Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 12
www.ganga.is Það sem er spennandi við ganga.is er að fínna má 800 gönguleiðir á gagnvirku landakorti, þar sem hægt er að þysja sig um landakortið, skoða staðsetningar og sjá nánari upplýsingar. Páll Guðmundsson, kynningarfulltrúi UMFÍ og ritstjóri Skinfaxa, á toppi Snæfellsjökuls. Á vélsleðanum situr Unnar Steinn Bjarndal, formaður Ungmennaráðs UMFÍ, ásamt finnskri fylgdarmær. Ungmennafélag íslands, Ferðamálaráð íslands og Landmælingar Islands undirrituðu í vetur sam- komulag um samstarf að vefnum www.ganga.is. Vefurinn verður opnaður með formlegum hætti nú í júlí en var laumað í loftið í júní. UMFÍ hefur umsjón með vefnum. Páll Guðmundsson, kynningarfulltrúi UMFÍ, er ritstjóri á ganga.is. „Forsaga ganga.is er sú að árið 2002 fór UMFÍ af stað með landsverkefnið Göngum um Island og var verkefninu stýrt frá Þjónustumiðstöð UMFÍ á Egilsstöðum, þar sem framkvæmdastjóri UÍA, Arngrímur Viðar Asgeirsson leiddi verkefnið. Arngrímur er maður mjög hugmyndaríkur og hafði sjálfur fengið sér lénið ganga.is og lánaði UMFI þetta lén í vetur þegar Þjónustumiðstöð UMFI tók að sér umsjón með Göngum um ísland. Páll segir að Ferðamálaráð hafi komið inn með upplýsingar um 500 gönguleiðir sem það hefur safnað saman og Landmælingar leggi til kort af gönguleiðum, auk þess sem aðstandendur verkefnisins hafi unnið sameiginlega að þróun og útliti vefsins og ýmsum upplýsingum sem finna megi á ganga.is. Þá leggur UMFÍ til allar upplýsingar úr verkefninu Göngum um ísland, en það eru meðal annars 300 stuttar gönguleiðir sem Helgi Arngrímsson hefur safnað fyrir verkefnið sl. tvö ár. „Það sem er mjög spennandi við ganga.is er að finna má þessar 800 gönguleiðir á gagnvirku landakorti, þar sem hægt er að þysja sig um landakortið, skoða stað- setningar og sjá nánari upplýsingar." Páll segir að þegar byrjað hafi verið að vinna að undirbúningi vefsins, snemma í vetur, hafi komið í Ijós að ný og endurbætt tækni í sérstöku flash umhverfi byði upp á skemmtilega möguleika. „Við unnum með Teikn á lofti á Akureyri, sem hefur á undanförnum árum þróað kerfi sem heitir Inter-Map og er það tæknin sem er notuð við að skoða sig um á þessu gagnvirka landakorti. Á ganga.is eru auk þessa gagnvirka landakorts, margvíslegar upplýsingar fyrir göngu- og útivistarfólk. Má þar nefna upplýsingar um friðlýst svæði, umgengnisreglur, skála og neyðarskýli, skipulagðar gönguferðir, búnað, fróðleiksmola, og margt fleira. Þar er einnig spjallsvæði og gefst notendum kostur á að miðla af reynslu sinni, koma með ábendingar um gönguleiðir, skrifa ferðasögur eða annað," segir Páll. Þá er einnig hægt að senda inn myndir úr gönguferðum á vefinn, fréttir um gönguferðir eða annað sem varðar göngu, ferðir og útivist. www.ganga.is UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll 12

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.