Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.05.2005, Blaðsíða 14
Steinor Orrí Sigurðsson^eigandi Halidórshaffis: Mikil dshorun fyrír svona lítii samfélag Steinar Orri Sigurðsson, eigandi Halldórskaffis, með starfsliðinu við inngang staðarins í blíðviðrinu á dögunum. Gestir; sem koma til Víkun taka fljótlega eftir notalegu og hlýlegu kaffihúsi austarlega í þorpinu. Þar ræður Steinar Orri Sigurðsson rikjum. Hann hefur verið eigandi staðarins í tvö ár en Steinar Orri er borinn og bamfæddurVíkur- búi. Hann lauk námi í Hótel- og vertingaskólanum fyrir tæpum tveimur árum en hélt að því loknu rakleitt í heimahagana og keypti rekstur Halldórskaffis. Það var gaman að koma heim og takast á við skemmtilega hluti. Staðurinn gengur vel og það er alltaf stöðug aukning f ferðaþjónustunni á þessu svæði. ,,Það má segja að háanna- ti'minn sé að skella á. Að fenginni reynslu er mikið að gera snemma vors, si'ðan hægist aðeins á i' byrjun júní en fer aftur af stað á fullum þunga upp úr miðjum júní fram í september'' Steinar segir það gífurlega spennandi verkefni en jafnframt fylgi þvf mikil tilhlökkun að takast á við þetta verkefni sem Unglinga- landsmótið fVík er „Maður verður var við nú þegar að það liggur eitthvað mikið í loftinu og eftirvæntingin er mikil meðal bæjarbúa. Það er mikil áskorun fyrir svona lítið samfélag að halda svona stórt mót á borð við Unglingalandsmót- ið en það eru allir mjög jákvæðir og bjartsýnir Það leggja sig allir fram og samheldnin er einstök og menn eru ákveðnir að gera þetta sem best úr garði. Framkvæmdir standa nú yfir af fullum krafti á öllum sviðum, fólktekur sig saman á öllum aldri og leggur þar með hönd á plóginn," sagði Steinar Orri. - Hvernig hagar þú sjálfur og starfs- lið þitt undirbúningi fýrir mótið? „Við erum til i' slaginn en það er al- veg Ijóst að hér verður handagang- ur f öskjunni.Við þurfum að láta hendur standa fram úr ermum en það er hugur í starfsliðinu og allir tilbúnir að láta hlutina ganga vel fyrir sig.Við bjóðum upp á mat frá morgni til kvölds og ennfhem- ur kökur og kaffiveitingar Fólk getur fengið hér létta rétti upp í stærri málsverði. Matseðillinn er fjölbreyttur og við leggjum okkur fram við það að bjóða góðan mat meðan á mótinu stendur Fólk, sem kemur hingað um verslun- armannahelgina, kemur ekki að tómun kofanum.Við tökum vel á móti öllum og veitum góða þjón- ustu sem endranærVið hlökkum mikið til en ég reikna með að við þurfum að fjölga eitthvað í starfs- liðinu enda langar vaktir sem bíða okkar Ég er mjög bjartsýnn á að vel takist til þessa daga og það er skemmtilegur tími fram undan." - Þetta er töluverð framkvæmd að ráðast í að halda svona mót en kynningin er um leið mikil sem þið fáið á móti. „Það er ekki nokkur spurning um það og þá alveg sérstaklega ef vel tekst til. Það sem eftir stendur er frábær íþróttaaðstaða á öllum sviðum sem nýtist öllum um ókomna framtíð. Allar þessar fram- kvæmdir bæta bæinn sem slíkan og gera hann meira aðlaðandi en ella sem er hið besta mál. Þetta snýst ekki bara um þetta eina mót heldur verður hér eftir aðstaða sem á ekki einungis eftir að nýtast heimamönnum heldur öllum sem hingað vilja koma til æfinga og keppni." - Það er ekki annað að heyra en þú sért fullur tilhlökkunar. „Maður iðar í skinninu og það er i' raun stórkostlegt að svona Irtið bæjarfélag skuli taka sér þetta fyrir hendur Það lýsir bara samfélag- inu hér i' hnotskum, menn eru stórhuga og ég veit að þetta á eftir að ganga vel," sagði Steinar Orri Sigurðsson, veitingamaður og eigandi Halldórskaffi. Keppt í fítness í fyrsta skipti d Unglingalandsmótinu íVík Ákveðið hefur verið að keppt verði i' fitness á Unglingalandsmótinu fVik um verslunarmannahelgina. Fitness hefur verið kynnt sem jaðaríþrótt á undanfömum unglingalandsmótum. Þar sem mikill áhugi og ásókn hefur verið í fitness sem jaðanþirótt var sam- þykkt að taka það inn sem keppnisgrein. Fitness-keppnin verður i' umsjá Andrésar Guðmundssonar sem lagt hefur stund á fitness árum saman. Keppt verður á tveimur misþungum brautum. Á laugardeginum keppa krakkar á aldrinum 11-14 ára en á sunnudeginum verður keppni fýrir 15-18 ára. Keppt verður í hverj- um aldursflokki fyrir sig, þ.e. I I ára, 12 ára o.s.frv.Við hvetjum alla til að vera með og taka vel á móti þessari nýju keppnisgnein á Unglingalandsmótinu ÍVik |4 SKINFAXI - tímorit Ungmennafélagí íslonds

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.