Skinfaxi - 01.02.2002, Side 12
Landsmótin eru stolt okkar allra
- segir Björn B. Jónsson formaður Ungmennafélags íslands
Björn B. Jónsson, formaður
UMFI, hefur í mörgu að snúast
þessa dagana, m.a. þarf að
ákveða hvar Landsmótið árið
2004 fer fram, en ísafjarðabær
dró umsókn sína til baka fyrir
skömmu eins og flestum ætti
að vera kunnugt um. Það þarf
því að finna nýjan stað og
Skapti Örn fór á stúfana og
athugaði stöðu mála.
Hvernig er staðan varðandi Landsmót
2004? „Staðan er sú að Vestfirðingar hafa
skilað umboði til að halda Landsmót
Ungmennafélaganna 2004. Stjórn UMFÍ
ákvað á stjórnarfundi 9. febrúar að gefa
sambandsaðilum frest til 15. mars n.k. til að
sækja um mótið. Nokkrir aðilar sýndu
strax áhuga þegar ljóst var að mótið yrði
ekki á Vestfjörðum að fá mótið til sín og er
það vel."
Hvað klikkaði varðandi ísafjörð? „Ég lít
ekki á að neitt hafi klikkað. ísafjarðarbær
hafði fyrirvara varðandi uppbyggingu
mannvirkja og það kom í ljós að þeir
treystu sér ekki til að fara í þá upp-
byggingu sem talin var nauðsynleg fyrir
Landsmót á norðanverðum Vestfjörðum.
Þetta var mat þeirra sem halda um fjárhag
Isafjarðarbæjar og ber að virða það. Það
reyndist einfaldlega of dýrt fyrir þá að
standa undir þeim kostnaði sem var
reiknað með að mótið myndi kosta. Það má
bæta því við að ég er ákaflega stoltur að
þeim metnaði sem sveitarfélög hafa til að
koma upp glæsilegum mannvirkjum fyrir
Landsmót UMFÍ."
Ef ekki Isafjörður hvaða aðrir staðir koma
til greina? „Þeir sem hafa sótt um eru HSÞ,
UMSK, UMSS, Ungmennafélagið Fjölnir
og IBR. Sauðárkrókur, Húsavík, Reykjavík
eða Kópavogur koma því allir til greina
fyrir Landsmót árið 2004. Auk þeirra sem
eru taldir upp að framan þá geta komið
fleiri umsóknir, en eins og áður er sagt þá
er frestur til 15. mars til að sækja um
mótið."
Hvenær kemur þetta allt saman í ljós?
„Stjórn UMFÍ kemur saman 22. mars n.k.
Þá verður tekin ákvörðun hvar 24. Lands-
mót UMFÍ verður haldið."
Kemur þessi vandræðagangur til með að
hafa einhver áhrif á UMFÍ og Lands-
mótið? „Það er tæplega hægt að tala um
vandræðagang þegar fimm aðilar hafa
óskað eftir að halda mótið. En það hafa
komið upp svipuð tilfelli áður og hefur allt
farið vel. Það er ekki skrítið að farið sé
varlega þegar ákvörðun er tekin að halda
stærsta mót landsins. Það tekur bæði á
fjárhagslega og félagslega að halda slíkt
mót sem er blanda af menningar- og
íþróttaviðburðum. Ég er ekki sammála að
þetta sé vandræðagangur á nokkurn hátt
heldur snýst þetta um að halda glæsilegt
mót við bestu aðstæður sem völ er á
hverjum stað. Þannig hefur þetta verið og
þannig verður það."
Koma oft upp vandræði hvað lands-
mótshald varðar? „Það er löng hefð fyrir
Landsmótum UMFÍ, eða allt frá 1909.
Mótin verða sífellt stærri og glæsilegri. Það
er því ekki skrítið að upp geti komið sú
staða að viðkomandi sveitarfélag treystir
sér ekki í þá uppbyggingu sem til þarf. Það
hefur komið upp sú staða áður að
sambandsaðilar hafa skilað inn urnboði til
að halda Landsmót en það hafa ekki komið
upp vandræði vegna þess, frekar en nú."
Hvað kostar svona atburður eins og
Landsmót UMFÍ eru? „Það er erfitt að
segja til um það. Það fer eftir því hvað
menn vilja telja til kostnaðar. Mannvirkin
eru eitthvað sem er til staðar eftir mótin og
ekki byggð til einnar viku. Beinn rekstrar-
kostnaður er 30 - 40 milljónir króna, en
þátttökugjöld og styrktaraðilar hafa náð að
dekka þann kostnað að mestu. í seinni tíð
hefur verið hagnaður af Landsmótum
UMFÍ. Rétt er að geta þess að kynningar-
áhrif Landsmóta fyrir viðkomandi svæði
eru talin mikil. Það má því gera ráð fyrir að
ferðaþjónusta og slík starfsemi njóti góðs af
Landsmótinu þegar til lengri tíma er litið."
Hver er hlutur viðkomandi sveitarfélags
og síðan UMFÍ í kostnaði við Landsmóts-
hald? „Það er þannig að sambandsaðilar
UMFI sækja um að halda Landsmót.
Hlutverk viðkomandi sveitarfélags er að
sjá um mannvirkjagerð og þá uppbygg-
ingu sem nauðsynleg er. Síðan er það við-
komandi héraðssamband sem stendur að
mótinu sjálfu og er fjárhagslega ábyrgð í
þeirra höndum. Aðkoma UMFÍ er á þann
hátt að við eigum fulltrúa í landsmóts-
nefnd. En kostnaður UMFÍ við mótið sjálft
hefur ekki verið mikill en er að aukast og
reikna má með að við munum m.a. koma
meira að kynningu á mótinu í framtíðinni."
Hvaða gildi hefur Landsmót UMFÍ fyrir
hreyfinguna og íþróttalíf og æskulýðsmál
í landinu? „Landsmótin eru stolt okkar og
allra þeirra sem að þeim koma. Það er hægt
að líkja Landsmótunum við menningar-
viðburði sem er hluti af arfleifð okkar og
metnaði ungmennafélaga. Þannig á það að
vera og ég vonast til að æska framtíðar-
innar eigi eftir að njóta Landsmótanna um
ókomin ár."
Ertu bjartsýnn á að vel til takist með
Landsmót 2004? „Miða við þær undirtektir
og áhuga sem Landsmóti 2004 er sýnt þá er
ekki hægt annað en að vera bjartsýnn.
Aldrei fleiri hafa keppst um að fá að halda
Landsmót. Eins og ég hef áður sagt þá er
löng hefð fyrir mótunum og þau verða
stærri og glæsilegri. Sífellt fleiri atburðir
eru á mótunum sem hafa náð athygli
þjóðarinnar. Ég er sannfærður um að
Landsmótin eiga eftir að stækka enn og
eflast og 24. Landsmót UMFÍ árið 2004
verður enn glæsilega en þau fyrri.
Það er tæplega hægt að tala um vandræðagang þegar fimm
aðilar hafa óskað eftir að halda mótið.