Skinfaxi - 01.02.1995, Qupperneq 15
*
V
íþróttir halda
fólki frá óreglu
- segir Magnús Scheving þolfimimeistari og íþróttamaður ársins
Magnús Scheving er ungmennafélags-
fólki að góðu kunnur. Hann mætti galvask-
ur á landsmótið á Laugarvatni í sumar og
lék þar við hvem sinn fingur, eins og hon-
um er lagið. Síðar fréttist m.a. til hans á
héraðsmóti Hrafna-Flóka, sem haldið var á
Bfldudal. Vafalaust eiga ungmennafélagar
eftir að njóta krafta Magnúsar síðar.
Það yrði of langt mál að fara að telja
upp alla þá titla og íþróttaaafrek sem
Magnús hefur unnið í gegnum tíðina. En
ein stærsta rósin í hnappagatið er án efa tit-
illinn „íþróttamaður ársins 1994.“
Þessa dagana er Magnús á ferð og flugi.
Hann var að fara til London daginn eftir að
þetta viðtal var tekið. Þaðan lá leiðin til
Finnlands, síðan til Ítalíu, til Englands, aft-
ur til Italíu, svo Portúgal og loks til Spánar.
„Þetta er á dagskránni hjá mér næstu
vikurnar. Ég kem heim á milli í nokkra
daga. Ég er að kenna á þolfimiráðstefnum
út um allan heim. Ég hef stundað þetta síð-
ustu tvö árin og hefur það verið að aukast
smám saman. Ég var kosinn besti kennar-
inn á Ítalíu og eftir það hefur þetta aukist
mjög.“
- Hvemig stóð á því að þú varst kosinn
besti kennarinn. Lumar þú á einhverjum
aðferðum sem hinir þekkja ekki?
„Nei, ég er líklega eitthvað öðruvísi á
einhvern hátt. Ég legg áherslu á að hafa
tímana létta og skemmtilega auk þess sem
ég reyni að hafa keyrsluna töluverða. Ég
vil að fólk fái góða útrás í tímum hjá mér
og hafi nóg að gera.“
Svolítið einangruð
„Margir sem sækja þessar ráðstefnur og
hafa komið í tíma til mín hafa stundað
þolfimi kannski í átta til níu ár. Þetta fólk
er opið fyrir tilbreytingu í kennslunni, orð-
ið þreytt á því að hún sé alltaf byggð upp
eins og um byrjendur sé að ræða. Við emm
svolítið einangruð hér á íslandi og þess
vegna verðurn við alltaf að búa okkur sjálf
til ný og ný kerfi, sem gerir það síðan að
verkum að við skerum okkur úr fjöldan-
um.“
- Eru íslendingar ef til vill á eftir í
þolfimi?
„Nei, ég myndi alls ekki segja það, við
erum í flestum tilfellum rnjög framarlega.
Þó hefur sumt aldrei náð útbreiðslu hér á
landi. Við erum til dæmis mjög framarlega
hvað varðar tónlistina sem við notum og
útsetjum fyrir hinar ýmsu sýningar okkar.“
Unglingastarfið krefjandi
- Þú hefur mikið unnið með ungling-
um, hvernig líkar þér það?
„Það er mjög gaman. Unglingastarfið er
mjög krefjandi eins og reyndar öll kennsla.
Krakkarnir hafa mjög mismunandi hug-
myndir og skoðanir sem mjög skemmtilegt
er að kynnast. Það sem hefur samt komið
mér mest á óvart er hvað krakkamir hafa
breyst mikið frá því ég var ungur til dæm-
is. Það ríkir allt annar hugsunarháttur og þá
Skinfaxi
15