Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1998, Page 16

Skinfaxi - 01.12.1998, Page 16
er hægt að gera góða hluti, en hversu góða getum við ekki sagt fyrir um. Við verðum að halda áfram að þróa leik okkar og ef það tekst þá erum við í góðum málum." - Þú hefur verið að nota mikið af ung- um strákum, ertu að byggja upp framtíð- arlandslið? „Það er náttúrlega Ijóst að það hafa orð- ið töluverðar breytingar á liðinu Strákarnir sem ég nota hafa verið að gefa vel af sér en það á samt enginn fast sæti í liðinu. Ef leikmenn fara að gefa eftir þá er nóg af leik- mönnum til að taka við." - Þú ert a.m.k. ánægður með þá í dag? „Ég er mjög ánægður og er stoltur af þeim. Það hefur verið gaman að vinna með þessum strákum því þeir eru tilbúnir til að hlusta og læra. Þeir hafa verið mjög fórnfúsir í leikjunum og unnið vel." - Eru einhverjir ákveðnir póstar í lið- inu sem þú byggir á? „Nei. Það sást í Rússaleiknum að það er enginn ómissandi, en það má kannski segja að menn séu mis mikilvægir. Það er mjög ánægjulegt þegar búið er að koma á því vinnulagi að enginn sé ómissandi. Vissulega er þægileg tilfinning að geta val- ið úr öllum en staðreyndin er sú að í flokka- íþróttum er enginn ómissandi. Það sem skapast með breyttu vinnufyrirkomulagi er að það eru ekki ákveðnir einstaklingar sem bera uppi kerfið, heldur kerfið sem ber ein- staklingana uppi." - Árangurinn í ár hefur komið mörg- um á óvart en það er fleiri sem hefur vakið athygli manna sem fylgst hafa með liðinu eins og skyndilegt brotthvarf fyrrverandi landsliðsfyrirliðans Guðna Bergssonar. Það er dálítið sérstakt að leikmaður sem hefur spilað 73 leiki fyrir íslands hönd detti út úr liðinu svona skyndilega eins og raun bar vitni. Skýr- ingin á þessu? „Hann tók þá ákvörðun sjálfur síðasta haust að taka önnur verkefni fram yfir landsliðið." - Var hann ekki tilbúinn að fórna sér jafn mikið fyrir liðið eins og strákarnir sem þú ert með í dag? „Nei, það segir sig sjálft. Þeir hafa ekki gert það sama og hann. Hann tók þá ákvörðun að taka félagsliðið fram yfir landsliðið og einbeita sér á þeim vígstöðv- um." - Hvað með stöðu hans í dag? Á hann einhvern möguleika á að koma inn í landsliðið aftur? „Það er enginn sem á fast sæti í lands- liðinu og enginn sem getur reiknað með að sitja í landsliðinu að eilífu. Það koma allir til greina." - Á hann einhverja möguleika á að komast inn í liðið að nýju eins og hann hefur verið að spila að undanförnu? „Ég er nýbúinn að sjá hann spila og það var ekki merkilegt." - Eftir einn landsleikinn í ár kom Bjarki Gunnlaugsson með þá yfirlýsing- ar í blöðin að hann mundi aldrei leika undir þinni stjórn aftur. Hvað kom upp þar? „Þú verður að spyrja Bjarka að því sjálf- ur. En þú getur bara skoðað hvað hann hefur verið að gera í Noregi að undan- förnu." Ég held að Birkir hafi sýnt öllum hversu megnugurhann er í markinu - Hvað með Ólaf Gottskálksson? Hann var í landsliðinu þegar liðið fór til Kýpurs á æfingamót en þurfti að yfir- gefa liðið og fara til Skotlands þar sem hann leikur. Hann hefur síðan ekki feng- ið tækifæri með liðinu að nýju og var að kvarta yfir því í blöðunum að hann hefði ekki fengið neina ástæður fyrir því af hverju hann datt út. Er sá háttur ekki hafður á hjá KSÍ að leikmenn fái að vita ástæðuna ef þeir detta út? „Ástæðuna. Hann yfirgaf landsliðið þegar það var á Kýpur og tók sitt félagslið framyfir. Svo einfalt var það." - Vissu menn ekki að hann ætlaði að fara? „Nei, þetta var alveg óvænt. Hann taldi að hann ætti að spila með sínu liði í Skotlandi og tók þann kostinn að yfirgefa landsliðið." - Markverðirnir Birkir Kristinsson og Árni Gautur Arason hafa verið vara- menn með sínum félagsliðum. Var ekki erfitt að réttlæta þeirra val í landsliðið? „Ég held að Birkir hafi sýnt öllum hversu megnugur hann er í markinu og hann hefur staðið sig með prýði í landsleikjunum. Það sýnir einnig að val mitt á Árna Gaut er ekki út í loftið því Rosenborg treysti honum til að spila í Meistarakeppni félagsliða fyrir skömmu. Og það segir manni að það sé eitthvað meira varið í hann heldur en marg- ir misvitrir menn hér á landi hafa verið að velta fyrir sér." - Þú velur nánast eingöngu leikmenn í landsiiðið sem leika með félagsliðum erlendis. Eru einhverjir hérna heima sem banka á dyrnar? „Ja, Steinar Adólfsson var nú í byrjunar- liðinu síðast og Sigurður Örn Jónsson í hópnum. Nú þegar við veltum fyrir okkur þeim leikmönnum sem eru komnir erlendis, sem eru 55 að ég held, þá gefur það auga leið að það eru ekki margir sem banka á dyrnar hérna heima. En eins og ég sagði áðan þá loka ég ekki á neinn." - Ertu bjartsýnn fyrir næsta ár? „Ég er ekki sérstaklega bjartsýnn enda hef ég ekki ástæðu til. Bjartsýni gefur manni ekki neitt. Maður verður að vera raunsær, meta stöðuna og vinna út frá því." - Eftir góðan árangur á móti Frökkum og Rússum skelltu Ingólfur Hannesson íþróttafréttamaður og Eggert Magnús- son formaður KSÍ rembingskossi á kinn þína í beinni sjónvarpsútsendingu. Finnst þér þess virði að ná góðum úr- slitum ef því fylgir stanslaust kossa- flens frá karlmönnum? „Ég hef þurft að taka við alls kyns koss- um í gegnum tíðina svo ég kippi mér ekkert upp við þessa hluti. Mér finnst í raun kjána- legt að gera mikið úr því ef mönnum líður vel og sjái ástæðu er til að fagna. Ég held að við íslendingar ættum að brjóta klaka- stykkið af nefinu á okkur og láta það eftir okkur að fagna þegar ástæða til. Mér finnst það fagnaðarefni ef menn geta glaðst og kæst. Og ég er ánægður ef ég get stuðlað að því að fólki líði vel og sé ánægt."

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.