Skinfaxi - 01.05.2004, Side 8
GONGUM UM ISLAND
Helgi Arngrímsson, göngufrömuður, starfsmaður Göngum um ísland, hefur á
undanförnum fveimur árum safnað saman gönguleiðum í verkefnið. í vor
hefur Helgi unnið að því að merkja allar 300 gönguleiðirnar í verkefninu.
Göngum um ísland, lands-
verkefni UMFÍ, er nú hafið þriðja
sumarið í röð. Óhætt er að segja
að verkefnið hafi hlotið góðar
viðtökur á meðal landsmanna.
Leiðabækur UMFÍ, hafa runnið
út, tólf þúsund manns hafa skráð
nöfn sín í gestabækur á fjöllum
og vefur verkefnisins
www.ganga.is, stefnir í að njóta
mikilla vinsælda. Jóhann
Tryggvason, formaður Ung-
menna- og íþróttasambands
Austurlands, er formaður verk-
efnisstjórnar Göngum um ísland.
„Markmiðið með Göngum um
Island er að hvetja landsmenn til
gönguferða í náttúru landsins og
stuðla þannig að útivist, líkamsrækt
og aukinni samveru fjölskyldu og
vina," segir Jóhann. Verkefnið
Göngum um Island hófst árið 2002.
Unnið var að því að safna saman
gönguleiðum um land allt en skilyrði
fyrir inntöku gönguleiða í verkefnið
var að þær væru stuttar, aðgengi-
Göngum
legar og í alfaraleið, þannig að það
væri auðvelt fyrir almenning, að
stoppa á ferð sinni um landið og fara
í stutta gönguferð. Jóhann segir að
Leiðabók UMFÍ, með upplýsingum
um þessar gönguleiðir hafi notið
mikilla vinsælda. „Fyrsta árið var
bókin gefin út í 20.000 eintökum en
kláraðist á nokkrum vikum. í fyrra
var upplagið stækkað í 45.000 og
þegar leið á sumarið var upplagið
uppurið." Leiðabókinni er dreift
ókeypis um land allt og fæst á
upplýsingamiðstöðvum, sundlaug-
um, íþróttahúsum og bensínstöðvum
ESSO. Leiðabókin í ár er prentuð í
45.000 eintökum og má finna ýmsar
nýjungar í henni. Til dæmis er að
finna upplýsingar um fugla og
skyndihjálp auk allra gönguleiðanna.
„Þá verður í sumar efnt til Ijóðasam-
keppni í tengslum við verkefnið sem
og teiknimyndasamkeppni, en það
hefur verið mikið um það að
um Island
Jóhann Tryggvason, formaður
verkefnisstjórnar Göngum um
ísiand.
göngumenn hafi skrifað Ijóð eða
teiknað myndir þegar þeir hafa verið
komnir á toppinn." í haust verða
síðan valin áhugaverðustu Ijóðin og
myndirnar.
Samkvæmt nýlegri skoðana-
könnun er ganga önnur vinsælasta
afþreying landsmanna, næst á eftir
því að fara í sund. Jóhann segir að í
raun sé hægt að líta á gönguferðir,
ekki síður sem íþrótt en afþreyingu
og því megi jafnvel segja að ganga
sé vinsælasta íþrótt landsmanna.
„Miðað við þær undirtektir sem
verkefnið hefur fengið, þá má áætla
að það séu rúmlega 100.000 manns
á landinu sem stundi göngu sér til
heilsubótar."
Jóhann segir að verkefnið
Göngum um ísland sé í raun þríþætt.
Annars vegar Göngum um Island þar
sem verið er að hvetja almenning í
stuttar gönguferðir og hins vegar
Fjölskyldan á fjallið þar sem verið er
að hvetja fólk í fjallgöngu og loks
www.ganga.is sem er vefur verkefn-
isins. Jóhann segir að í heildina sé
þetta verkefni uppá tæpar sjö
milljónir króna sem UMFÍ standi
straum af. „Við höfum leitað til aðila
um samstarf og stuðning og hefur
það gengið vel. Það verður þó
eitthvað sem stendur út af borðinu,
aðallega kostnaður vegna ganga.is,
en við erum vongóðir um, í Ijósi
vinsælda vefsins að við náum að
selja auglýsingar á hann," segir
Jóhann Tryggvason formaður verk-
efnisstjórnar Göngum um ísland.
UMFÍ - Ræktun lýðs og lands
8