Skinfaxi - 01.02.2002, Page 21
vera orðið of gamalt í þetta. Það er
líka staðreynd að keppnisíþróttir
henta ekki öllum.
Ég hef oft rekist á gamlar fimleika-
stelpur sem sjá eftir því að hafa hætt
og langar til að reyna aftur en þora
það ekki eða þá að það er bara ekki
neitt í boði fyrir þær. Við ætlum á
Eins og áður sagði þá hafið þið náð góðum
árangri á undanförnum árum. Hefur þetta
smitað út frá sér í Garðabæ. Eru hópfimleikar
vinsælir hjá Stjörnunni?
„Já, þeir hafa notið vaxandi vinsælda undanfarin
ár. Það er þó slæmt hvað við erum lítið sýnilegar
í félaginu okkar. Við fáum enga æfingatíma á
kvöldin í íþróttahúsinu í Garðabæ og þurfum þar
af leiðandi alltaf að æfa hjá Ármanni. En
og við unnum Haustmót FSÍ með miklum
yfirburðum. Eftir jól þá höfum við átt við
dálítil meiðsl að stríða og misstum m.a út
tvo sterka stökkvara snemma í janúar.
Unnum þó Stjörnutromp í lok janúar.
Urðum í öðru sæti á Bikarmóti FSÍ í febrú-
ar og verð ég að viðurkenna að það var
mjög sárt að tapa þeim titli. En nú er
framundan
Ég hef oft rekist á gamlar fimleikastelpur sem sjá eftir því að hafa hætt og
langar til að reyna aftur en þora það ekki eða þá að það er bara ekki neitt í boði
fyrir þær. Við ætlum á næsta ári að stofna hóp í Stjörnunni sem yrði fyrir eldri
stelpur.
næsta ári að stofna hóp í Stjörnunni
sem yrði fyrir eldri stelpur, sem eru
reyndar ekki gamlar og eiga sjálfsagt
fullt inni og jafnvel einhverjar sem
dreymt hafa um að fara í fimleika
alla ævi en hafa aldrei látið verða af
því. Svo ætlum við að vinna út frá
þessu og reyna að fá alltaf fleiri og
fleiri inn í íþróttina.
Ég er rosalega hrifin af hópi sem er
að æfa nú í Ármanni. Það eru eldri
menn sem standa að honum, sumir
gamlir fimleikamenn en aðrir sem
hafa bara áhuga.“
Hópfimleikahópur Stjörnunnar
vissulega höfum við fengið mikla athygli í bæn-
um undanfarið enda árangurinn þannig að erfitt
er að líta fram hjá honum.“
Hvað með hópfimleikana á landsvísu? Eru
margir sem stunda þá og fer þeim fjölgandi?
„Já, það hefur orðið gríðarleg aukning undanfarin
ár. Mikið að félögum að koma upp út á landi og
við fögnum því að sjálfsögðu. Einnig hefur
aðstaðan hjá þeim félögunum verið að batna
mikið og það hjálpar til.“
Hvernig hefur ykkur gengið í ár og hvað er
framundan hjá ykkur?
„Þurftirðu að spyrja að þessu - jæja reynum að
láta þetta líta vel út! Keppnisárið byrjaði mjög vel
íslandsmótið sem verður tveggjadaga mót
haldið 22.-23. mars í Ásgarði Garðabæ og
þar ætlum við okkur sigur. Svo er stefnt á
Evrópumeistaramót í Frakklandi í haust.“
Þú ert á þriðja ári í lögfræði við Háskóla
íslands og kennir fimleika hjá Stjörn-
unni auk þess að æfa. Hvernig ferðu að
að koma þessu öllu heim og saman
þannig að það gangi upp?
„Það er ekki alltaf auðvelt og þá sérstak-
lega ekki um próftímann eins og flestir þeir
sem umgangast mig hafa fengið að finna
fyrir. En þetta eru allt hlutir sem mig langar
til að gera og því læt ég þetta einfaldlega
ganga upp.“