Skinfaxi - 01.02.1995, Blaðsíða 10
2. verðlaun í yngri flokki:
íslensk menning
- f augum 12 ára stúlku
Þar sem ritgerð um íslenska menningu í
heild yrði of yfirgripsmikil ætla ég að lýsa
hvernig íslensk menning kemur 12 ára
stúlku fyrir sjónir, það er að segja mér.
Hvað er íslensk menning? Er ætlast til
að ég viti hvað íslensk menning er? Eg fer
á matsölustaði og panta pizzur og ham-
borgara. Ég fer á diskótek og dansa eftir
enskri músik og geng í fötum, pöntuðum
frá útlöndum. Er það íslensk menning?
Eða er íslensk menning einungis slátur-
keppir og soðin ýsa, íslensk þjóðlög, upp-
hlutir og peysuföt? Verður lífið sláturkepp-
ir og peysuföt í framtíðinni eða verður ís-
lensk menning pizza og enskuslettur eftir
100 ár?
Ég hef heyrt „Eflum íslenskt“ oft og
mörgum sinnum og ef ég kveiki á sjón-
varpinu sé ég auglýsinguna með stórum
staf „íslenskt, já takk“. Svo kemur banda-
nsk bíómynd. Svo er átak gegn mengun og
maður fer niður í bæ og getur varla andað
fyrir mengun. Þarf maður að ganga með
súrefnisgrímur í framtíðinni? Að hverju
verður Island? Þessi hálendi litli flötur á
hnettinum, sem allir dáðust að, með fallegu
fjöllin og grænu skógana. Landið er að
fjúka burt!!! Verður það fokið eftir nokkra
áratugi eða verður það endurbætt, með
grænu túnin, heiðan himininn og ómeng-
aða loftið? Deyr fegurðin út? Deyr íslenska
menningin út? fsland á svo margt sem við
viljum ekki missa. Við verðum að gera
okkur grein fyrir því hvað við tölum
óskýra íslensku og pössum lítið upp á það
sem við höfum. Við erum að leggja ís-
lenskt niður.
Reynum að halda heilbrigðri þjóð.
Leggjum reykingafaraldurinn niður. Látum
vímuefnin víkja fyrir íslenskri tungu, ís-
lenskum vörum og íslensku heilbrigði. Við
verðum að varðveita það sem okkur var
falið í hendur. Islensk menning spillist
ekki meðan við leggjum okkur fram. Við
komumst ekki hjá því að sjá rusl á götum
Reykjavíkur. Jafnvel þótt við aðeins lítum
út um gluggann. Við höfum tært og gott
vatn, fallegt tungumál, góða ull og góða
mjólk frá íslenskum húsdýrum, fallegt
landslag og yndislega þjóð meðan við
varðveitum það sem við höfum.
SETJUM ÍSLENSKT í ÖNDVEGI.
Halla Vilhjálmsdóttir,
7.A. Melaskóla, Reykjavík
íþróttafólk!
Við útbúum fyrir ykkur það
sem þiö þurfið til verðlauna
og viðurkenningar.
Hringið og fáið
myndalistann okkar.
ALFASVEINN %
720 - Borgarfiröi eystri
Sími
97-29977
Margir hafa af því áhyggjur, að íslenskukunnáttu fari hrakandi.
Þeir hafa því miður nokkuð til síns máls. Sem betur fer er það þó
ekki algilt. Þessi mynd var tekin á landsmóti UMFI að Laugar-
vatni síðastliðið sumar. Þar þreyttu margir keppni í stafsetningu
og útkoman var yfirleitt býsna góð.
10
Skinfaxi