Skinfaxi - 01.02.2002, Side 28
Þroskandi að taka þátt í
starfi hreyfingarinnar
- segir Engilbert Olgeirsson framkvæmdastjóri HSK
UMFI gerði á dögunum sam-
ning við fimm Héraðssam-
bönd vegna þjónustumið-
stöðva á landsbyggðinni.
Héraðssamböndin eru HSK,
HSV, UMSB, UÍA og UMSE.
Skinfaxa lék forvitni á að vita
meira um þennan samning og
hafði því samband við Engil-
bert Olgeirsson framkvæm-
dastjóra HSK en Engilbert
stóð í ströngu við að und-
irbúa Héraðsþing HSK sem
fram fór á Flúðum ekki alls
fyrir löngu.
Samningur til að auka upplýsingastreymi
Ef þú segir mér aðeins frá Héraðsþinginu, hvernig gengur undir-
búningurinn? „Hann gengur bara vel. 51 félag og tvö sérráð hafa rétt á að
senda 116 fulltrúa á þingið og ég á von á að um hundrað manns sæki þingið.
A þinginu verða lagðir fram reikningar og við gefum út glæsilega ársskýrslu
þar sem greint er frá starfi sambandsins í máli og myndum. Síðan eru lagðar
fram tillögur frá stjórn og öðrum. En ég á von á rólegu og góðu þingi."
Hvaða upplýsingar eru þetta? „Hvað varðar
upplýsingar frá UMFÍ get ég nefnt Unglinga-
landsmót UMFÍ. Við komum til með að hjálpa
UMFI við að kynna mótið hér innan héraðs. Síðan
munum við kynna fundi, námskeið og þau verk-
efni sem UMFI er að vinna að hverju srnni í sam-
ráði og samstarfi við starfsmenn þjónustumið-
stöðvar UMFÍ."
í hverju felst þitt starf sem framkvæmdarstjóri HSK? „Starfið er mjög
fjölbreytt, en segja má að skipta megi starfinu í fjóra hluta, þe. starfsemi og
rekstur skrifstofunnar, þjónustu, samkskipti við hreyfinguna og upplýsinga-
streymi. Stór þáttur í minni vinnu er að starfa með stjórn, nefndum og ráðum
við að skipuleggja starfið og hefur mótahald á vegum HSK þar verið stærsti
þátturinn, en árlega höldum við um 60 héraðsmót í fjölmörgum greinum.
Utgáfu og kynningarmál hafa einnig verið vaxandi þáttur í mínu starfi.
Fundarhöld og fjármálahlið starfsins í samstarfi með gjaldkera eru einnig
stórir þættir í starfinu, en eins og ég sagði áðan er starfið mjög fjölbreytt og ég
gæti haldið lengi áfram upptalningu á þeim verkefnum sem ég þarf að sinna í
mínu starfi."
Út á hvað gengur þessi þjónustusamningur í aðalatriðum? „Hvað Héraðs-
samböndin varðar þá er þetta hugsað þannig að við tökum að okkur ákveðin
verkefni sem UMFI hefur verið með. Þó höfum við verið að uppfylla nokkur
atriði sem standa í þessum samningi eins og til dæmis upplýsingaskyldu
gagnvart UMFÍ og félögunum. Hvað þetta atriði varðar þá erum við með
heimasíðu þar sem slóðin er www.hsk.is, heilsíðu í Sunnlenska fréttablaðinu í
hverri viku og vikulegan þátt í Utvarpi Suðurlands þar sem þessar upp-
lýsingar koma fram."
Hver eru helstu verkefni UMFÍ á þjónustusvæði
HSK? „Helstu verkefni UMFÍ á sambandssvæðinu
eru um leið helstu verkefni UMFÍ á landsvísu.
Stærstu verkefni UMFÍ á undanförnum árum hafa
verið Landsmót UMFI og höfum við Skarphéðins-
menn lagt mikla vinnu í undirbúning og þátttöku,
sem hefur skilað glæstum sigrum. Á þessu ári er
það svo Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið
verður í Stykkishólmi um verslunarmannahelgina.
Vonast er til að þátttaka af okkar svæði verði góð,
en HSK hefur lagt áherslu á að mótið sé fyrir alla
fjölskylduna."
Hvernig hafið þið ákveðið að koma fram sem
talsmenn UMFÍ á ykkar þjónustusvæði? „Ýmsar
hugmyndir voru ræddar á síðasta stjórnarfundi hjá
okkur, en við eigum eftir að marka okkur ákveðna
stefnu í því. Eg geri ráð fyrir að fulltrúar þeirra
sambanda, sem gerðu samning við UMFÍ, muni
hittast fljótlega og ræða þessi mál. Árna Þorgils-