Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2004, Page 30

Skinfaxi - 01.05.2004, Page 30
ÞRASTALUNDUR--------------------------- Ávarp Hafsteins Þorvaldssonar við vígslu Þrastalundar, 12. júní 2004 Stjórn ungmennafélags íslands, góðir gestir! I dag fagnar UMFI mestu fram- kvæmd í sögu samtakanna frá upp- hafi, þegar tekin er í notkun Þrasta- lundur III. Glæsileg bygging og reisu- leg. Við þessi tímamót verður ekki Hjá því komist að að rifja upp nokkra þætti í uppbyggingu Þrastaskógar. Gjöfin mikla Athafnamaðurinn Tryggvi Gunnarsson gaf UMFI Þrasfaskóg á 76. afmælisdegi sínum 18. október 1911. Fyrir þessa rausnarlegur gjöf var hann gerður að fyrsta heiðursfélaga UMFÍ. Guðbrandur Magnússon sem þá var formaður UMFI hafði á orði að þetta væri stærsta viðurkenning sem ungmennafélögin hefðu hlotið. Guðmundur Davíðsson Það má með sanni segja að næsti formaður UMFÍ Guðmundur Davíðsson sem kosinn var árið 1912, hafi verið réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Guðmundur var mikill skógræktarmaður og áhugamaður um landvernd og alls náttúrfars. Hann gaf líka landsvæðinu nafn, með svofelldum rökstuðningi: „Þrastaskóg skulum við kalla hann ungmennafélagsskóginn í Ond- verðarnesi." Það er líka fróðlegt að rifja upp hugmyndir Guðmundar frá þessum fyrstu frumbýlisárum í skóginum og þá möguleika sem hann taldi blasa við að hægt yrði að framkvæma í Þrastaskógi í tímans rás. Má þar nefna húsbyggingu tengda ferða- þjónustu, skógræktanámskeið, sem hann raunar stóð fyrir á þeim tíma, bátsferðir til skemmtunar á Alftavatni, veiði og margt fleira. Það er líka gaman að geta þess til fróðleiks, að Guðmundur Davíðsson mun fyrstur manna hafa vakið athygli á því að gera Þingvallasvæðið að þjóðgarði og friða þar jurtir og dýr og að halda þjóðgarðinum við eins og náttúran vildi frá honum ganga undir skynsamlegri vernd mannshandar- innar. Framkvæmdir mismiklar frá ári til árs Framkvæmdir og ræktun í Þrastaskógi hafa alla tíð verið með nokkrum hléum, en jafnan hefur þetta starf risið upp á ný og þá ósjaldan tengt ákveðnum forystumönnum samtakanna og sérstökum áhuga- mannahópum. Þá minnist ég þess líka að hvatningargreinar í málgagni samtakanna Skinfaxa hafa oft orðið undanfari slíkra framkvæmdatimabila, sem fylgt hefur verið eftir með samþykktum sambandsþinga UMFÍ. Þrastaskógsnefndir hafa verið kosnar til að fylgja samþykktunum eftir. Aðalsteinn Sigmundsson Upp úr 1921 kemur til sögunnar mikill baráttumaður fyrir málefnum ungmenna- félagshreyfingarinnar, með Þrastaskóg sem sitt aðaláhugamál, Aðalsteinn Sigmunds- son skólastjóri á Eyrabakka. Síðar skógarvörður í Þrastaskógi 1924-1935, formaður UMFÍ 1930-1938 og ritstjóri Skinfaxa 1930 - 1941. Ekki vinnst tími til þess hér og nú að greina frá öllu því mikla starfi sem þessi dugmikli forystumaður lagði samtökunum til í sinni stjórnartíð en Aðalsteinn Sigmundsson lést af slysförum um aldur fram 1942. Samtökin hafa reist honum minnisvarða, hér á landareign sinni í Þrastaskógi. Minnisvarðinn var gerður af Ríkharði Jónssyni, þeim mikla listamanni og stendur fyrir miðjum leikvanginum inni í skóginum, ofan við Tryggvatré og var af- hjúpaður 15. september 1957. Þórður Pálsson Sumarið 1935 kemur til starfa nýr skógarvörður í Þrastaskógi, Þórður Pálsson frá Eyrabakka, aðeins 14 ára gamall. Hann hafði þá í sex ár verið aðstoðardrengur Aðalsteins Sigmundssonar við störf í skóginum og mun síðan hafa meira og minna gengt þessu starfi til ársins 1973. Þórður var því umsjónarmaður Þrasta- skógar meira og minna í 44 ár. Ohætt er að fullyrða að enginn einstaklingur í 93 ára sögu skógarins á þar sambærilegan ræktunarferil að baki enda hlaut Þórður heiðursviðurkenningu frá Skógræktarfélagi Islands á sínum tíma, fyrir frábæra verk- stjórn og skógræktarstörf í Þrastaskógi. Leikvangurinn Leikvangurinn í Þrastaskógi á líka sína sögu. Aðalhvatamaður að gerð hans var Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi ríkisins og kaus hann að kalla svæðið leikvang fremur en íþróttavöll. Leikvanginn teiknaði Gísli Halldórsson, arkitekt og fyrrverandi forseta íþróttasambands Islands. Vinna við leikvanginn hófst sumarið 1961 og stóð í 9 ár, lauk á haustdögum 1970. Umsjón með framkvæmdum fyrst í stað hafði Þórður Pálsson, skógarvörður, en um seinni hluta framkvæmdanna og lokaáfangann sá Hafsteinn Þorvaldsson um, fyrrverandi formaður UMFI og vann hann sömuleiðis við gerð leikvangsins í nokkur sumur. Verkstjóri við lokaframkvæmdirnar var Ólafur Tr. Ólafsson, garðyrkjubóndi að Stuðlum í Ölfusi. Frá þessum tíma hafa farið fram ýmsar lagfæringar á leikvanginum og við hann. Vegur verið lagfærður að svæðinu og bílastæði aukin. Hreinlætisaðstöðu komið upp og skýli fyrir gæslumann. Gangstígar lagðir og merktir og myndarlegur stígur lagður upp að minnisvarða Aðalsteins. UMFÍ - Þátttaka er Iífsstí11 30

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.