Skinfaxi - 01.02.2000, Side 26
forvarnir
Ungmennafélag íslands hefur
hafið samstarf við áætlun
íslands án eiturlyfja um
forvarnarverkefni sem hlotið
hefur nafnið „Loftskipið".
Loftskipið hefur sett sér háleit
markmið: í fyrsta lagi er
áætlunin að miðla og safna
upplýsingum um vímuvarnir
um allt land, f öðru lagi að
stuðla að aukinni samveru
barna og foreldra og í þriðja
lagi að koma sjónarmiðum
ungs fólks innan þessa
málaflokks á framfæri með
veglegri ungmennaráðstefnu
sem haldin verður í haust.
Loftskipiö hóf ferð sína um landið þann 28. mars í Borgarbyggð.
Þar var haldinn fjölmennur og skemmtilegur fundur um forvarnir.
A mælendaskrá var meðal annars Jón Indriði, forvarnafulltrúi hjá
Marita, sem varpaði fram spurningunni: "Er til markaðssetning á
eiturlyfjum?" Jón Indriði sýndi okkur fram á að á því er enginn
vafi. Fundirnir hafa jafnframt verið haldnir á Blönduósi, Akureyri,
Húsavík, Egilsstöðum, Höfn og Hvolsvelli og er ætlunin að þeir
verði fleiri. Fundirnir eiga það sameiginlegt að vera mjög gagnlegir
þeim sem sækja þá og okkur sem halda þá.
Þegar þessari fundarherferð um landið er lokið er röðin komin að
átaksverkefni sem ætlað er að stuðla að aukinni samveru barna og
foreldra. Það mun standa yfir í allt sumar og er byggt á sömu
hugmynd og Lýðsveldishlaupið 1994 þar sem fólk hljóp ákveðna
vegalengd og skráði í bækur. Nú mun fólk hinsvegar ekki þurfa að
hlaupa heldur einfaldlega gera eitthvað skemmtilegt með
fjölskyldu sinni og skrá það niður. Veitt verða vegleg verðlaun fyrir
mestar samvistir.
Ungmennaráðstefnan sem haldin verður í haust nýtur þeirrar
sérstöðu að mælendaskráin hefur ákveðið "aldurshámark". Allir
mega koma og hlusta en eingöngu ungir fá að tala. Skipulagning
hennar og framkvæmd verður einnig í höndum ungs fólks.
Markmiðið er að reyna að varpa ljósi á hvað ungt fólk telur að hafi
haldið eða hefði haldið þeim frá óreglusömu lífi.
Ljósmynd: Sigurjón Ragnar