Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.05.2004, Blaðsíða 26
LANDSMOTIÐ I ÞJOÐLEIKHUSINU Umf. Efling gerði góða ferð suður með Landsmótið, „óhugaverð- ustu óhugaleiksýningu órsins", og troðfyllti Þjóðleik-húsið á tveim sýningum, þar sem um 900 manns mættu á staðinn. Þar með hafa um 3100 manns séð sýningar á Landsmótinu. Fyrri sýningin var einskonar „Þingeyingamót" þar sem Þing- eyingar að fornu og nýju streymdu í húsið og var að sjálfsögðu glatt á hjalía. Viðtökur áhorfenda voru frábærar. í sýningarlok risu þeir úr sætum og hylltu leikara og aðra aðstandendur sýningarinnar. Formaður Landsmótsnefndar ávarpar gesti Landsmóts, formann Fram- sóknarflokksins, varaformann Framsóknarflokksins, ritara Framsóknar- flokksins, kaupfélagsstjórann, sýslumanninn og forsetann... Hver bauð Honum? Efling troðfyllti Þjóðleikhúsið tvívegis Troðfullt var einnig á sunnudags- kvöld og m.a. fengu leikstjóri og annar höfundur ekki sæti og margir urðu frá að hverfa. Forseti íslands kom á sýninguna og lét sér greinilega vel líka ýmsar vísanir til embættisfærslu hans í texta verksins. „Forsetanum" í Landsmótinu var m.a. boðið blátt Ópal, sem hann synjaði og vísaði svo til þjóðarinnar. Viðtökur á þessari seinni sýningu voru ekki síðri en á þeirri fyrri. I verkinu er víða vikið að Fram- sóknarmönnum og þeirra ágæta flokki. Greinilegt var að Framsóknar- mönnum líkaði þetta stórvel, og þeir sýndu það í verki með því að bjóða Eflingarliðinu, um 70 manns, til hófs að lokinni sunnudagssýningunni, þar sem Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra og þingmaður Norðurlands- kjördæmis og Birgir Jón Jónsson voru gestgjafar. Jón er reyndar þriðji Framsóknarráðherrann sem sér Landsmótið. Var ekki annað að sjá en norðanmenn væru flestir orðnir harla hallir undir framsóknar- maddömuna, ef þeir hafi ekki verið það fyrir, allir með tölu. JS Norðanmenn og sunnanmenn verða vinir að lokum. Ástin blómstrar og rómantíkin og ungmennafélagsandinn svífa yfir vötnum. Vínandinn er farinn á Landsmót hestamanna. Landsmótsstemmning á landsmóti á Norðurmýri. Landsmót, leikrit leikdeildar Umf. Eflingar var valið áhugaverðasta leiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. UMFI - Ræktun lýðs og lands 26

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.