Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1995, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.02.1995, Blaðsíða 20
Þórdís Gísladóttir: Hvernig hefur næring áhrif á íþróttagetu? Margir þættir hafa áhrif á íþróttagetu einstaklingsins s.s. íþróttaaðstaða, einbeit- ing, þolinmæði, hæfileikar, sjálfsagi, ofl. íþróttamenn þjálfa hraða, þol, kraft, tækni, afla sér betri búnaðar og aðstöðu og má þar nefna skó, áhöld, íþróttavelli ofl. Þessir þættir eru auðvitað mjög mikilvægir og ómetanlegt að hafa góðan þjálfara sem aðstoðar við alla þessa þætti. Einn þáttur er þó eftir sem oft vill gleymast bæði hjá íþróttamönnum og þjálfurum og það er mikilvægi réttrar næringar. Við lifum á tímum þar sem keppnin er orðin það hörð að í íþróttum eru titlar unnir með svo litlum mun sem lsm 1/100 sec. Allir eru að reyna að ná sem bestum árangri og því ekki að hægt að hundsa næringuna alveg. Mikilvægt er fyrir íþróttafólk hvort heldur unglinga eða afreksmenn í íþróttum að afla sér þekkingar á næringarfræði. Þekkingin gefur frelsi til að velja og hafna í fæðuvali. Kannanir hafa leitt í ljós að fæðan hefur áhrif á íþróttagetu. Fæði fyrir og eftir æfingu/keppni og magn fæðunnar hefur áhrif á hámarksgetu. Afhverju borðum við ? Hlutverk fæðunnar er að sjá líkamanum fyrir orku. Ur fæðunni fáum við einnig bætiefni, steinefni, trefjaefni og vatn. íþróttafólk þarf mun meiri orku en aðrir, þar sem það hreyfir sig miklu meira. Mikilvægt er að gera greinarmun á orkugildi og hollustugildi. Orkugildi gefur til kynna hve margar hitaeiningar eru í fæðunni, hollustugildi gefur til kynna Þórdís Gísladóttir. hollustu fæðunnar eða hve mikið af bætiefnum eru í fæðunni. Gosdrykkir eru orkuríkir, (1 dós af gosdrykk inniheldur u.þ.b 130 he) þeir hafa aftur á móti ekkert hollustugildi. Sykurskertir (diet) drykkir eru orkusnauðir og hafa ekkert holl- ustugildi og þjóna því engum tilgangi í næringu íþróttafólks. Við borðum til að fá orku og til að fá næringarefni svo líkaminn geti starfað eðlilega. íþróttafólk þarf á því að halda að líkaminn geti starfað eðlilega, svo hann sé í stakk búinn að takast á við erfiðar æfingar og nota til þess bestu mögulegu orku sem til er. Hvað verður um orkuna? Mest af orkunni er notað til að full- nægja grunnefnaskiptum líkamans (GE) Það er sú starfsemi sem er alltaf í gangi hjá okkur þ.e. ósjálfráða starfsemin. Öndunarfærin þurfa orku til að draga loft niður í lungun og heilinn þarf orku í sitt hvíldarlausa starf svo eitthvað sé nefnt. Grunnorkuþörfin er háð aldri, kyni, hæð, hita umhverfis, líkamshita og þyngd (Sjá töflu 2). Þeir sem eru stórir hafa því hærri grunnorkuþörf en lágvaxir. ÖIl hreyfing og líkamleg áreynsla krefst viðbótarorku (Sjá mynd 1). Því hefur íþróttafólk miklu meiri orkuþörf á dag en kyrrsetufólk og þarf því að borða mun meira til að koma til móts við þessa auknu orkuþörf. íþróttafólk þarf að gæta þess að orkuinntaka sé nægileg. Ef borðað er of lítið hefur líkaminn ekki nógu mikla orku til sinnar starfsemi og þarf því að brjóta niður vöðva líkamans til að geta framkvæmt æfinguna. Ef orkuinntaka er allt of lítil miðað við orkunotkun eru vöðvar líkamans brotnir niður til að nota sem orku með fitunni. Það gagnar lítið að æfa og æfa og borða svo ekki nóg og brjóta það jafnóðum niður sem byggt var upp á æfingunni. Iþróttafólk í megrun þarf að hafa þetta í huga. Ef farið er of geyst í megrun er hætta á að missa kraft, raska vökvajafnvægi í líkamanum og auka líkur á meiðslum þar sem líkaminn þolir ekki álag æfingar orkulaus. Hvað á íþróttafólk að borða? Orkuefnin eru þrjú kolvetni, fita og prótein. Hlutfall orkuefnanna ætti að vera eftirfarandi hjá íþróttamönnum í flestum íþróttagreinum. Kolvetni 60-70% af orkuinntökunni, prótein 10% og fituinn- takan 20-30% af heildarorkuinntökunni (Sjá mynd 4). I íþróttagreinum sem krefjast þols mun skortur á kolvetni draga verulega úr getu til að halda áfram æfingunni í langan tíma. Knattspyrnumaður Skíðamaður Hlaupari Hjólreiðamaður 450 He/klst. 600 He/klst. 900 He/klst. 250 He/klst. Mynd 1. Orkuþörf íþróttagreina í hitaeiningum á klukkustund. 20 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.