Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 20
eg Frdbœr drangur Sigrúnar Brdr ií Snidþjédaleikuniin: Stefnan tehin ó Pehina Mikill uppgangur er hjá sunddeild Fjölnis og þaðan koma nú upp- rennandi sundmenn sem eiga eftir að láta að sér kveða f framtíðinni. Ein úr þessum efnilega hópi er Sigrún Brá Sverrisdóttir 15 ára nemandi úr Engjaskóla í Grafar- vogi. Sigrún, sem æft hefur sund í fimm ár hjá Fjölni, lét heldur betur að sér kveða á Smáþjóðaleikun- um í Andorra á dögunum og vann þar til sex verðlauna. Arangur hennar á leikunum vakti verðskuld- aða athygli enda er hér á ferð ung sundkona sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér Það er mikill metnaður í þessari kappsömu stúlku sem hefur sett sér ákveðin markmið. Eitt þeirra er að hún er staðráðin í því að vinna sér þátttökurétt á Olympíuleikunum í Peking 2008. Þegar Skinfaxi náði tali af Sig- rúnu Brá var hún að halda af stað til Akureyrar þar sen hún ætlaði að keppa á aldursflokkameistara- mótinu. Það verður nóg að gera hjá Sigrúnu Brá á næstunni en hún heldur utan I I. júlítil að taka þátt í Evrópumeistaramóti unglinga. FHún slær ekki slöku við, þessi hressa og ákveðna stúlka. Blaðinu lék forvitni á að vita hvers vegna hún fór að æfa sund, þá 10 ára gömul. ,,Ég reyndi fyrir mér í fótbolta og frjálsum iþróttum en fljótlega kom í Ijós að ég var ekki með nógu sterk hné til að æfa þær greinan Það var því ekkert annað að gera en að snúa sér að ein- hverju öðru og sundið varð fyrir valinu. Á þessum tíma hafa hnén styrkst ef eitthvað er allavega hef ég getað æft og keppt af fullum krafti. Þessi fimm ára tími í Fjölni AFMÆLIS TILBOÐ OGPEPSI 20 SKINfAXI - tímarit Ungmennaíélags íslands Sigrún Brá Sverrisdóttir, sunddrottning úr Fjölni, er hér á fleygiferð I skriðsundi á móti I sumar. er búinn að vera mjög skemmti- legur og mér er stöðugt að fara fram. Ég syndi i' kringum 14 tíma á viku, snemma á morgnana og síðan aftur seinni partinn," sagði Sigrún Brá. Keppir með Fjölni íVík Eins og áður kom fram tók hún þátt í Smáþjóðaleikunum í síðasta mánuði og var það þriðja mótið sem hún tekur þátt í á erlendri grundu. Hún sagði að þátttaka sín í Smáþjóðaleikunum hefði verið mjög spennandi og hún hefði sýnt miklar bætingar í flestum greinum en skriðsundið er hennar aðalgrein. Islandsmetin, sem hún á í dag, eru i' stelpna-, meyja- og stúlknaflokki en nú er að gera atlögu að metunum í flokki fullorðinna. I gegnum ti'ðina hefur Sigrún Brá verið með nokkra þjálfara en núverandi þjálfari hennar er Ólafur Þór Gunnlaugsson sem lyft hefur grettistaki í sunddeild Fjölnis. ,,Ég ætla mér stóra hluti ífram- tíðinni og stefni ótrauð á Ólympíu- leikana í Peking 2008. Það er alltaf gott að setja sér einhver markmið og vonandi ganga þau eftir Nú er bara að einbeita sér að verkefn- um sumarsins og eitt af þeim er þátttaka í Unglingalandsmótinu í Vik. Fyrsta og eina mótið sem ég hef farið á var i' Stykkishólmi 2002 og það var skemmtilegt og eftir- minnilegt." Sigrún Brá Sverrisdóttir gerði sér síðan lítið fyrir og setti Islandsmet i' 400 metra skriðsundi í 25 metra laug á aldursflokka- meistaramótinu i' sundi á Akureyri laugardaginn 25. júní. Hún synti á 4:19,74 mínútum og bætti sex ára met Láru Hrundar Bjargardóttur um tæpa sekúndu. Þetta er fyrsta Islandsmetið sem er sett á aldursflokkamótinu í 8 ár Þá bætti Sigrún Brá einnig 18 ára gamalt stúlknamet um 3.36 sekúndur. Þessi árangur undirstrikar hvað þarna er mikið efni á ferð. Hef5 lyrir landstnótum Mikil hefð ríkir fyrir landsmótum innan ungmennafélagshreyfing- arinnar en í tæpri 100 ára sögu UMFI hafa verið haldin 24 lands- mót vi'ðs vegar um landið. Árið 1992 fékkjón Sævar Þórðarson, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Eyjafjarðan þá hugmynd að halda unglingalandsmót UMFI og miða við aldurshópinn 11-16 ára. Mótið yrði hugsað sem keppni og skemmtun til handa þess- um aldursflokki.Vel var tekið í þessa hugmynd og frá og með árinu 1992 hófst saga unglingalandsmóta UMFÍ. Fyrsta unglingalandsmót UMFI var haldið 10,-12. júlí 1993 á Dalvik. Mótið, sem haldið var á vegum UMSE.tókst vel í alla staði og var alveg Ijóst að mótin voru komin til vera. Fyrirmyndarfélag mótsins var HHF, Á mótinu á ísafirði 2003 vartekin ákvörðun um að hækka aldursmörk mótsins upp í 18 ár í stað 16 áður Á þingi UMFI eftir mótið var ákveðið með miklum meirihluta atkvæða að halda mótið árlega um verslunarmannahelgina.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.