Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1998, Side 24

Skinfaxi - 01.12.1998, Side 24
Þráinn Hafsteinsson krækir í... ungmennafélaga! Frjálsíþróttaþjálfarinn Þráinn Hafsteinsson hefur fengið margt besta frjálsíþróttafólk landsins til að skipta yfir í ÍR. Valdimar Kristófersson ræddi við hann um þessa þróun... Um síðustu áramót skrifuðu margir af fremsta frjálsí- þrottafólki okkar íslend- inga, sem voru í ung- mennafélögum vítt og breytt um landið undir samning við íþróttafélag Reykjavíkur (ÍR). Þetta var stór hópur, í kringum tíu til tuttugu manns, og á meðal þeirra Vigfús Dan kúluvarpari, Sunna Gestsdóttir spretthlaupari og langstökkvari og Einar Karl há- stökkvari. Það er sjaldgæft að svona margir góðir einstaklingar skipti á einu bretti yfir í eitt og sama íþróttafélagið. Þráinn Hafsteinsson frjálsíþróttaþjálf- ari ÍR-inga var inntur eftir svörum vegna þessara miklu félagsskipta yfir í ÍR. - Hvernig stóð á þessum miklu fé- lagaskiptum um síðustu áramót? ,,Nú, við teljum okkur bjóða upp á bestu aðstöðuna, bestu þjálfunina og besta fé- lagsstarfið. Þannig að frjálsíþróttafólk æfir við toppaðstöðu hjá ÍR og eftir því hljóta all- ir að sækjast." - Er þetta ekki slæmt fyrir frjálsar á ís- landi að allir þeir bestu séu í sama félag- inu? ,,Ég tel að þegar fólkið fer þangað sem besta aðstaðan og þjálfunin er þá er það að reyna að nýta sína hæfileika sem best og það er aðal atriðið í þessu. Ef þú skoðar þennan hóp sem við höfum fengið til okkar þá eru þetta nærri því undantekningarlaust krakkar sem hafa enga þjálfun heima hjá sér, mjög lélega aðstöðu og eru í fámenn- um og frekar slökum liðum. Sunna, Einar Karl og Vigfús eru allt krakkar sem voru ein á báti minna og meira með engan þjálfara. Þá finnst mér einnig mjög eðlilegt að fólk sem er búið að æfa í mörg ár hjá ÍR skipti yfir í félagið." - Hafið þið sóst eftir því að fá þetta frjálsíþróttafólk til ykkar? ,,Við höfum sóst eftir ákveðnum einstak- lingum. Og síðan hefur það alltaf verið þannig að fólk utan af landi, sem hefur far- ið í skóla í Reykjavík hefur komið til okkar að æfa. Það sér þá fram á að það geti fengið enn betri þjónustu fyrir sjálft sig með því að æfa með okkur frekar en að vera bundin einhverju félagi úti á landi, þar sem aðstaðan er ekki jafn góð." - Þú segir að þið séuð með bestu að- stöðuna. Hvað hafið þið upp á að bjóða sem aðrir hafa ekki? ,,Við höfum innanhúss aðstöðu í Bald- urshaga og Laugardalshöllina sem er sú besta sem þekkist hér á landi. Þá eyðum við allra félaga mest í þjálfun. Við erum með fjóra þjálfara bara fyrir meistaraflokk- inn. Það er ekkert annað félag sem býður upp á svo sérhæfða þjálfarakosti. Jón Sævar Þórðarson sér um stökkin og sprett- hlaupin, Gunnar Þáll Jóakimsson er með langhlaupin og ég sé um kastgreinarnar, sjö- og tugþrautina." - Þú segir að starfið úti á landi sé ekki nógu gott. En verður það ekki ennþá veikara fyrir vikið þegar helsta frjálsí- þróttafólkið yfirgefur félagönin sín? ,,Það getur vel verið. En íþróttastarf- semin út á landi byggist ekki upp á svona einstaklingum og sérstaklega ekki þegar það er farið af svæðunum eins og var með flest af því fólki sem skipti yfir til okkar." - Er frjálsíþróttafólkið sem kemur til ykkar eingöngu að sækjast eftir góðri aðstöðu og þjálfun eða eru peningar einnig með í spilinu? ,,Það er ákveðið styrkjakerfi í gangi hjá okkur sem allir vita um sem eru að vinna og Við höfum sóst eftir ákveðnum einstaklingum æfa hjá okkur. Utanbæjarmennirnir sem æfa með okkur vita einnig af þessu. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem við höfum get- að gert eitthvað í samræmi við það sem önnur félög hafa gert í sambandi við styrk- veitingar." Hvernig virkar styrkjakerfið hjá ÍR? ,,Það eru ákveðin þrep í kerfinu hjá okk- ur. í fyrsta þrepi er frír ÍR íþróttagalli. Ann- að þrep fer eftir árangri, þá borgum við eina utanlandsferð til keppni eða æfinga. í þriðja þrepi fá menn tvær til þrjár ferðir til útlanda til æfinga eða keppni. Það eru engir peningar borgaðir, þetta eru allt styrk- ir. íþróttasamböndin úti á landi hafa verið í miklu betri aðstöðu en við til að gera slíka hluti." - Eru þetta beinar greiðslur sem liðin úti á landi eru að bjóða frjálsí- þróttafólki? ,,Nei, það er verið að kosta fólk í keppnisferðir eins og við erum að gera." - Fara styrkirnir hjá ÍR eftir ár- angri eða eftir því hvað frjálsí- þróttafólkið hefur æft lengi hjá ykkur? „Það fer bara eftir árangri og það eru engin undanbrögð með það. Frjálsíþrótta- fólkið sem kemur til okkar getur farið beint inn í þriðja þrepið ef það hefur náð góðum árangri áður en það kemur til okkar." - Getur frjálsíþróttafólkið utan af landi nýtt sér aðstöðuna hjá ykkur án þess að skipta um félag? ,,Já, já, það er alveg galopið. Það eru nokkrir hjá okkur í dag sem eru ekki í ÍR, en það kostar einstaklinginn eða félagið miklu meira fyrir vikið. Æfingagjaldið er helmingi hærra fyrir þá sem ekki eru skráðir í ÍR." - Eru félagaskiptin í frjálsum að verða svipuö og gengur og gerist í knattspyrn- unni, hand- og körfuknattleik hér á landi, þar sem menn keppast við að fá bestu einstaklingana til sín? ,,Já, ég tel það bara eðlilegt. Frjálsí- þróttafólk leitar til þeirra sem leggja mikla vinnu og fjármuni í að bjóða upp á topp- þjálfun og aðstöðu. Metnaðarfullir einstak- lingar leitast eftir að æfa við sem bestu skil- yrði hverju sinni. Það leit dálítið ílla út hvað það voru margir sem skiptu yfir í ÍR á sama tíma í fyrra. Ein skýringin á því er sú að það var Landsmót ungmennafélagana árið áður og það má skoða aftur um mörg ár að félagaskipti eru mikil eftir þau mót." - Þessi hópur kom til ykkur um síð- ustu áramót og nú eru að koma áramót aftur Eru fleiri á leiðinni til ykkar á næst- unni? „Það gæti alveg farið svo en það er ekki búið að undirrita neitt." Æfingagjaldið er helmingi hærra fyrir þá sem ekki eru skráðir í ÍR

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.