Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 10
Sveinn Pálsson,weitarstjóri (Vík:
Sveinn Pálsson hefur verið sveitar-
stjóri i'Vík frá 2002 og er fæddur
og uppalinn þar Sveinn lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Laugarvatni og þaðan lá leiðin í
Tækniskólann. Eftirað námi þar
lauk hélt Sveinn til Sviþjóðar og
lauk námi í byggingaverkfræði en
fluttist að nýju til Víkur 1994 og
hefur búið þar si'ðan.
Sveinn, eins og aðrir sem
hafa komið að undirbúningi fyrir
Unglingalandsmótið, hefur stað-
ið í ströngu. Hann segir mikJar
framkvæmdir hafa verið í gangi
og verði það allt þar til að mótið
hefst.
„Það hefur verið sérlega
skemmtilegt að fá að vera þátt-
takandi i' þessum framkvæmdum.
Þetta hefur líka verið áhugaverður
og umfram allt lærdómsrikurtími
og upplífgandi fyrir samfélagið hér
i'Vík. Það er gaman að segja frá því
að þegar að við lögðum um 10
þúsund fermetra af þökum komu
80-90 sjálfboðaliðar að því verki
sem er dágott hlutfall af íbúatölu
sveitarfélagins," segir Sveinn.
- Ætlið þið ekki að njóta í framtíð-
irrni þess uppbyggingarstarfs sem
hér hefur verið unnið í tengslum við
Unglingalandsmótið?
,,Eg er ekki í nokkrum vafa um
það og þetta hlýtur um leið að
vera jákvæð kynning á sveitarfélag-
inu. Það munu eflaust margir vilja
koma hingað og njóta aðstöðunn-
ar og einnig styður þetta i'þrótta-
starfið hér þegar horft ertil lengri
tíma. Þetta uppbyggingarstarf sem
hér hefur verið unnið er jákvætt
hvernig sem á það er litið."
- Er vinnan í undirbúningi fyrir mótið
meiri en þú áttir von á?
,,Ég get ekki sagt að neitt hafi
komið mér á óvart í sjálfu sérVið
fórum kannski út í meiri fram-
kvæmdir en við ætluðum okkur
fýrst. Það gerðist þegar menn fóru
að skoða hlutina og eins og vi'ðar
var ákveðið að ganga alla leið í
málinu. Með þeim stuðningi sem
við gerum ráð fýrir að fá á þetta
að vera viðráðanlegt og kostnað-
aráætlunin sem við unnum út frá
stenst ennþá og mun gera það."
- Hvernig fmnst þér andinn /' samfé-
laginu vera gagnvart þessu móti?
„Hann er mjög jákvæður og mað-
ur heyrir ekki neinar úrtöluraddir
Fólk er yfirleitt mjög ánægt. Sam-
heldnin er einstök og hún mun
skila okkuralla leið."
- Hvað búist þið við mörgum gest-
um þessa mótshelgi?
„Sveitarfélagið er búið að skrifa
undir að vera tilbúið að taka við
sjö þúsund manns. Það er talan
sem við vinnum út frá gagnvart
tjaldsvæðum og hreinlætisaðstöðu
en við erum með áætlun í gangi
ef gestir verða fleiri. Það getur
ekki annað en verið ánægjulegt að
takast á við þetta verkefni. Hingað
á eftir að streyma ungt íþróttafólk
og fjölskyldur þess og við hlökk-
um mikið til að taka á móti þessu
fólki. Það er bara vonandi að
veðurguðirnirverði okkur hliðholl-
ir en eins og veðráttan er búin að
vera til þessa þurfum við ekki að
hafa miklar áhyggjur Mótið verður
haldið hvernig sem allt verður en
við erum bjartsýn á að allt gangi
að óskum og að allir sem hingað
koma eigi hér ánægjustund," segir
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri ÍVÍk.
Daashrd mótsinsjramhald:
Tjald 2 Ungmennaráð UMFÍ 21:00-23:00 Tjald 1 Fitnessbraut opin fyrir alla 17:00-19:00
Við sláturhús Freestyle 15:00-18:00 Tjald 2 Gli'mukeppni-liðakeppni 1 1:00-13:00
Við sláturhús Kassaklifur 15:00-18:00 Tjald 2 Glímukynning 13:00-16:00
Svæði við íþróttavöll Leiktækjagarður 15:00-23:30 Tjald 2 Ungmennaráð UMFÍ 17:00-19:00
Opin svæði 1 Leikir fyrir alla 16:00-18:00 Tjald 2 Ungmennaráð UMFÍ 21:00-23:00
Opið svæði 2 Línuskautar 15:00-18:00 Opin svæði 1 Leikir fyrir alla 16:00-18:00
Leikskálar Hermundur Sigmundsson 16:00-18:00 Opin svæði 2 Línuskautar 15:00-18:00
Sunnudagur Við sláturhús Bogfimi 15:00-18:00
Sundlaugin Opið fyrir almenning 07:10-09:00 Við sláturhús Leikhússport 15:00-18:00
Sundlaugin Sundkeppni 10:00-13:00 Svæði við íþróttavöll Leiktækjagarður 15:00-23:30
Sundlaugin Opið fyrir almenning 14:00-21:30 Flugeldasýning 23:30
Grunnskólinn Upplýsingamiðstöð opin 09:00-20:00
Frá Grunnskóla Gönguferð um Vík með leiðsögn 15:00-16:00 Risatjald Sunnudagur
Frá Grunnskóla Göngukeppni fjölskyldunnar 3 15:00-18:00 Föstudagur 20:00 - 20:30 Tónlist af cd
íþróttahúsið Körfuknattleikskeppni 09:00-19:00 21:45 - 22:15 HildurVala 20:30 - 20:40 Nudist Colony
íþróttavöllur Frjálsíþróttakeppni 09:00-15:00 22:15 -23:30 Karaoke 20:40 - 20:50 Queers
Knattspyrnuvellir Knattspyrnukeppni 09:00-18:00 Laugardagur 20:50-21:00 The Primus
Tjald 1 Hæfileikakeppni 11:00-13:00 20:00 - 20:30 Tónlistafcd 21:00-21:30 Fritz von Blitz
Tjald 1 Kvöldvaka - Mótsslit 20:00-23:30 20:30 - 22:00 Á móti sól 21:30 - 22:00 The LostToad
Tjald 1 Fitnesskeppni - eldri flokkar 13:00-17:00 22:00 - 23:30 Svitabandið 22:00 - 23:30 ísafold