Skinfaxi - 01.12.1998, Blaðsíða 23
Stjarnan.
á toppnum!
Stelpurnar í Ungmennafélaginu Stjörnunni í Garðabæ mæta enn eitt árið
með stjörnuprýtt lið til leiks...
Þær hafa veríð illviðráðanlegar
stelpurnar í meistaraflokki
Stjörnunnar í handknattleik
undanfarin ár. Með þær Herdísi
Sigurbergsdóttur og Ragnheiði
Stephensen fremstar í flokki hafa þær árlega
skilað Garðbæingum gulli og engin breyting
virðist ætla að vera í vetur. Stjörnustelpur
mæta gríðarlega sterkar til leiks og hafa rúllað
yfir andstæðinga sína í síðustu leikjum.
Einstaklega vel hefur tekist að halda utan um
þennan sterka hóp og nánast sömu andlitin eru
að gera hlutina ár eftir ár. Ekki vantar samt
ungu og efnilegu stelpurnar hjá félaginu og er
greinilega björt framtíð hjá Garðbæingum.
Skíðastaðir á Akureyri
Hlíðarfjalli, 600 Akureyri
Tel.: (+354) 462 29 30
Fax: (+354) 461 20 30
Hlíðarfjall Akureyri
Vetraríþróttamiðstöð
íslands, Akureyri
Aðeins 7 km frá Akureyri í 500 m hæð yfir sjó.
Veitingasala, skíðaleiga, stólalyfta, tvær spjaldalyftur,
T-lyfta. Heildarafköst um 3000 m/klst.
Fallhæð frá efstu lyftu að hóteli 500 m,
lengsta skíðaleið 2,5 km. Göngubrautir 3,5
km, 5 km, 10 km.
Ragnheiður Stephensen er með eitraða
vinstri hönd og markverðir eiga ekkert
móteitur.