Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 31
SAGA ÞRASTASKOGAR Nýr Þrastalundur. Mynd/Einar Elíasson, athafnamaður og flugkappi á Selfossi. Þrastalundur Sautjón órum eftir að UMFI eignaðist Þrastaskóg hyllti loks undir þann draum að hús (eða hótel) rísi af grunni í skóginum. Árið 1928 tókust samningar milli stjórnar UMFI og Elínar Egilsdóttur, gesthúsa- eiganda í Reykjavík um byggingu gesthúss hótels í vestasta hluta landareignar samtakanna og skildi það heita Þrasta- lundur. Byggt var eftir teikningu í íburðarstíl og var hönnuður hússins Þorleifur Eyjólfsson, húsasmíðameistari í Reykjavík. Byggingaframkvæmdir hófust um sumarmól 1928 og var húsið tekið í notkun um mitt sumar og fullfrógengið í júlílok. Þrastalundur þótti fallegt og vel útbúið hús ó þeim tíma, bæði utan dyra sem innan. Svokölluð baðstofa, eða stór salur var byggður við húsið 1930. Sambands- þing UMFÍ voru haldin í Þrastalundi 1933 og 1936. Þrastalundur brann til kaldra kola síðla vetrar 1942 og var þó bústaður breska setuliðsins sem hér var. Þrastalundur hinn fyrsti stóð því aðeins í 14 ór. Þrastalundur II Bygging Þrastalundar nr. II hófst 1964 og lauk 1965. Hús þetta var upphaflega hugsað sem bróðabirgða hús og bar byggingin þess merki að gerð og útliti. Arkitekt var Skúli Norðdal, en smiðir við bygginguna feðganir Þórður Jónsson og Jón Þórðarson ó Selfossi. Húsið var tekið í notkun um verslunarmannahelgina 1965 og voru þó liðin tæp 23 ór fró því að gamli Þrastalundur brann. Hafsteinn Þorvaldsson hafði eftirlit og umsjón með byggingafram- kvæmdum. Um rekstur veitingaskólans sóu fyrstu tvö órin, Hafsteinn Þorvaldsson og eiginkona hans Ragnhildur Ingvarsdóttir. Fyrra órið fyrir UMFÍ og seinna órið fyrir HSK. Fró þeim tíma var veitingaskólinn leigður ýmsum aðilum utan hreyfingarinnar sem allir róku hann myndarlega í góðri samvinnu við UMFI. Þrastalundur III Nú hefur Þrastalundur hinn þriðji risið af grunni, glæsileg bygging og boðar nýja tíma og meiri stórhug til framkvæmda en óður hafa sést hjó samtökum okkar UMFI. Ætla mó að þessi unaðsreitur okkar verði ó komandi órum vaxandi aðdróttarafl fyrir þéttbýlissvæðin hér suðvestanlands og raunar landsmenn alla. Landsvæðið okkar er stórt, með fallegum og gróskumiklum skógi, göngustígum við allra hæfi, umlukt Álftavatni að norðan og Soginu að vestan. Það er gaman að geta þess að ungu hjónin sem nú í dag taka við rekstri í Þrastaskógi, tengjast bæði UMFI í gegnum feður sína. Snorri er sonur Sigurfinns Sigurðssonar fró Birtingaholti, fyrsta félagsmólakennara UMFI og Sigrún kona hans er dóttir Olafs Tr. Ólafssonar sem stýrði lokagerð leik- vangsins. Merk tímamót framundan Á næstu órum heldur UMFI hótíðlegt eitthundrað óra afmæli ungmennafélags- hreyfingarinnar. Eitt hundrað óra afmæli UMFI með Landsmóti í Kópavogi 2007. Eitthundrað óra afmæli landsmótanna með landsmóti ó Akureyri 2009, það sama ór eitthundrað óra afmælis mólgagns samtakanna Skinfaxa. Og nú lætur maður sig dreyma, órið 2011 eru liðin hundrað ór fró því að Tryggvi Gunnarsson gaf UMFÍ Þrastaskóg. Hver verða markmið hinnar kraftmiklu forystu UMFI með uppbyggingu og óbúð ó þessari landareign sinni. Ekki kæmi mér ó óvart að sjö órum liðnum myndi samstarf þeirra við skógfræðinginn og veitingamanninn Snorra Sigurfinnsson og Sigrúnu Ólafsdóttur hafa leitt til ótrúlegra ævintýra í Þrastaskógi, bæði í uppbyggingu og fjölþættum rekstri. Fram að þeim tíma læt ég mig dreyma. Eg óska eigendum og rekstraðilum hins nýja Þrasta- lundar sem og starfsliði öllu gæfu og gengis með þessa óbúð. Ungmennafélags- hreyfingin er og hefur alltaf verið eitt af óskabörnum þjóðarinnar. Það verður hlutverk ykkar ó þessum helga stað, hér eftir sem hingað til, að lóta gesti og gangandi fó ótvíræða vitneskju um það , að hingað séu þeir velkomnir og að hér muni kappkostað að lóta þeim líða vel, bæði utanhúss sem innan. íslenski fóninn og Hvitblóinn við hún svo oft sem verða mó. Þó fara fóir hjó garði, enda óningastaður í fremstu röð ó landsvísu. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður U.M.F.Í. Nýr Þrastalundur. Mynd/Einar Elíasson, athafnamaður og flugkappi á Selfossi. 31 SKINFAXI - tímarit um íþróttir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.