Skinfaxi - 01.12.1998, Qupperneq 15
UEFA skammtar okkur, fimm daga undir-
búning fyrir landsleiki. Það er fyrst og
fremst peningalegt dæmi og snýr m.a. að
uppihaldi leikmanna meðan þeir dvelja
með liðinu. Þettar kostar allt peninga og
þegar KSÍ er aðeins með eitt lið sem dreg-
ur vagninn, karlalandsliðið, þá er þetta bara
svona. Stjórnin sem slík tekur ekki pening-
ana upp úr fjörugrjótinu. Það er alveg á
hreinu."
- Það segir sig sjálft að það breytti
miklu fyrir þig að hafa strákana tilbúna
fimm daga fyrir leik?
,,Það er geysilega mikilvægt og þegar
við fórum í Armeníuleikinn var telft á tæp-
asta vað með undirbúninginn. Við fórum á
föstudagsmorgni og leikurinn var á laug-
aradegi. í heildina vorum við 42 tíma í ferð-
inni og af því voru 20 í flugvél. Það eru því
ákveðnir þættir sem við getum styrkt í okk-
ar fari."
- Það er erfitt fyrir landann að gera
kröfur um góðann árangur þegar málum
er svona háttað?
,,Sko, við erum búnir að sjá að það er
hægt að styrkja stöðu liðsins og nú förum
við að vinna í því að allir þættir fari saman.
Hefðum við fengið þúsund áhorfendur til
viðbótar á Rússaleikinn þá hefði e.t.v. verið
hægt að fara með liðið í aukaferð til útlanda
í vetur. Við erum ekki eingöngu að sækjast
eftir stuðningnum heldur einnig peningun-
um sem eru því samhliða. Aukið fjár-
streymi inn í KSÍ styrkir ekki eingöngu
stöðu karlaliðsins heldur alla starfsemi sem
KSÍ stendur fyrir þ.e. kvennaboltann og
yngri landsliðin."
Ef ég á að vera
raunsær þá á
íslenska landsliðið
ekki möguleika
-Hugmyndir eru uppi hjá nokkrum fé-
lagsliðum hér á landi að aðskilja rekstur
meistaraflokks karla frá kvennaboltan-
um og yngriflokka starfinu. Væri hægt
að gera þetta innan KSÍ?
,,Það er spurning hvort það eigi að taka
karlalandsliðið út úr og gera það að sér
rekstrareiningu og halda hinni starfseminni,
sem eru meira uppbyggingarstarf fyrir utan.
En það er höfðuverkur þeirra manna sem
eru kosnir til starfa hverju sinni að velta því
fyrir sér."
- Það eru tveir þýðingamiklir leikir
framundan í undankeppninni gegn And-
orra og Úkraníu á næsta ári. Þú ert lík-
lega farin að spá eitthvað í þessa leiki?
Möguleikarnir?
,,Ég er farinn að hugsa um þessa leiki
en það er of snemmt að fara velta fyrir sér
möguleikunum. Það er óvíst hvernig leik-
mennirnir koma undan vetri. Leikmennirnir
á Norðurlöndum eru í vetrafríi, deildin ligg-
ur niðri hér á landi en er á fullu á megin-
landinu og Bretlandi. Það á því eftir að
koma í Ijós í hvernig ásigkomulagi leik-
mennirnir verða næst þegar ég fæ þá. En
það er Ijóst að það er ákveðinn hópur
manna sem er tilbúinn í þetta verkefni og
það er mikill hugur í þeim."
- Ef þú metur stöðuna í dag á ísland
raunhæfa möguleika á að komast í úr-
slitakeppni Evrópumótsins?
,,Ef ég á að vera raunsær þá á íslenska
landsliðið ekki möguleika. En það er allt
hægt í boltanum og við getum alveg farið
þangað eins og hvert annað lið þó að menn
telji Úkraníu vera sterkara en við og ekki af
ástæðulausu. En þeir eiga eftir að spila við
okkur tvo leiki sem þeir eru ekki búnir að
vinna. Við verðum helst að vinna annan
leikinn gegn þeim og tapa helst ekki hinum
leiknum ef við eigum að eiga möguleika."
- En hvert er takmark landsliðsþjálfar-
ans?
,,Áður en riðlakeppnin hófst taldi ég okk-
ur ekki eiga neina möguleika, enda með
liðum eins og Frakklandi, Rússum og
Úkraníu í riðli. En svo höfum við farið fram
úr sjálfum okkur og menn eru farnir að velta
fyrir sér hlutunum á annan hátt heldur en
áður. Það er þó engin ástæða til að vera
með einhverja bjartsýni. Bjartsýni er ótíma-
bær á þessari stundu. En við vitum að það