Skinfaxi - 01.02.2002, Qupperneq 14
Um næstu verslunnarmannahelgi, 2.-4.
ágúst, verður haldið hið vinsæla Ung-
lingalandsmót (ULM) UMFÍ og fer það
fram á Stykkishólmi. Fyrsta mótið fór
fram á Dalvík 1992 að frumkvæði
heimamanna og tókst vel til. I fram-
haldinu var ákveðið að gera þetta að
reglulegum viðburði og er þetta nú í
fimmta skiptið sem mótið fer fram.
Jóhann Haukur Björnsson er fram-
kvæmdastjóra ULM 2002. Valdimar
Kristófersson hitti hann að máli, en
skipulagning mótsins er í höndum
HSH. Mótið er nú í fyrsta skipti opið
öllum.
Skemmta sér á heilbrigðan hátt
Unglingalandsmót UMFÍ á Stykkishólmi
Unglingalandsmót UMFÍ á
Stykkishólmi
Hvað hafa mörg unglingalandsmót verið
haldin til þessa?
„Þetta er fimmta Unglingalandsmót UMFÍ
sem haldið er. Fyrsta mótið fór fram á Dal-
vík 1992. Frumkvæðið kom frá heima-
mönnum og mótið tókst svo vel að ákveðið
var að halda fleiri mót. Síðan hefur mótið
verið haldið á Blönduósi, Reykjavík og
síðast, árið 2000, var það haldið í Vestur-
byggð og Tálknafirði."
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram í
Stykkishólmi í ár, hvenær er það haldið?
„Mótið er að þessu sinni í umsjá HSH,
þannig að allir íbúar í héraðinu koma að
því þótt að það sé haldið í Stykkishólmi.
Mótið er haldið í annað sinn um verslunar-
mannahelgina. Það var einnig gert á síð-
asta móti og féll sú tímasetning í góðan
jarðveg. Það má með sanni segja að þörfin
á uppbyggjandi skemmtun fyrir unglinga
og fjölskyldur þeirra sé mikil einmitt þessa
helgi. Mótið hefst á föstudegi og stendur
alla helgina."
Hver er tilgangurinn með Unglingalands-
mótum og hvemig hafa þau gengið?
„í öllu starfi, þar á meðal íþróttastarfi, er
nauðsynlegt að hafa markmið eitthvað að
stefna að og hlakka til. Unglingalandsmót-
in eru einmitt ætluð til að gefa unglingum
tækifæri að koma saman og gera það sem
þeim finnst skemmtilegt, að stunda íþróttir
og skemmta sér með jafnöldrum sínum á
heilbrigðan hátt. Mótið er einnig orðin al-
hliða fjölskylduskemmtun þar sem allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Það hefur
sýnt sig að stemningin á mótunum hefur
verið einstök og mótahaldið hingað til
verið til mikillar fyrirmyndar."
Fyrir hverja eru Unglingalandsmót?
„Allir á aldrinum 11-16 ára mega taka þátt
í íþróttakeppninni. Það er þó mun breiðari
hópur sem getur fundið eitthvað við sitt
hæfi á mótinu. Mikil skemmtidagskrá
verður í boði og þar kennir margra grasa.
Meðal annars er dagskrá fyrir fjölskyldur,
bæði foreldra og systkini. Ég myndi segja
að allt lífsglatt fólk geti fundið eitthvað við
sitt hæfi á mótinu.
í fyrsta skipti munu einnig erlendir þátt-
takendur verða á svæðinu. Ekki er ljóst
hversu margir þeir verða en ljóst er að um
töluverðan fjölda er að ræða."
Það er liðinn dágóður tími síðan undir-
búningur hófst fyrir mótið í Stykkis-
hólmi. Hvernig hefur honum miðað?
„Undirbúningur komst á fullt skrið þegar á
síðasta ári. Starfandi er öflug undirbún-
ingsnefnd sem skipuð er af Kjartani Páli
Einarssyni, Guðmundi Sigurðssyni, Guð-
rúnu Gunnarsdóttur, Gunnari Svanlaugs-
syni og Lilju Stefánsdóttur. Þegar hefur
mikil undirbúningsvinna farið fram og
margt er þegar klárt."
Opið öllum
Er ULM komið í fastar skorður eða
hyggist þið brydda upp á einhverjum
nýjungum?
„Það er hægt að fullyrða að mótið í
Stykkishólmi verður stútfullt af nýjungum.
Fyrst ber kannski að nefna nýjungarnar
varðandi þátttöku, í fyrsta skipti er mótið
opið öllum, ekki bara ungmennafélögum..
Það er hægt að fullyrða að mótið í Stykkishólmi verður stútfullt af nýjungum.
Fyrst ber kannski að nefna nýjungarnar varðandi þátttöku, í fyrsta skipti er
mótið opið öllum, ekki bara ungmennafélögum.