
serflokki hvað hreinlæti snertir og bæta enn ímynd okkar út á við
°g sýna og sanna að við búum í hreinu og ósnortnu landi og í fullri
sátt við umhverfið.
Nú á seinni árum hefur verulega þrengt að okkar hefðbundna
hmdbúnaði og okkur er brýn nauðsyn á að geta aukið aftur fram-
leiðslu okkar og þá með útflutning að markmiði. Slíkt verður ekki
8ert á annan veg en með sölu góðra afurða sem ræktaðar eru á
hreinum, ómenguðum svæðum, en fyrir slíkar vörur er til markað-
ur sem vill greiða það hátt verð að við erum samkeppnisfær. Ekki
er því að neita að í þessu samhengi leitar hugurinn til þess að
hreinsunarverkefni í milliliðafarganinu væri e.t.v. jafn brýnt verk-
efni, því það er ekki nóg að framleiða góða vöru á viðunandi verði
e* hún hækkar svo um mörg hundruð prósent áður en hún kemst á
borð neytandans.
Ef vel tekst til hjá okkur í sumar í umhverfisverkefninu tökum
við til í fleiri ruslakistum í framtíðinni. Ég vil vona að okkur takist
vel í þessu verkefni okkar í sumar og í kjölfarið verði vakning
meðal allra Islendinga til að halda þessu átaki áfram og verði vart
við sóðaskap sé ætíð tekið á því strax, þannig að þjóðarmeðvitund-
in komi sjálfkrafa í veg fyrir rusl á öllum ströndum landsins. Víða
á ströndum hafsins ber að líta ýmsa rnuni, net, veiðarfæri, fiski-
kassa o.fl. sem koma frá skipum. Það er okkur brýnt að stemma
stigu við öllu slíku og höfða þar til okkar ágætu sjómanna að sýna
aðgæslu í hvívetna. Það, að vera góður sjómaður er ekki bara að
vera hraustur og hrjúfur harðjaxl þó það sé gott út af fyrir sig. Sjó-
menn eru og eiga að vera mannlegir og sýna það í verki.
Reyndar er okkur öllurn hollt að gera umhverfisátak í okkar
huga og sálarlífi. Við mættum svo gjaman sýna hvert öðru meiri
kærleika og vinarhug, við eigum hann fyrir hendi í ríkum mæli,
það sýna dæmin, en þá helst þegar einhver áföll verða. Því þurfum
við að breyta. Hlýhugur og uppörvun er okkur öllurn nauðsynleg-
ur, verum ekki svona spör á gott klapp á bakið, hlýtt handtak, jafn-
vel að faðma góða kunningja. Láta ótvírætt í ljós að okkur þykir
vænt hvert um annað. Við íslendingar erum bara ein fjölskylda og
þurfum virkilega hvert á öðru að halda.
Kristján Yngvason.
Eftirtaldir aðilar styðja umhverfisverkefni UMFÍ
Olíuverslun íslands hf. OLÍS Héðinsgötu 10 105 Reykjavík Ábyrgð hf. tryggingafélag bindindismanna Lágmúla 5 108 Reykjavík
Olíufélagiö hf. ESSO Suðurlandsbraut 18 108 Reykjavík Eimskipafélag íslands hf. Pósthússtræti 12 101 Reykjavík.
Skeljungur hf. Suðurlandsbraut 4 108 Reykjavík Tryggingamiðstöðin hf. Aöalstræti 6-8 101 Reykjavík
TVygging hf. Laugavegi 178 105 Reykjavík Vátryggingafélag íslands Ármúla 3 108 Reykjavík
Skinfaxi
5