Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2002, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.02.2002, Blaðsíða 7
Hjálmar Jónsson knattspyrnumaður gerði nýlega fjögurra ára atvinnu- mannasamning við sænska úrvals- deildarliðið Gautaborg. Hjálmar sem byrjaði að sparka í fótbolta með Hetti á Egilstöðum sparkar því fótbolta við bestu aðstæður næstu fjögur árin í Svíþjóð. Mikið hefur verið að gerast hjá Hjálmari í vetur. Hann var valinn íþróttamaður Keflavíkur í desember, semur við Gautaborg og spilar sína fyrstu landsleiki gegn Kúveit og Sádi Arabíu í janúar og er valinn besti knattspyrnumaður Keflavíkur í febrúar. Skapti Örn Ólafsson hitti þennan geðþekka Héraðsbúa á Kaffi París ekki alls fyrir löngu og var erindið að spjalla við Hjálmar um þennan draum ungra fótbolta- stráka yfir súpu og brauði. Síðasta ár og byrjunin á þessu hafa verið algjör draumur í dós *" atvinnumaðurinn Hjálmar Jónsson í skemmtilegu spjalli við Skinfaxa Fyrsti atvinnumaðurinn frá Hetti Hvernig kom það til að þú samdir við Gautaborg? /,Það var þannig að það var hringt í Keflavík og spurt um vinstri bakvörð °g benti formaður knattspyrnudeild- arinnar strax á mig. Tveim vikum eftir að þetta fór af stað fór ég út til Svíþjóðar í fjóra daga. Þeim leist það vel á mig að þeir vildu halda sam- bandi við mig. Síðan kom þjálfarinn til Islands til að horfa á leik með Keflavík og síðan fór þetta allt að rúlla af stað. Þetta átti sér allt stað í desember." Síðan spilar þú þína fyrstu A-lands- leiki í janúar og ekki hefur það skemmt fyrir? „Ætli það hafi ekki aukið áhugann enn frekar. En það var rosalega skemmtilegt að taka þátt í þessum landsleikjum og kom mér þannig séð á óvart að hafa verið valinn í hópinn. Fyrir átti ég einhverja leiki með 21 árs landsliðinu en vonandi á maður eftir að klæðast landsliðstreyjunni aftur. (Eftir að viðtalið var tekið lék síðan Hjálmar allan landsleikinn á móti Brasilíu 8. mars.). Ef þú segir mér aðeins frá þínum uppvaxtarárum? „Ég er fæddur og uppalinn á Egils- stöðum og flutti ekki þaðan fyrr en Það er svolítið skrítin tilfinn- ing en vonandi á Höttur eftir að eiga fleiri atvinnumenn í framtíðinni. ég var 19 ára, eða sumarið 1999. Þá fór ég til Keflavíkur til að reyna fyrir mér í knatt- spyrnunni. Það má segja að ég hafi verið hálfgerður íþrótta- fíkill í æsku. Ég stundaði flest- ar þær íþróttir sem ég komst í tæri við hjá íþróttafélaginu Hetti á Egilsstöðum, m.a. handbolta, fótbolta og körfu- bolta auk frjálsra íþrótta. Ætli ég hafi ekki verið um 16 ára þegar ég snéri mér alfarið að fótboltanum. Hvað nám varðar þá stundaði ég nám við Menntaskólann á Egilsstöðum og síðan við Fjölbrautarskóla Suðurnesja en útskrifaðist síðan sem stúdent frá M.E."

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.