Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2000, Síða 10

Skinfaxi - 01.02.2000, Síða 10
menning Kultur og ungdom eða Menning og æska er mót sem haldið verður í Reykjavík dagana 21.-28. júni í sumar, Ungmennafélag íslands er ábyrgðaraðili mótsins en mótið er norrænt mót sem NSU, Nordisk samorganisation for ungdomsarbejde, stendur fyrir. Innan NSU eru 15 íþrótta- og æskulýðsfélög með samtals um 2.000.000 félagsmanna og er UMFÍ eitt af þeim. Formaður NSU er Björn B. Jónsson, varaformaður UMFÍ. Um 2000 ungmenni á aldrinum 14-25 eru væntanleg frá Norðurlöndunum til að taka þátt í mótinu og er reiknað með 1000 íslenskum ungmennum. Kynning á mótinu stendur nú yfir og fer sú kynning fram að mestu á þingum héraðssambanda og eins í framhaldsskólum um land allt. Óhætt er að segja að ungt fólk er mjög áhugasamt um þátttöku á mótinu og margar fyrirspurnir eru um mótið. Flestir hafa áhyggjur af því að það sé að verða uppselt en svo er ekki og getum við lengi á okkur blómum bætt. Dagskrá mótsins er nú að öllu leyti tilbúin og er af mörgu að taka. Má þar nefna Suðurlandsferð sem HSK stendur fyrir, fatahönnunarkeppni, ratleik í Öskjuhlíðinni, tónleika, ljós- myndamaraþon, miðnætursund og fjölbreytta íþróttadagskrá. Einnig verður dagskrá Reykjavíkur menningarborgar Evrópu opin þátttakendunum. íslensku þátttakendunum gefst kostur á að vera með í flestu á dagskrá mótsins frá miðvikudegi 21. júní - miðvikudagsins 28. júní án endurgjalds, en þá er ekki innifalinn matur og gisting, Gestakort Reykjavíkur og Suðurlandsferð. Gegn greiðslu kr. 9.900,- er innifalinn hádegismatur og kvöldmatur þann 22.06. morgunmatur, hádegismatur og kvöld- matur þann 23. 24. og 25. og morgunmatur og hádegismatur 26.06. Matur verður á Broadway/Hótel íslandi. Gisting í skólum í nágrenni Laugardals, heilsdagsferð um Suðurland, gestakort Reykjavíkur: (frítt í strætó, sund og á atriði í tengslum við Reykjavík menningarborg Evrópu) sem og full þátttaka á allt innan dagskrár mótsins. Hugmyndin er að fá íslensku þátttakendurnar til að vera virkir á mótinu, t.d. með þátttöku í setningarhátíð, fatahönnunarkeppni, karaokekeppni og íþróttum. Einnig gefst þeim kostur á að setja upp ýmis atriði í tjöldum með leiksviði á Ingólfstorgi og í Laugardal t.d. leiksýningar, tónleika, söng eða önnur atriði sem þátttakendur hafa í handraðanum. Nánari upplýsingar varðandi þátttöku og/eða skráningu í einstaka viðburði innan mótsins má fá á skrifstofu Kultur & ungdom, (Þjónustumiðstöð UMFÍ) Fellsmúla 26,108 Rvk. sími. 568-2929 eða á heimasíðu mótsins www.umfi.is/kultur

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.