Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 3
í ár fognum við sjálfstæði Islands í 61.
sinn. Það skipti Islendinga miklu máli
að verða sjálfstæð þjóð meðal þjóða
En sjálfstæðinu fylgir mikil ábyrgð,
ábyrgð sem er vandmeðfarin og hana
þurfum við öll að bera saman, þótt
með mismunandi hætti geti verið.Við
þurfum að hlúa að hinum fjölbreyttu
verðmætum sem við eigum saman og
höfum verið svo lánsöm að varðveita
í gegnum ár og aldir Þar á ég meðal
annars við menningu í víðum skilningi
þess orðs.
Stundum heyrist sagt að hér á
landi sé litla menningu að finna, en
þegar betur er að gáð og skoðað hvað
sé menning, þá kemst fólk að því að
menningu er að finna allt í kringum
okkur daglega Menning þarf ekki endi-
lega að vera bókmenntir eða leikhús,
handverk eða hljtfelist svo að dæmi sé
tekið. lienning gefar nefnilega haft svo
mildu víðari skilgnéipingu.
Hversdagslega getur menningin
meðal annars verið fólgin í þvi' sem
núna kallast matarmenning. Skyr og
slátursneið, sem við borðum í flýti í há-
degishléi á vinnustað okkar er flokkað
undir matarmenningu, að minnsta kosti
á þorranum.
Sundferðir okkar íslendinga má
einnig nefna, hvort sem um er að ræða
árrisula sundlaugargesti að hressa sig
áður en haldið er inn í annriki dagsins
eða gesti sem velja að slappa af eða
taka þátt dægurmálaumræðunni í heitu
pottunum eftir sundsprett síðla dags.
Og ekki má gleyma krökkum sem á öll-
um aldri flykkjast í augamarfrá morgni
til kvölds. Hér áðu; fyrr var þetta nú
bara kallað „að fara í laugina" en nú
ertalað um baðmenningu.Að fara í
sund í upphitaðri útilaug í hvaða veðri
sem erogá hvaða árstíma sem er,já,
vissulega er hér um menningu að ræða
sem er sérstök fýrir okkur hér á landi
vegna heita vatnsins.
Og nú á síðari árum er farið að
tala um útivistarmenningu. Ekki ætla ég
að reyna að skýra eða skilgreina hana
hér og nú, en svo mikið er vfet, að á
undanfömum árum hefur orðið mikil
vakning meðal þjóðarinnar í því að
stunda útivist
Góður göngutúr úti í náttúrunni
getur gert kraftaverk eftir annasama
vinnuviku.
Um leið og við fáum holla hreyf-
ingu lærum við að þekkja náttúruna,
vinða hana og vemda. Það þarf sjaldn-
ast að fara langt að heiman til að finna
fallegar og skemmtilegar gönguleiðir og
svæði til útivistar En það mikilvægasta
við útivist af þessu tagi er kannski að
fjölskyldan getur stundað hana saman.
Tökum bömin okkar og bama-
böm með í gönguferðir út í náttúruna.
Kennum þeim að þekkja náttúruna og
meta, skoða blómin sem þar vaxa, egg í
hneiðri eða fugla á flugi. Kennum þeim
að hlusta á hljóðin í náttúrunni, fúgla-
söng og þyt í laufi, öldugjáffur og brim,
flugnasuð og árnið eða jafnvel vindinn
og rigninguna - og það sem er ekki
síður mikilvægt kenna þeim að hlusta á
kymðina.Allt getur þetta verið hluti af
gönguferðum og útivist hollri hreyfingu
og heilbrigði fjölskyldunnar. Útivist af
þessu tagi kostar okkur Irtið en tíminn,
sem við gefum bömunum okkar með
þessum hætti, er ótrúlega mikils virði
fýrir uppeldi þeirra og framt'ð landsins.
Sjálfstæði þjóða felst m.a í þeirri
skyldu að varðveita náttúruna og auð
hennar í smáu sem stóru.
Hér á Islandi höfum við á undan-
fömum árum tekið okkur verulega
tak við að klæða landið í þann búning
sem okkur finnst hæfa þvf. Að græða
landið og planta trjám er orðið að
hluta af liTsmynstri Islendinga og er það
vel.Tötrum klætt land er okkurtil lítils
sóma og þarf að heyra sögunni til að
sjá landið flúka á haf út
Til varð öflug fjöldahreyfmg á íslandi
Nokkrum áratugum áður en ísland
fagnaði sjáHstæði sínu varð til sjáHstæð
og öflug fjöldahreyfing hér á landi en
þar á ég við ungmennafélagshreyfing-
una, UMR. Á fýrstu árum síðustu aldar
voru stofhuð ungmennafélög vftt og
breitt um landið. Þama var á ferðinni
félagsskapur sem hafði mannrækt og
umhyggju fynr landinu að leiðarijósi.
Ungmennafélagshreyfingin lagði sitt að
mörkum í sjáHstæðisbaráttu þjóðarinn-
ar og kjörorðið var: „Ræktun lýðs og
lands", íslandi allt
Allflest þessara félaga eru enn
við lýði og mikill fjöldi hefúr bæst við
í áranna rás og í dag, um það bil 100
árum eftir að fýrstu félögin voru stofri-
uð, er Ungmennafélag Islands með um
það bil 82 þúsund félagsmenn og er
meðal stærstu félagshreyfinga hér á
landi. Áherslumar hafa þróast og tekið
ýmsum breytingum í takt við tímann
hverju sinni, en kjörorðið hefur aldrei
gleymst og hefúr það verið einn mesti
styrkur UMR’ - Ræktun lýðs og lands.
