Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2004, Síða 11

Skinfaxi - 01.08.2004, Síða 11
BLÁTT ÁFRAM Fjöldi fólks mætti á Andafjör í Elliðaárdal 4. september sl. Andafjörið var haldið til styrktar verkefninu Blátt áfram. gegn kynferðislegri misnoktun barna Blátt áfram hefur fengið leyfi höfunda til þess að þýða bæklinginn yfir á íslensku og dreifa inn á öll heimili á landinu. Með bækl- ingnum viljum viS efla forvarnir gegn kyn- ferSislegu ofbeldi á börnum meS því aS höfSa til ábyrgSar fullorSinna sem aS börn- um og unglingum koma. Að viS fullorðna fólkið öxlum þá ábyrgð að ræða um þetta viðkvæma mál á jákvæðan og fræðandi hátt viS börnin," segir Helga GuSjónsdóttir. I bæklingunum er okkur kennt þetta meS því aS fara í gegnum 7 skref en þau eru: /. Lærðu staðreyndirnar og áhætturnar. 2. Fækkaðu tækifærunum. 3. Talaðu um það. 4. Vertu vakandi. 5. Búðu þér til áætlun. 6. Fylgdu grunsemdum eftir. 7. Gerðu eitthvað í málinu. fTeimasíðan www.blattafram.is - hvað er á henni? „A heimasíSunni er allskyns fróðleikur sem tengist málefninu. Þar er einnig bent á aSstoS, þú getur sent spurningar og fengið svör, komið inn á stuðningshópa, styrktar- aSila verkefnisins, myndir frá starfi Blátt áfram, tenglar, póstlisti, bækur og fræSsla og svo síðast en ekki sist hvaS þú getur gert til aS sýna stuSning við málefniS m.a. með því aS senda áskorun til þingmanna." Hverjir eru í stjórn verkefnisins? „I stjórn verkefnisins eru auk mín, Asdís Helga Bjarnadóttir stjórnarmaður í UMFI og systurnar Sigríður og Svava Björnsdætur. Þær eru báðar mjög duglegar og eiga stór- an þátt í því að verkefninu hefur verið tekiS eins vel og raun ber vitni. ÞaS er von mín aS þær geti haldið áfram að vinna sem lengst aS verkefninu, þær skortir hvorki áhuga né hugmyndir." Andafjör vakti mikla athygli - hugmynd, til- gangur, árangur, þátttaka ? „Andafjör var fjáröflun sem staðið var aS til styrktar verkefninu Blátt áfram. Þetta var fjölskylduleikur sem fram fór í ElliSaárdaln- um 4. september síðastliSinn og tókst mjög vel. Hugmyndin er fengin frá Bandarikjun- um og gengur út á það að þú keyptir þér önd eSa endur og meS fylgdi happdrættis- miði. Þú mættir síðan í Elliðaárdalinn um- ræddan dag með öndina þín og miSann. NúmeriS á miSanum var skrifað á öndina, þú hélst miSanum en öndin fór í net ásamt öllum hinum öndunum. Borgarstjórinn í Reykjavik, Þórólfur Arnason, sleppti síðan öllum öndunum í einu i ána og þar hófu þær kappsund niður ána aS marki sem búið var að setja upp. Fimmtíu fyrstu endurnar fengu vinning og var fyrsti vinningur ferð fyrir tvo í tvær vikur að eigin vali með Urval/Utsýn. MarkmiðiS meS Andafjörinu var í raun þríþætt. I fyrsta lagi var þetta fjáröflun, í öðru lagi til að vekja athygli á málefninu og í þriðja lagi kynning fyrir UMFI." „Skemmst er frá því aS segja aS árangurinn var góður hvað alla þessa þætti varðar og þátttakan fór fram úr björtustu vonum þar sem þessi leikur er í fyrsta skipti reyndur hér á landi. Mér fannst mjög gaman þennan dag og ég tók eftir aS það fannst öllum hinum líka." Upplýsingar „Eg vil hvetja fólk til þess að fara reglulega inn á heimasíðu Blátt áfram og fylgjast með því sem veriS er aS gera og vera dugleg við aS segja öSrum frá verkefninu. ÞaS var orS- iS löngu tímabært aS taka upp forvarnaverk- efni sem þetta og ég efast ekki um að það á eftirað skila árangri til lengri tima litið," segir Helga GuSjónsdóttir. 1 1 SKINFAXI - timarit um menningu

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.