Skinfaxi - 01.05.2005, Qupperneq 17
Guðmundur Elíosson, eisandi Víkurshólo:
Á eftir oii verðd stdðnum til framdráttor
Guðmundur Elíasson hefur komið
að rekstri Vikurskála síðan 1988,
.fyrst undir hatti kaupfélagsins til
2003 en eftir það fyrir eigin reikn-
ing, Hann segir það gríðarlega
vítamínssprautu fyrir samfélagið
Vík að fá að halda unglingalands-
mót. Það sé einnig ekki nokkur
spurning að mikill akkur sé fyrir
veitingamenn að fá þetta tækifæri
og þeir ætli að standa sig eins og
frekast er unnt.
„Við sjáum fram á mikla
umferð og ef fram fer sem horfir
verður mikill mannfjöldi hér sam-
an kominn um verslunarmanna-
helgina. Það er búið að vera mikið
að gera hjá okkur í allt vor og
yfir venjulega helgi fer hér í gegn
fjöldi fólks.Við erum hér á besta
stað við þjóðveginn og merkjum
töluverða aukningu á fjölda ferða-
manna frá ári til árs.Varðandi ung-
lingalandsmótið verður maður var
við mikla samheldni fólksins hér í
Vík og heimamenn eru staðráðn-
ir í því að vinna þetta verkefni
saman svo öllum verði sómi að.
Við erum í stakk búin að taka á
móti þeim hópi gesta sem talað
hefur verið um enda aðstæður
allar hinar ákjósanlegustu," sagði
Guðmundur Hann segir engan
vafa á því að Unglingalandsmótið
verði mikil lyftistöng fyrirVik.
„Nú þegar er mikil vinna að
baki í vallargerð og öðrum íþrótta-
mannvirkjum sem sómi er að. Þó
ég sé ekki alveg með það á hreinu
» þá held ég að menn megi allt eins
búast við hátt í ti'u þúsund gestum
á mótið og því þarf að vanda til
verks eins og kostur er“
- Hvernig ertu sjálfur undirbúinn
fyrir svona fjölda gesta?
,,Við reynum að búa okkur
undir það eins vel og við getum
í vörum og mannafla. Eg bæti
við verulegum fjölda fólks og
ég neikna með að tjalda hér við
hliðina svo að fólk geti sest þar og
haft afdrep.Við getum annað tölu-
vert miklu hér en við búum yfir
nokkurri reynslu fráVíkurhátíðum
sem haldnar voru í kringum 1990.
Við erum með matseðil sem við
einföldum eitthvað þannig að við
getum veitt snögga en umfram allt
góða þjónustu.Við erum einnig
með sjoppu og allt í kringum það
og vi'si að ferðamannaverslun.Við
kappkostum að vera með það
helsta sem gestir mótsins þurfa.
Opnunartíminn fer að sjálfsögðu
eftir þörfinni en stefnan er að
veita þeim gestum sem hingað
koma góða þjónustu."
- Hlakkar þú ekki til þessa tíma
sem fram undan er?
„Mikil ósköp, ég hlakka mikið til,
annars stæði maður ekki í þessu.
Að öllu óbreyttu sér maður fram
á mesta fólksstreymi hér í gegn
frá upphafi meðan á Unglinga-
landsmótinu stendur Ég trúi því
að þetta mót eigi eftir að verða
staðnum til framdráttar og við
skulum vona að allar góðar vættir
gefi að hér verði sól og bli'ða eins
og vorið er búið að vera," sagði
Guðmundur Elíasson, eigandi
Vikurskála, hress í bragði.
Sérgreinastjórar 8.unglingalandsmóts UMFI íVíh
Sérgreinastjórar 8. unglingalandsmóts UMFI eru átta talsins og munu
þeir skipuleggja hverja keppnisgrein fyrir sig og stýra henni. Þetta er
frábært teymi fólks sem tekið hefur að sér þetta viðamikla starf og
engin vafi er á að þau munu sinna því af kostgæfni.
Greinarnar; sem keppt er í að þessu sinni, eru átta og eru
sérgreinastjórarnir jafnmargir Kári Jónsson mun sjá um frjálsar
i'þróttir; Lárus Kjartansson um glímuna, Guðrún Pétursdóttir um golf,
Hermann Árnason um hestaíþróttinViktor Steingrímsson um knatt-
spymu, Björn Ægir Hjörleifsson um körfubolta, Helgi Ámason um
skák og Svanur Ingvarsson um sundið.
Guðmundur Elíasson, eigandi Víkurskála íVík
öniggur rekstur töívukerfa
Þú þarft ekki tölvudeild
Þú færö fulla þjónustu hjá ANZA
ANZA sér um öll tölvumál fyrir fjölda fslenskra
fyrirtækja. Þaö er sérgrein okkar.
ANZA sér um tölvukerfiö þitt, allan sólarhringinn,
alla daga ársins. ANZA fer aldrei í sumarfrí og er aldrei
fjarverandi vegna veikinda.
Kynntu þér málið meö þvl að hafa samband viö ANZA
í síma 522 5000 eða anza@anza.is
ANZA • Ármúla 31 • 108Reykjavík • Sími 522 5000 ■ Fax 522 5099 ■ www.anza.is
Rekstur ANZA er i samræmi við vottaö öryggiskerfi sem byggist á staölinum ISO 17799 um stjórnun
upplýsingaöryggis. Hornsteinn ANZA er starfsfólk með framúrskarandi þekkingu og hæfni.