Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 27
stunda afreksþjálfun til viðbótar lífsnáminu. Aðrar tillögur sem þurfa að komast til framkvæmda á allra næstu árum: a) Ferðakostnaður iðkenda sé óháður búsetu, td. með jöfn- unargjaldi sem ríkið greiði. b) Almenn þátttökugjöld iðkenda lækki verulega eða hverfi alveg. c) Þjálfun og kennsla iþrótta, menningar og lista sé kostuð af sveitarfélögum samkvæmt samningi við ríkið. d) Grunnrekstur íþrótta- og ungmennastarfs um land allt verði tryggður með fjárfram- lögum ríkis og sveitarfélaga, fjáröflunum sjálfboðaliða og styrkjum frá fyrirtækjum. Tilurð og stjóm þessara félaga verði áfram fyrir tilstilli frjáls framtaks. fréltirúr hreyfingunni Kristján Pálsson kjörinn formaður UMFN Aðalfundur UMFN var haldinn fimmtudaginn 26. mai' 2005. íþróttamaður UMFN 2004 var kosin Erla Dögg Ffaraldsdóttir sundkona og er hún vel að þeim titli komin. Ólafsbikarinn hlaut Andrés Ottósson. Bikarinn er viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og gefinn í minningu Ólafs heitins Thondarsen af fjölskyldu hans. Formaðurinn, Kristbjöm Albertsson, gaf ekki kost á sér til for- mennsku að þessu sinni en aðrir í stjórn félagsins gáfu kost á sér til áframhaldandi stjómarsetu. I stað Kristbjöms var Kristján Pálsson kjörinn formaður félagsins. Stjómina skipa: Kristján Pálsson formaður, Guðmund- ur Sigurðsson ritari og Þórunn Friðriksdóttir gjaldkeri.Varamenn eru Helgi Rafnsson og Gunnar ðm Guðmundsson og endurskoðandi er Gunnar Þórarinsson. 58. ársþing HSS haldið i Árnesi 58. ársþing HSS var haldið í Ámesi og fór hið besta fram. Þingið fagnaði þeim stórhug sem Hólmavíkurhreppur sýndi við uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á Hólmavík sem opnuð var formlega í byrjun þessa árs. Sæmundur Runólfsson, fram- kvæmdastjóri UMFÍ, og Helga Guðjónsdóttir varaformað- ur sátu þingið og veittu við það tækifæri þeim Vigni Pálssyni, formanni HSS, og Jóhanni Bimi Ásgrímssyni gjaldkera starfsmerki Ungmennafélags Islands. Stjórn HSS er skipuð eftirtöldum einstaklingum:Vignir Pálsson formaðunjóhann Björn Ásgrímsson gjaldkeri, Kristján Sigurðsson ritari, Aðalbjörg Óskarsdóttir varaformaðurj og Ragnheiður Fossdal meðstjórn- andi.Varastjórnina skipaVictor Örn Victorsson, Máni Laxdal og Birna Ingimarsdóttir e) Sérsambönd íþrottagreina njóti ríkisstyrkja á fjárlögum en taki í staðinn þátt í kostn- aði við þjálfun afneksíþrótta og kosti alfarið landskeppnir f) Atvinnumennsku í afreksstarfi verði settar mjög skýrar reglur og þröngar skorður verði sett- ar við þátttöku atvinnumanna í keppni áhugamanna. g) Öll uppbygging aðstöðu sé hugsuð miðlægt, út frá hugs- anlegri nýtingu, fjölbreytni, jöfnum rétti iðkandans til hreyfingar mikilvægis með tilliti til byggðar og framtíðar- búsetu á svæðinu. Þvi' miður er ekki hægt í stuttri grein að gera grein fyrir öllum út- færslum þessarar hugmyndasmíð- ar en vonandi glittir þó i' kjarnann. Margar leiðir eru að sama mark- inu sem er að skapa heilbrigðar sálir i' hraustum líkömum. Ég tel að ekki skipti meginmáli hvemig, held- ur að sem flestir nái markinu. Með öflugu íþrótta- og ungmennastarfi um land allt spörum við þjóðinni útgjöld þegartil lengdar læturen aukum um leið lífsgæði komandi kynslóða. Það er árangur sem vert er að berjast fyrir Meðlimum í stjórn UÍA var fjölgað Sambandsþing UÍA var haldið á laugardaginn 30. apríl 1 s.l. Fámennt var en þó góðmennt, aðeins 16 fulltrúar af 127 löglegum mættu til þinghalds og er það eitthvað sem félögin þurfa að skoða En þrátt fyrir dræma mæt- ingu kom ýmislegt fróðlegt fram. Nokkrartillögur fóru fyrir þing og voru allar samþykktar samhljóða Það sem fyrst ber að nefna er að meðlimum í aðalstjóm UIA var fjölgað úr þremur i' fimm. Sitjandi stjóm var endurkosin og inn í hana bættust Gunnar Gunnarsson frá Þristi og Bjarneyjónsdóttirfrá Leikni. Tveir gestir heiðruðu þingið með nærveru sinni, þau Birgir Gunn- laugsson frá UMFÍ og Björg Blöndal frá ÍSÍ. Fluttu þau bæði ávörp og kynntu verkefni samtaka sinna Birgir veitti tveimur einstaklingum starfs- merki UMFÍ, þeim Benedikt jóhannssyni fráAustra ogjónu Petru Magn- úsdóttur frá Súlunni. Þá voru kynnt tvö samstarfsverkefni sem UIA tekur þátt í. Annars vegar er samningur við KHB og hins vegar samningur við Alcoa. Bæði þessi verkefni fela í sér stuðning fyrirtækjanna við iþrótta- og æskulýðsstarf á Austurlandi og verða kynnt nánar si'ðar Guðmundur Ingþór kjörinn formaður HHF 26. héraðsþing HHF var haldið á Patreksfirði laugardag- ^yk inn 30. apríl s.l. Fyrir þinginu lágu hin hefðbundnu aðal- jT fundarstörf svo og mótaskrá sumarsins á starfssvæði a HHF ásamt öðrum málum. Þingið var vinnusamt og s var dagskrá á áætlun undir öryggri stjórn þingforsetans, M. JlJt Brynjars Þórs Þorsteinssonar íþróttamaður HHF 2004 er Sindri Sveinn Sigurðsson, sundmaður frá Tálknafirði (UMFT) Breytingar urðu á stjórn og er hún skipuð sem hér segir: Aðalstjórn: Guðmundur Ingþór Guðjónsson, formaður IH SKINFAX! - geíii úí samíleytt síðon 1909

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.