Sjálfboðastarfið blómstrar og hef-
ur það aldrei verið meira en í dag. Ekki
færi en sex til sjö þúsund sjálfboðaliðar
starfa í viku hverri og sumir daglega að
þessu hugsjónastarfi sem er að hlúa
að æskunni, landinu og menningunni. Ef
við reyndum að meta störf þessa óeig-
ingjama fólks til fjár feru upphæðimar
fljótt að hlaupa á hundruðum milljóna
og síðan í tveimurtil þremur milljörð-
um ef heift ár er metið.
Við þurfum þvi' að gæta að
sjálfboðastarfinu, ekki eingöngu hjá
ungmennafélagshreyfingunni heldur hjá
öllum þeim sem byggja á sjálfboðastarfi
í rekstri sínum. Það er okkur eiginlegt
að gleyma mikilvægi þessa mikilvæga
starfs sem sjálfboðastarfið er þegar vel
árar og við höfum efni á að greiða fýrir
alla þjónustu, ma. í æskulýðsstarfinu.
Það má heldur ekki gleymast í þessu
samhengi að sá sem leggur sig fram við
vinnu af áhugamennsku einni saman
nær oft á tíðum meiri árangri heldur
en sá sem fær greitt fýrir vinnu sína og
er oftar en ekki upptekinn af því hvað
hann fer fýrir sinn snúð.
Höldum í það góða I samfélaginu
Ábyrgð okkar er mikil og skyldur okkar
margar og mismunandi. Þær varða
ma ungt fólk sem að steðjar hætta af
notkun á eiturefnum, ánefti, óhóflegri
netnotkun og fleira mætti nefna. Þótt
böm séu á ábyrgð foreldra sinna er
það hlutverk allra borgara að vera virk-
ir og ábyrgir í því að koma ungu fólki til
manns.Við eigum að halda í hið góða
sem er til staðar í samfélaginu og við
eigum að nýta það sem vel hefúrtekist
í uppeldi bama og unglinga. Nefrii ég
sem dæmi unglingavinnuna.Við eigum
að halda í hana og nýta hana áfram
til góðs til að koma jákvæðum skila-
boðum um hlutverk okkar i' að skapa
fegurra samfélag.
Með því að láta ungt fólk hafá
eitthvað fýrir stafni erum við að verja
það gegn utankomandi árerti eins og
brengluðu sjónvarpsefrii eða óhóflegri
netnotkun með öllum þeim gildrum
og hættum sem þar er að finna. Það er
ánægjulegra að horfe á unga fólkið við
heilbrigða vinnu en að sjá það loka sig
inni við tölvuleiki.
Þroski felst m.a. í aga til vinnu.
Við viljum líka verja böm gegn einefti
og við eigum að halda þeim frá
vímuefnum. Þetta eru stórir draumar
sem eru í þessu tilfelli settir fram í há-
tíðarræðu og mörgum finnast þeir ekki
raunhæfir. Jú, þetta eru stórir drauman
í búningi hátíðarræðu, en óraunhæfir
eru þeir ekki.
Venöldin er ekki eingöngu full
af Ijótleika, miklu frekar er hún full
af fegurð og tækiferum til að gera
morgundaginn að degi tækHæranna.
Hver nýr dagur býr yfir möguleika til
að skapa betri framtíð. Það er aldrei
of seint að snúa við til betri vegar. Á
hverjum degi hefst ný framtíð og hvert
augnablik sem við lifum og það sem
við gerum á því augnabliki leggur drög
að framtíð okkar og oftar en ekki að
framtíð annarra
Við erum að upplifa saman eitt
augnablik og tökum þátt í því að horfa
inn í nýja framtíð, á þessu sama augna-
bliki.Við eigum því möguleika, hér og
nú, á því að heita sjátfúm okkur því að
hlúa enn frekar að börnunum okkar og
gæta þeirra gegn öllu illu. Það er líka
hlutverk iþrótta- og ungmennafélags-
hreyfingarinnar að koma til móts við
fjölskyldulíTið í landinu, ma með því að
gefa sunnudagana eftir til fjölskyldunnar
Það er ásættanlegt að hafa íþróttamót
sem eru með mikla breidd eins og
íþróttahátíðir á sunnudögum en önnur
mót sem gera það að verkum að fjöl-
skyldan nær ekki að vera saman á að
setja á aðra daga, td. laugardaga.Verum
minnug þess að foreldamir eru aldnei
fleiri en tveir en ef bömin eru fleiri
og íþróttamótin fleiri, þá er það ekki
lengurfjölskylduvænt líf. Sunnudagamir
eiga að vera fndagar og fjölskyldudagar.
Það er verk að vinna og samtakamátt
fjöldans þarf til að snúa þeirri þróun
við að allir dagar séu eins. Getum við
ekki tekið höndum saman og endur-
heimt sunnudagana, fýrir okkur, fýrir
fjölskylduna?
Látum ekki stundarhagsæld leiða
okkur út af hinum góða vegi hófsem-
innar og aðgæslu.Verum vakandi yfir
bömunum okkan náttúrunni, menn-
ingargildum og öðru því sem gerir
framtíðina bjarta
Islandi alk,
Rjöm Bjarndal Jónsson,
förmaður UMFI.
SKINFAXi - (jeíiö ól sam/leytl síönn 1909 J