Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 12
Sœdís ívo Elíasdóttír,formaður USVS,sem er framhvœmdaaóili Unalinðalandsmótsins íVíh:
Fólh getur dtt hér
frdbeeran tímo saman
Sædfs Iva Elíasdóttir, formaður USVS, við íþróttavöllinn ÍVÍk. Fjær eru
íþróttahúsið og sundlaugin.
,,Við getum sagt að allur undirbún-
ingur gangi samkvæmt bókinni.
Malbikunarframkvaemdum lauk
fyrir nokkru og í framhaldi af þeim
verður gerviefni sett á hlaupa-
brautina. Þessar framkvæmdir eru
kannski örlrtið seinna á ferðinni
en ætlað var því að við stefndum
að þvi' að Ijúka þessu dæmi upp
úr miðjum júní. Þetta er samt allt
innan skekkjumarka og allur annar
undirbúningur er á mjög góðu róli
og við mjög ánægð með stöðu
mála almennt," segir Sædfs íva
Elísdóttin formaður USVS, sem er
framkvæmdaaðili Unglingalands-
mótsins íVík. Hún er uppalin á
Kirkjubæjarklaustri en hefur búið í
Vík sl. 12 ár, én bjó einnig nokkur
ár í Reykjavík. Sædís íva tók að sér
formennsku héraðssambandsins
fyrir ári síðan en menntun sína
sótti hún í Rekstrarháskólann á
Bifröst.
Sædís Iva segir aðdáunarvert
hvað fólk i'Vík og nágrenni hefur
verið duglegt við að leggja hönd
á plóginn í ýmsum verkefnum og
sé það ómetanlegt. Þegar hún er
spurð um hvað hafi komið henni
hvað mest á óvart í undirbúningn-
um segir hún fátt hafa komið sér á
óvart í þeim efnum.
„Við settum þetta dæmi vel
niður fyrir okkur í upphafi og
okkur hefurtekist vel að vinna
samkvæmt þeirri áætlun og ennþá
hefur ekkert komið á óvartVið
erum að vinna með reynslumiklu
fólki hjá UMFI sem hefur prófað
þetta nokkrum sinnum áðurVið
erum náttúrlega að staðhæfa mót-
ið hingað og draga fram sérstæðu
okkar en annað er hefðbundið frá
móti til móts."
- Það hlýtur oð vera mikil lyftistöng
fyrir Vík að tako svona mót að sér.
„Á því leikur enginn vafi í mínum
huga og þetta er gífurlega mikið
tækifæri fyrir þetta samfélag til að
koma sér á kortið. Að sjálfsögðu
ætlum við að vanda eins vel til
og frekast er unnt og taka vel á
móti því öllu fólki sem ætlar að
heimsækja okkur Það má alls ekki
glutra þessu tækifæri úr höndum
sér og þvi' er vandað til verks á
öllum sviðum. Með mótshaldinu
gefst einnig tækífæri til að byggja
upp íþróttaaðstöðuna á staðnum.
Hún var að vísu vel á veg komin
með íþróttahúsinu, sundlauginni
og við eigum hér mjög fínan og
flottan golfvöll. Grunnaðstæður
voru því ágætar en það var fyrst
og fremst frjálsíþróttaaðstaðan
sem þurfti að bæta. Nú er verið
að byggja hana upp og gera fyrsta
flokks og það skiptir rosalega
miklu máli.
Grunnurinn var lagður strax
í upphafi þannig að við ætlum
ekki að tjalda til einnar nætur
Við vorum ekki að búa til þessa
frábæru aðstöðu til þess að hún
mundi bara endast yfir næstu
verslunarmannahelgi.Til hennar er
vandað í hvívetna og hún verður
að sjálfsögðu hér áfram og nýtist
i nánustu framtíð.Við ákváðum
að ganga alla leið f þessum efnum
til þess að við værum fær um
að halda meistaramót og aðrar
uppákomur Sérstaða okkar er að
knattspyrnuvöllurinn er tilbúinn
mun fyrr en annars staðar á land-
inu. FH-ingar komu til okkar f vor
voru hér í nokkra daga og fengu
afbragðsveðurVonandi spyrst
þetta út og við munum í framtíð-
inni gera út á að ná f svona hópa
sem geta æft hér við frábærar að-
stæður Gistirými er nægt hér um
slóðir og það er gott að fá hingað
íþróttahópa á jaðartímum, á vorin
og haustin. Það er kostur að við
erum f nálægð við höfuðborgar-
svæðið en það er stutt hingað
i' kyrðina og náttúrufegurðina,"
segir Sædís Iva.
- Hvernig er andrúmsloftið á meðal
bæjarbúa fýrir Unglingalandsmótinu?
„Mér er alveg áhætt að segja það
sé almennt mjög gottVið höfum
reynt að upplýsa fólkið eftir bestu
getu og á dögunum var haldinn
borgarafundur Eins og ég segi þá
er fólk jákvætt og maður tekur eft-
ir þvi' að fólk er að fegra f kringum
sig og hafa þannig allt fínt áður en
flautað verður til leiks á Unglinga-
landsmótinu.Við erum núna að
setja þungann í að safna sjálfboða-
liðum en gi'furlegan fjölda þarf af
þeim í kringum svona stórmót."
- Hvað með þig sjálfa? Þú ert búin
að vera á kafi I undirbúningnum frá
uþþhafi. Er ekki mikil tilhlökkun í
huga þínum?
„Þú getur rétt ímyndað þér Það
er gífurleg tilhlökkun, ég er svo
spennt að ég get varla beðið.
Allar þær fjölskyldur sem sjá sér
fært að koma og vilja taka þátt í
heilbrigðri skemmtun, eiga auðvit-
að að skella sér hingað. Á þessu
móti verður ekki leyfð notkun
vfmuefna og allir sem hafa áhuga
að taka þátt í slíkri skemmtun eru
hjartanlega velkomnir Það verður
margt áhugavert að gerast hér en
við erum með mjög skemmtilega
afþreyingardagskrá til viðbótar
öllum þeim íþróttaviðburðum
sem verða á Unglingalandsmót-
inu. Skemmtilegar og landsfrægar
hljómsveitir troða upp og kvöld-
vökurnar eru mjög áhugaverðar
og spennandi. Ég held að óhætt
sé að fullyrða að fólk getur átt hér
frábæran ti'ma.Við munum leggja
metnað okkar i' að tjaldsvæði og
hreinlætisaðstaða verði í háum
gæðaflokki. Hér ætti öllum að líða
vel," segir Sædi's íva Elíasdóttir
HildurVala Idolstjama íslands syngur við setningarathöfn Unglinga-
landsmótsins á föstudagskvöldinu. Eins og flestum er kunnugt var
HildurVala í fyrsta sæti Idol-stjömuleitarinnar fyrr á þessu ári og
hefur þegar látið mikið að sér kveða.
Fyrir utan að hafa þegar gefið út sína fyrstu sólóplötu er hún
einnig söngkona i' Stuðmönnum.
SKINFAXI - tímarít Ungmennafélags íslands