Skinfaxi - 01.02.2000, Page 24
fótbolti
Mynd: Valdimar Kristófersson
ívar Ingimarsson er einn af
fjölmörgum
ungmennafélögum sem nú
hafa atvinnu af því að stunda
íþrótt sína. ívar leikur með
enska 2. deildarliðinu
Brentford sem þessa dagana
reynir að tryggja sér sæti í
úrslitakeppni um laust sæti í
1. deildinni. ívar fæddist í
Reykjavík og flestir þekkja
hann eflaust sem
knattspyrnumann hjá ÍBV.
Austfirðingar vita hins vegar
að hann lék alla
yngriflokkana með
Ungmennafélaginu Súlunni á
Stöðvarfirði og má því segja
að þar hafi hann lært að
sparka tuðru.
ívar segist ekki muna eftir sér öðruvísi en í fótbolta. Stöðvarfjörður er lítill staður og
þegar Ivar var ungur var knattspyrna eina íþróttagreinin sem stunduð var á sumrin. Ivar
spilaði sinn fysta knattspyrnuleik þegar hann var átta ára og það var leikur í 6. flokksmóti
á sumarhátíð á Eiðum. Ivar man nú ekki vel eftir fyrstu árum sínum á
knattspyrnuvellinum en þegar hann lék með 4. flokki Súlunnar mann hann vel eftir einum
leik. „Það gerðist á móti á Akranesi þegar við vorum að keppa til úrslita í lokakeppninni.
Þar lékum við gegn IR sem var spáð svakalega góðu gengi og átti fyrirfram að vera með
eitt besta liðið í flokknum. Ég man einmitt þegar við vorum að koma inn á völlinn og
fórum að hita upp að þá stóðu sumir IR-strákarnir á miðjulínunni og hlógu að okkur af því
að þeim fannst við vera svo litlir og asnalegir. En síðan náðum við að vinna þá 2-1. Eftir
leikinn var allt brjálað inni í klefanum hjá þeim og þjálfarinn skellti hurðum með
tilheyrandi hávaða. Hjá okkur var hins vegar biðröð í símann til þess að hringja heim og
segja frá því hvernig leikurinn hefði farið. Þessi sigur á IR gerði ferðina mjög
eftirminnilega."
Ivar lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki með KSH þegar hann var aðeins 14 ára gamall.
Fljótlega eftir það var hann valinn í U16 ára landsliðið. Aðeins 16 ára gamall fluttist hann
til Reykjavíkur og byrjaði þá að æfa við Val. Árið 1995 var hann í fyrsta skipti valinn í >
meistaraflokkslið Vals og lék það árið 12 leiki í efstu deild. Árin 1996-1997 var Ivar
fastamaður í meistaraflokksliði Vals og það var svo í lok tímabilsins 1997 sem ÍBV keypti
hann til Eyja. Úti í Eyjum blómstraði ívar og varð til að mynda íslands- og bikarmeistari
með félaginu þar sem hann lék lykilhlutverk. Það leið því ekki á löngu þar til erlend
félagslið fóru að spyrjast fyrir um kappann og fyrir milligöngu Hermanns Hreiðarssonar,
fyrrum leikmanns IBV og Brentford, skrifaði Ivar undir samning við 2. deildarliðið
Brentford þar sem hann lætur drauma sína um atvinnumennsku rætast.
(Upplýsingar fengnar úr Snæfelli, tímariti UÍA)