Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 24
B Blátt dfram og Krakharnir í hverfjnn B/dít áfram er forvorrtarverkefni UMFI.Á vormán- uðum hefur Blátt áfram verið að undirbúa næsta verkefni sem er kallað Krakkarnir í hverfmu. Krakkarnir í hverfmu, eða The kids on the block eins og verkefnið heitir á frummálinu, kemur frá Maryland í Bandaríkjunum. Krakkarnir í hverfmu eru stutt, fræðslutengd leikrit þar sem eins metra háar leikbrúður eru notaðar til að fræða börn um mál sem koma upp í samfélaginu og skipta þau máli. -Afhverju Krakkarnir í hverfmu? „Þegar Blátt áfram fór að leita að efni sem hugsanlega væri hægt að nota í grunnskólum Islands var okkur bent áThe kids on the block. Það sem sérstaklega vakti áhuga okkar var sú staðreynd að þetta efni hefur nú þegar reynst mjög vel í að fræða börn og ung- linga um mál eins og kynferðislegt ofbeldi," segir Svava Björnsdóttir verkefnisstjóri Blátt áfram. I leikþætti um ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi eru brúður sem tala við börnin og taka við spurningum frá þeim um þessi mál. Brúður sem eru eins og börn- in og tala eins og þau geta oft náð beturtil þeirra en fullorðnir Sál- fræðingur eða félagsráðgjafi verða að vera viðstaddir hverja sýningu. Ef barn kemur fram eftir eða í sýningu og lýsir ofbeldi verður að taka rétt á því. Til þess að koma þessu efni af stað fengum við fjárstyrk frá Velferðarsjóði barna og forvarna- nefnd Reykjavíkurborgar Einnig hafa landsmenn verið duglegir að leggja þessu lið með kaupum á geisladiskum. Faglegur stuðningur við krakkana í hverfinu fékkst frá Barnahúsi og mun Barnahús ásamt Félagsþjónustunni í Reykjavík styðja við bakið á prufusýningum nú f vor Ef allt gengur að óskum verður boðið upp á sýningar fyrir alla grunnskólana í haust. Brúðu- leikhússtjórnendur eru Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds. Með sýningunum fylgja verk- efni, umræður og hópaspurningar sem kennarar eru hvattir til að nýta sér vikurnar eftir sýningarnar til að byggja á efni þeirra og stuðla að frekari skilningi barnanna á efn- inu. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hafa samband við verkefnastjóra Blátt áfram, Svövu Björnsdóttur svava@umfi.is. „Blátt áfram-verkefnið hefur gengið alveg stórkostlega, það er bara eina orðið yfir það. Móttök- urnar alls staðar í þjóðfélaginu hafa verið frábærarVið erum núna að breyta svolftið áherslun- um með beinni fræðslu fgrunn- og leikskólum og til stendur hafa samband við framhaldsskólana. Við finnum fyrir mikilli þörf hjá Svava Björnsdóttir, verkefnisstjóri verkefnisins Blátt áfram. fólki sem vinnur með börnunum okkar það vill fræðslu og við bjóðum upp á hana," sagði Svava Björnsdóttir verkefnisstjóri Blátt áfram. - Hvernig séróu framhaldið fyrir þér í þessum efnum? „Það er að vinna áfram með fólki sem vinnur með börnum. Það óskar eftir fyrirlestrum eða er að skrá sig á námskeiðin hjá okkur Umræðan í þjóðfélaginu hefur breyst til hins betra, fólk er að vakna og sér að það verður að gera eitthvað í málunum. Það gerir sér grein fyrir að þessi mál þarf að ræða betur Ég held að þetta sé ekki eins mikið feimnis- mál og áður Þörfm er samt að einhver komi og opni umræðuna á vinnustöðum og f skólum. Ég er mjög bjartsýn á framhaldið í þess- um efnum, verkefnin eru næg og þetta hefur í raun verið að vinda upp á sig og það mun hraðar en við gerðum okkur grein fyrir.Við erum að skoða nokkrar leiðir til að fá fólk til að taka meira þátt í starfinu með okkur í sjálfboða- vinnu. Sú útlistun er ekki alveg komin á hreint en það skýrist þegar nær dregur haustinu.Við erum að skoða ýmsar hugmyndir byggðar á erlendum fyrirmynd- um," sagði Svava Björnsdóttir www.ibudalan.is Þetta er kannski ekki alveg eins og aö afgreiða sjálfan sig meö bensín... ... en næstum því * Þú gengur frá greiðslumatinu á þfnum hraða ‘ Þú faerð staðfestingu á lánshæfi á nokkrum sekúndum * Lánið er afgreitt á fjórum dögum íbúðalán.is - einfaldarí leið aö íbúöakaupum íbúðalán.is www.ibudaian.is Mjög hagstæð lán, allt að 90%, á 4,15% verðtryggðum vöxtum. Flámarkslán 26 milljónir, afgreiðslutími 4 dagar. Umhverfi golfvallaríns ÍVÍk er óneitanlegt stórbrotið og glæsilegt. Völlurinn er níu holur.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.