Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1998, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.12.1998, Blaðsíða 3
Utgáfustarfsemi Ungmennafélags íslands er í miklum blóma þessa stundina. Hreyfingin gefur út tvö tímarit, Skinfaxa og Sportlíf, og á meðan annaö blaðið er að slíta barnsskónum heldur hitt upp á 90 ára afmæli Spennandi ár! á er árið 1998 á enda og 4. tölublað Skinfaxa komið í þínar hendur. Árið 1998 hefur verið viðburðarríkt hvað varðar útgáfumál Ungmennafélags íslands. Skinfaxi hélt sínu striki 89. árið í röð en ekkert annað íslenskt tímarit hefur komið út samfleitt svo lengi. íþróttablaðið, málgagn ÍSÍ, hætti að koma út í lok síðasta árs og má segja að sú ákvörðun hafi verið kveikjan að nýrri blaðaútgáfu UMFÍ. Tímaritið Sportlíf leit dagsins Ijós í apríl mánuði og hafa viðbrögð við blaðinu verið hreint ótrúleg. Áskrifendum fjölgar stöðugt og blaðið selst eins og heitar lummur í verslunum landsins. Markmiðið með útgáfu Sportlífs er að koma til móts við yngri lesendur og kynna fyrir þeim heilsusamlegt líferni - það eru íþróttir. Tímaritið Sportlíf kemur út einu sinni í mánuði og er ódýrasta íslenska tímaritið á markaðnum í dag eins og reyndar kom fram í DV fyrr á árinu. Áætlað er að 12 tölublöð líti dagsins Ijós á næsta ári og verður leitast við að hafa efnisvalið sem fjölbreyttast. Skinfaxi heldur upp á 90 ára afmæli sitt á næsta ári. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að íslenskt tímarit skuli ná 90 ára aldri á meðan flest ný tímarit á markaðnum endast varla út árið. Skinfaxi sem er málgagn ungmennafélags- hreyfingarinnar hefur verið að taka stöðugum breytingum og er það stefna ritstjórnar að blanda saman skemmtilegu efni úr starfi félaga okkar og ítarlegum viðtölum við forráðamenn í þjóðfélaginu og að sjálfssögðu íþróttafólk. Forseti íslands, Herra Ólafur Ragnar Grímsson, var í viðtali við Skinfaxa á síðasta ári og sagði hann meðal annars í samtali við blaðamann að hann myndi eftir tímaritinu Skinfaxa frá því að hann var unglingur. Hver veit nema einn af hinum ungu áskrifendum okkar í dag verði forseti íslands í komandi framtíð. Á næsta ári verður ekkert slakað á í útgáfumálum hreyfingarinnar. Áætlað er að 16 tímarit líti dagsins Ijós áður en árið er á enda. Sportlíf mun koma út 12 sinnum eins og áður hefur komið fram og fjögur tölublöð Skinfaxa koma út á a f m æ I i s á r i blaðsins. Ritstjórn Skinfaxa og Sport- lífs vonast til að vera í sem bestu sambandi við ungmennafélaga jafnt og aðra landsmenn á árinu 1999 því þar finnum við fyrir efni í blöðin okkar. Ég vil fyrir hönd ritstjórnar óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Sjáumst hress á næsta ári. Jóhann Ingi Árnason ritstjóri Fjögur tölublöð Skinfaxa munu koma út á afmælisári blaðsins Sportlíf er ódýrasta fslenska tímaritiö á markaðnum í dag SKINFAXI Ritstjóri jóhann Ingi Árnason Auglýsingar Markaðsmenn Ljósmyndir Sigurjón Ragnar jóhann Ingi Árnason Umbrot Jóhann Ingi Árnason Ritstjórn Anna R. Möller Sigurbjörn Gunnarsson Sigurlaug Ragnarsdóttir Vilmar Pétursson Framkvæmdastjóri Sæmundur Runólfsson Ábyrgðarmaður Þórir Jónsson Prentun Svansprent Pökkun Vinnustofan Ás Dreifing Blaðadreifing Stjórn UMFÍ Pórir jónsson Björn B. Jónsson Kristján Yngvason jóhann Ólafsson Kristín Gísladóttir Ingimundur Ingimundarson Sigurður Aðalsteinsson Varamenn Páll Pétursson Sigurbjörn Gunnarsson Anna R. Möller Helga Guðjönsdóttir Skrifstofa Skinfaxa Pjónustumiðstöð UMFÍ Fellsmúla 26 108 Reykjavík sími: 568-2929 fax: 568-2935 netfang: umfi@umfi.is m

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.