Skinfaxi - 01.05.2004, Side 28
OPNUN ÞRASTALUNDAR
Byggingarnefnd Þrastalundar, verktakar, styrktaraðilar ásamt Hafsteini Þorvaldssyni og Ragnhildi Ingvarsdóttur.
Nýr Þrastalundur formlega tekinn í notkun
Nýr og glæsilegur
Þrastalundur, rúmlega
400 fm. veitingastaður í
Þrastaskógi var vígður
laugardaginn 12. júní.
Húsið kemur í stað eldra
húsnæðis, sem var orðið
40 ára. Þrastalundur er í
eigu Ungmennafélags
íslands.
Framkvæmdir við
Þrastalund hófust í
nóvember sl. þannig að
óhætt er að segja að fram-
kvæmdir hafi gengið mjög
vel fyrir sig. Byggingar-
verktakinn TAP á Selfossi
hefur annast framkvæmdir
auk fjölda undirverktaka.
UMFI leigir út reksturinn í
Unnar Steinn Bjarndal
formaður Ungmennaráðs
UMFÍ og Fanný Axels-
dóttir.
Þrastalundi og í vetur var
undirritaður samningur við
Snorra Sigurfinnsson veit-
ingamann á Selfossi um
reksturinn. Hann leigir
UMFÍ - Allir með ------------
F.v. Ásdís Helga Bjarnadóttir UMSB, Einar Haraldsson
Keflavík, Hringur Hreinsson UMSE, öll í stjórn UMFÍ
ásamt Sigurbirni Gunnarssyni fyrrverandi gjaldkera
UMFÍ og Markúsi ívarssyni í stjórn HSK.
jafnframt Þrastaskóg og af
því tilefni var rifjuð upp 6.
gr. reglna um Þrastaskóg
frá 1933, en þar segir að
umsjónarmaður skógarins
skuli einnig vera eftirlits-
maður Þrastalundar fyrir
hönd UMFÍ.
Björn Bjarndal Jónsson,
formaður Ungmennafélags
íslands sagði við vígsluna
að í Þrastaskógi hefði
blómstrað veitingastarf-
semi í áratugi, ekki síst
vegna þess hve Þrasta-
skógur liggi vel við umferð.
Hann benti á að Þrasta-
lundur hefði útsýni sem fáir
staðir gætu státað af, yfir
skóginn og Sogið. „Vatnið,
skógurinn, hraunið, fjallið
og kyrrðin ásamt mörgu
öðru gera Þrastaskóg að
unaðsreit fyrir alla þá sem
unna náttúru landsins."
Sagði Björn að með
tilkomu nýja hússins
opnuðust ný tækifæri og
aðrir möguleikar í starfs-
semi í tengslum við útiveru
í skóginum, við umhverfis-
mál og menningu. Þegar
hafi verið opnuð mynd-
listasýning í nýja húsinu
Björn B. Jónsson formaður
UMFÍ.
eftir Jón Inga Sigur-
mundsson, sem mun
standa yfir næstu vikur.
Hann sagði að uppbygg-
ingin muni skila nýjum
áherslum í starfi UMFÍ og
verða öllum Ungmenna-
félögum hvatning.
Böðvar Pálsson sveitarstjórnarmaður í Grímsnes- og
Grafningshreppi og Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri
Grímsnes- og Grafningshrepps.
28