Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2002, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.02.2002, Blaðsíða 22
„Fátt sem maður hefur bætt sig meira í en að vinna með Jóni Arnari" - segir Gísli Sigurðsson frjálsíþróttaþjálfari Þegar Skinfaxi hafði samband við Gísla Sigurðsson frjáls- íþróttaþjálfara var hann stadd- ur á Danska meistaramótinu í frjálsíþróttum með hóp íslen- skra ungmenna. Gísli var svo óheppinn að liggja í flensu þegar viðtalið fór fram en hark- aði af sér af íþróttamannasið. Gísli er hvað best þekktur fyrir að vera maðurinn á bak við tugþrautarmanninn Jón Arnar Magnússon, en Gísli þjálfaði Jón Arnar um árabil og gerðu þeir félagar góða hluti saman. Upp úr þeirra samstarfi slitnaði fyrir rúmu ári og lá Skinfaxa forvitni á að vita meira um málavexti. Byrjaði að æfa frjálsar 1978 Hvemig hefur gengið hjá ykkur á mót- inu? „Okkur hefur bara gengið ágætlega. Þeir sem eru að byrja að keppa fengu því kær- komið tækifæri til að keppa á stærri mótum. Þannig að ég er mjög sáttur," sagði Gísli. Gísli hóf sinn þjálfaraferil haustið 1983 hjá íþróttafélagi Reykjavíkur og á því stórafmæli hvað þjálfun varðar á næsta ári. „Ég byrjaði að þjálfa hjá ÍR og var þar í eitt og hálft ár. Síðan fór ég yfir til KR og um 1987 fór ég síðan í Skagafjörðinn og hef verið þar síðan við þjálfun," sagði Gísli og skemmti sér greinilega við að rifja þennan tíma upp. Gísli æfði og keppti einnig frjálsum sjálfur og þá aðallega í tugþraut. „Ætli ég hafi ekki verið 18 ára þegar ég byrjaði að æfa og keppti þar til ég var rúmlega þrítugur. Ég keppti fyrst fyrir UMSS og fór síðan yfir til ÍR og KR í smá tíma vegna aðstöðumála og fór síðan norður haustið 1987. Ég keppti alltaf í tugþraut og það má segja að ég hafi haldið mig við hana síðan eftir að ég byrjaði að þjálfa," sagði Gísli. Þegar talið barst að stöðu frjálsra íþrótta á íslandi í dag sagðist Gísli vera bjartsýnn. „Ég tel að það sé mjög bjart framunda. Við eigum von á gjörbreyttum aðstæðum hvað æfingar og þjálfun varðar í Reykjavík sem er mikið fagnaðarefni og geysilega stórt skref fram á við. En almennt séð er ég mjög bjartsýnn hvað framtíðina varðar. En við búum vil það að erfitt er að fá fármagn og styrktaraðila inn í íþróttina en vonandi á það eftir að breytast í framtíðinni," sagði Gísli og ítrekaði að væntanleg bætt aðstaða til frjálsíþrótta- iðkunar í Reykjavík væri löngu tímabær. „Þú sérð það að þegar ég byrja að æfa frjálsar árið 1978 var verið að tala um þetta en loksins í dag, 24 árum síðar, er að rofa til í þessum efnum." Mikil og góð viðurkenning Fimm sterkir frjálsíþróttamenn gengu til liðs við Tindastól á Sauðárkróki á dögun- um, sagði Gísli að það væri mikil og góð viðurkenning fyrir það starf sem unnið væri innan frjálsíþróttadeildar félagsins. Þeir sem um ræðir eru Ólafur Guðmunds- son, tugþrautarmaður, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, millivega- og langhlaupari, Gunnhildur Hinriksdóttir, fjölþrautar- kona, Magnús Aron Hallgrímsson, kring- lukastari, og Auður Aðalbjörnsdóttir. „Ég fagna komu þeirra í okkar lið. Þetta er geysilega jákvætt fyrir það sem við erum að gera og stöndum fyrir," sagði Gísli og bætti því við að ekki væri verið að kaupa þessa íþróttamenn til Tindastóls heldur hafi þeir komið af fúsum og frjálsum vilja. „Ef eitthvað er þá kostar þetta aukalega

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.