Skinfaxi - 01.12.1998, Blaðsíða 6
UNGMENNAFELAGI
Á UPPLEIÐ!
Páll Kristins
á fleygiferð með Njarðvík
Það hafa nokkrir ungir
og efnilegir körfu-
boltadrengir vakið
mikla athygli í vetur
og verið að sýna
ákveðinn styrk í upphafi körfu-
boltavertíðar. Má þar m.a. nefna
átján ára gutta frá Akureyri,
Einar Örn Aðalsteinsson og þá
hafa Keflvíkingarnir Kristján
Guðlaugsson og Gunnar Einars-
son verið að spila geysilega vel.
Það verður erfitt fyrir Sigurð
Ingimundarson þjálfara þeirra að
taka annan hvorn út úr liðinu
þegar Guðjón Skúlason snýr til
baka eftir meiðsli. Fleiri ungir
leikmenn hafa verið að sýna
góða takta það sem af er og einn
þeirra er Njarðvíkingurinn Páll
Kristinsson sem hefur verið að
leika geysilega vel og sýnt
nokkurn stöðugleika þrátt fyrir
ungan aldur, en Páll er 22 ára.
Páll byrjaði að æfa með
meistaraflokki sextán ára og
hefur þrisvar hampað íslands-
meistaratitli með Njarðvíkur-
liðinu. Hann spilaði nokkuð stórt
hlutverk með Njarðvíkurliðinu í
fyrra og í ár verða gerðar enn
meiri kröfur til hans. Hann hefur
komið sterkur til leiks og virðist
hafa bætt töluvert við sig frá því í
fyrra.
,,Þetta hefur gengið nokkuð
vel í ár. Ég reyndi að nýta
sumarið vel til æfinga og síðan
eru sjö ár síðan maður byrjaði að
æfa með meistaraflokki þannig
að maður hefur safnað í
reynslubrunninn á þeim tíma.
Nú við erum komnir með
sterkari mannskap en í fyrra og
menn þurfa því að leggja harðar
á sig til að tryggja sér fast sæti í
liðinu. Það er mikil harka á
æfingum og samkeppni um
stöður er mikil. Ef menn ætla að
vera með í þeirri baráttu verða
menn að leggja hart að sér á
æfingum. Svo spilar það
náttúrlega stóra rullu að leika vel
í leikjunum og sýna að maður
valdi sinni stöðu. "
- Þið fenguð til liðs við ykkur
Friðrik Stefánsson og Hermann
Hauksson sem leikur sömu
stöðu og þú á vellinum Var þetta
til að hleypa illu blóði í þig?
,,Nei, nei, ég erá því að aukin
samkeppni sé bara af því góða
og menn bæta sig ef eitthvað er.
Ég var frekar að hugsa mér til
hreyfings áður en Hermann kom
en þegar ég vissi að hann var á
leiðinni þá var ég enn ákveðnari
að vera áfram. Við höfum æft
saman á landsliðsæfingum
þannig að ég kannaðist við hann
og vissi að hann mundi styrkja
liði."
- Páll hefur leikið fimmtán
landsleiki fyrir hönd íslands en
hefur þó ekki enn fest sig í sessi
með liðinu.
,,Ég hef verið inn og út og
frekar verið að spila á kostnað
annarra þ.e.a.s. ef einhver hefur
meiðst eða ekki komist með. Ég
er náttúrlega enn ungur en stefni
að sjálfsögðu á það að tryggja
mér fast sæti í liðinu."
- Njarðvíkingar urðu íslands-
meistarar í fyrra og liðið hefur
verið að leika þokkalega í ár.
Eigið þið eftir að bæta ykkur?
,,Já, það er engin spurning.
Það hefur gengið dálítið
brösulega f byrjun en við eigum
nóg eftir inni. Getan er til staðar
en það ríkir kannski dálítið
andvaraleysi yfir þessu eins og
er. Við fengum nokkra nýja
leikmenn og það tekur alltaf tíma
að stilla strengina saman en það
er allt á réttri leið. Hér í Njarðvík
kemur ekkert annað til greina en
að vinna dolluna aftur og
kannski aðra dollu til."