Skinfaxi - 01.08.2004, Qupperneq 8
UNGMENNA- OG TÓMSTUNDABÚÐIR UMFÍ
Nemendur verði hæfari til
að taka þátt í félagsstarfi
Bjarni Cunnarsson íþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi á Dalvík hefur verið ráðinn for-
stöðumaður Ungmenna- og tóm-
stundabúba UMFI ab Laugum í
Sælingsdal. Verkefnið er samstarfsverk-
efni UMFI, Dalabyggðar og fleiri, með
stuðningi ríkisins. Markmið Ungmennabúð-
anna er að þjálfa upp unglinga til þátttöku i
félags- og tómstundastarfi og miðast starf
Ungmennabúðanna við námskeið þar sem
nemendur úr 9. bekk grunnskólanna dvelja
að Laugum í 5 daga. Ungmennabúðirnar
hafa þegar verið kynntar fyrir grunnskólun-
um og margir þeirra skráð 9. bekki í búð-
irnar. Það eru sveitarfélög viðkomandi skóla
sem kosta námið að hluta, auk þess sem
rekstur búðanna er styrktur af ríkinu. Bjarni
hefur þegar hafið störf við undirbúning en
stefnt er að því að prufukeyra námskeið fyrir
áramót. Starfsemin fer síðan í fullan gang í
janúar. Sigurður Guðmundsson, íþróttafull-
trúi í Mosfellsbæ er hugmyndasmiðurinn að
baki Ungmennabúðunum og hefur hann
setið í undirbúningsnefnd, ásamt Sæmundi
Runólfssyni, Kristjönu Aradóttur, Guðnýju
Dóru Gestsdóttur og Haraldi L. Haraldssyni
sveitarstjóra Dalabyggðar. Skinfaxi hitti
Bjarna á Þjónustumiðstöð UMFI og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar.
Bjarni Gunnarsson, forstö&uma&ur
Ungmennabúðanna a& Laugum,
bregður á leik við sögusetrið Eiriksstaði
Hvernig leggst starfið i þig?
„Afar vel. Þetta er mjög spennandi verkefni,
ekki síst út af staÖsetningunni, en Laugar í
Sælingsdal er sannkölluð náttúru- og útivist-
arperla sem býður upp á mikla möguleika til
tómstunda og útivistar."
Hvernig verður starfinu háttað i Ungmenna-
búðunum?
„Það á að reyna að gera þetta þannig að
fræðslu og þjálfun í tómstunda- og félags-
starfi verður náð fram í gegnum ýmis verk-
efni, meðal annars með íþróttum, útivisf og
klúbbastarfi og rækta þannig samskiptin
milli nemenda með tómstundastarfi," segir
Bjarni.
Hvernig er dagskráin yfir daginn í búðun-
um?
„Þetta verða blönduð viðfangsefni frá
morgni til kvölds þar sem stuðst er við
óhefðbundnar kennsluaðferðir. Seinni part
dags og á kvöldin verður meiri áhersla á
léttleika og skemmtilega afþreyingu," segir
Bjarni. Honum finnst kostur að Laugar eru á
mjög sögufrægu svæði þar sem nemendur
eiga möguleika á að upplifa sögu lands á
mjög sterkan háft, meðal annars með
verkefnum og heimsókn að Eiríksstöðum.
Bjarni segir að það sé von UMFI og þeirra
sem að verkefninu standa að með þátttöku í
Ungmennabúðunum verði nemendur hæfari
til að faka þátt í félagsstarfi, hvort sem er í
skólanum, íþróttafélögum, ungmennafélög-
um eða öðrum félagasamtökum.
Ungmennabúðirnar að Laugum hafa hlotið
góð viðbrögð á meðal skólastjórnenda um
land allt. Nokkrir skólar hafa þegar skráð
sina bekki til þátttöku og aðrir eru að skoða
dagsetningar. „Eins og er getum við tekið á
móti 60 nemendum í einu en stefnt er að því
að við getum tekið á móti 90 nemendum í
einu." Bjarni segir að staðsetning skólabúð-
anna sé mjög góð. „Það eru tveir fímar til
Reykjavíkur, tæpir fjórir til Akureyrar og þó
það sé lengra austur, þá erum við samt að
vonast eftir nemendum frá öllum landshlut-
um."
Bjarni segir að á næstunni verði kynning-
arbæklingur sendur í alla grunnskóla. „Við
erum líka með heimasíðuna
www.umfi.is/laugar og netfangið
laugar@umfi.is." Bjarni mun fylgja kynn-
ingarbæklingnum eftir með heimsóknum í
grunnskóla og jafnframt er hægt að hafa
samband við Bjarna i sima 861 2660.
UMFÍ - Þátttaka er lifsstíll
8