Skinfaxi - 01.05.2004, Qupperneq 23
FORMAÐUR TINDASTOLS
Jóhann Tryggvason, formaður ÚÍA, Páll Ragnarsson og Einar Kristján
Jónsson, formaður Umf. Vesturhlíðar í heimsókn á Vesturfarasetrinu á
samráðsfundi UMFI í vor.
Landsmót fyrir dyrum
Páll telur að Landsmótin hafi mikið
gildi fyrir íbúa dreifbýlisins og telur
að ungmennafélagshreyfingin hafi
það líka og þess vegna eigi hún að fá
að starfa áfram á þeim grundvelli
sem hún hefur starfað á. „Lands-
mótin eru kannski toppurinn á starfi
ungmennafélaganna þar sem þau
koma saman og standa að þessum
stóru íþróttamótum sem Landsmótin
eru." Páll segir að Landsmótið nú
leggist vel í hann. „Þetta mót sem og
önnur byggist að miklu leiti á veðri.
Ef við stöndum saman um að hafa
þetta gott mót þá verður þetta gott
mót. Ef menn vilja standa í einhverju
þrasi, þá gera menn það. Miðað við
ungmennafélagsandann sem hefur
ríkt á þessum mótum þá kvíði ég
engu."
Ungmennafélagsandinn?
Páll er spurður að því hvað hann telji
að ungmennafélagsandinn standi
fyrir. „Það er náttúrulega að vinna
að hag æsku þessa lands og landsins
sjálfs, og leysa málin með samstilltu
átaki. Þetta snýst um að vera með,
taka þátt og gefa af sér til
samfélagsins og þá um leið til
þjóðarinnar, því ég held að það fari
saman." Ekki er laust við að það
færist roði í kinn og Páli hitni í hamsi
þegar hann fer að tala um ung-
mennafélagsandann. „Ungmenna-
félagshreyfingin á að fá að starfa í
friði á þeim vettvangi sem hún starfar
á í dag. Ég er þess fullviss að ef
ungmennafélagshreyfingin leggst
undir einhverja elítu í Reykjavík þá
muni landsbyggðin gleymast. Við
eigum ekki og megum ekki láta vaða
yfir okkur í þessu máli og koma fram
af einhverri minnimáttarkennd og
eigum að gæta þess að ungmenna-
félagshreyfingin sé ekki lögð undir
vald einhverra sjálfskipaðra snillinga
Reykjavíkurveldisins." Páll segir að
það sé Ijóst að áhugi íþróttabanda-
laganna að komast inn í UMFI sé
eingöngu til þess að ná þar völdum
og sölsa þar með undir sig þeim
peningum sem eru til skiptanna úr
lottóinu. „Ég held að ungmenna-
Páll Ragnarsson, formaður Umf.
Tindastóls, fararstjóri í skoðunarferð
á samráðsfundi, á leiðinni yfirum,
eins og Skagfirðingar segja
stundum.
samböndin vilji ekki þessa breytingu.
Ég veit ekki af hverju þau telja sig
skulda íþróttabandalögunum eitt-
hvað. Það er svo margt annað sem
er misskipt í íþrótta- og ungmenna-
félagshreyfingunni. Ef við berum
saman ferðakostnað, kostnað við
íþróttaiðkun, möguleika og tækifæri
til að leika með úrvalshópum,
aðgang að fjármagni svo eitthvað sé
nefnd. Þó við fáum eitthvað meira úr
lóttósjóðum þá eru það smámunir
miðað við annan kostnað og
héraðssamböndin þurfa ekki að líta
svo á að þau séu að ræna einhverju
frá íþróttabandalögunum. Þetta er
bara leiðrétting á þeirri skekkju sem
fyrir er í hreyfingunni." Páll segir að
gagnvart þessari stefnu ISI og
íþróttabandalaganna þá eigi ung-
mennafélögin hreinlega að setja
hnefann í borðið og segja nei takk.
Páll segir að þetta séu lög frá Alþingi
um lottóskiptinguna og það sé ekkert
meira um það að semja við ISI. „Ég
skora á forráðamenn héraðs- og
ungmennasambanda að standa
saman gegn ásókn ISI og IBR um
yfirtöku á Ungmennafélagi Islands.
Ég held að UMFÍ geti borið höfuðið
hátt vegna sinnar starfsemi og tel að
dreifbýlið þurfi á henni að halda.
Fyrst að Landsmót UMFI er að fara í
hönd þá vil ég skora á
ungmennafélaga að fjölmenna á
Landsmótið og standa saman í
fjölbreyttri keppni, og halda heim að
loknu móti, ánægðir og glaðir,
ákveðnir að vinna að framgangi síns
ungmennafélags og sinnar
heimabyggðar," segir Páll Ragnars-
son formaður Ungmennafélags
Tindastóls.
23
SKINFAXI - tímarit um íþróttir