Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2005, Síða 25

Skinfaxi - 01.05.2005, Síða 25
Þjóbartilþríf með UMFÍ og Pohasjó&i: Ldtum areipar Ungmennafélag Islands og Poka- sjóður eru að fara af stað með umhverfisverkefni.Verkefnið felst í því að vekja landsmenn til um- hugsunar um gildi þess að ganga vel um umhverfið og eru þeir hvattir til að taka þátt í verkefninu með því að fara út og tína rusl, í merkta ruslapoka sem þeir fá senda heim.Verkefninu er ætlað að vera bæði forvarnarstarf sem og framkvæmdarátak • f Verkefnið er auglýst svohljóð- andi; Þjóðartilþrif með Ungmenna- félagi Islands og Pokasjóði."Látum greipar sópa umhverfið". Stefnt er að því að senda pokana inn á öll heimili í landinu í lok júní. Afrifa verður á pokanum, hana á að fylla út og síðan senda inn og þú gætir átt von á glæsi- legum vinningi. Dregið verður úr innsendum afrifum i'beinni útsend- ingu á Rás 2 í sumar. Umhverfisverkefnið verður auglýst í fjölmiðlum, bæði áður en pokarnir detta inn um lúguna og eins verður verkefninu fýlgt vel eft- ir með umfjöllun og auglýsingum í allt sumar „Markmiðið með þessu umhverfisátaki er að fá landsmenn til að vera meðvitari um umhverfi sitt. Þessa dagana erum við að senda stóra ruslapoka til allra landsmanna. Um er að ræða þartil gerða merkta poka með slagorðunum: „Tökum höndum saman", „Þjóðartilþríf‘, „Þjóðin þrífurtil" og „Látum greipar sópa Ásdís Sigurðardóttir verkefnisstjóri. um umhverfið. Þessari sendingu til landsmanna fýlgja leiðbeiningar um notkun," segir Ásdi's Sigurðardóttir verkefnisstjóri. Frá opnun þjónustumiðstöðvar UMFÍ á Sauðárkróki. Sæmundur Runól/sson, framkvæmdastjóri UMFÍ, til vinstri sést hér á tali við heimamenn. Þjónustumiðstöð UMFÍ á Sauðár- króki var opnuð formlega í vor Margt gesta var við opnunina og hélt Björn Bjarndal Jónsson, formaður UMFI, stutta tölu af þvi' tilefni. Þjónustumiðstöðin er glæsi- leg i' alla staði og mikil lyftistöng fyrir hreyfinguna á svæðinu. Um síðustu áramót voru tveir landsfulltrúar ráðnir með aðsetur annars vegar á Sauðár- króki og hins vegar í Reykjavík Þeir eru Ómar Bragi Stefánsson ogValdimar Gunnarsson og hefur verkefnum verið skipt þannig á milli þeirra að Ómar Bragi verður með íþrótta-, umhverfis- og ung- lingamál á sinni könnu enValdimar verður með menningar- og fræðslumálin. Fflutverk landsfulltrú- anna verður í meginatriðum fólgið í því að taka þátt í stefnumótun, gera starfsáætlanir og fylgja þeim eftir, auk þess að sjá um verkefna- stjórnun í sínum málaflokkum. „Það var mikill akkur fyrir UMFÍ að færa starfsemi si'na út á landsbyggðina þar sem uppruni hneyfingarinnar er að mestu og hún í sjálfu sér hvað sterkust. Almenningur hefur tekið þessari útvíkkun mjög vel. Með þessu er UMFÍ að byggja upp ákveðið net og vonandi verður framhald á. í þessu starfi er maður mikið á ferðinni vítt og breitt um landið. Maður hefur ansi stóra málaflokka á sínum herðum og erillinn sam- fara þessu er töluverður Starfið er fjölbreytt en jafnframt skemmti- legt og það skiptir miklu máli," sagði Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFI, með aðsetur f nýju þjónustumiðstöðinni á Sauð- árkróki. Ómar Bragi hefur frá unga aldri verið tengdur ungmennafé- lagshreyfingunni, lifað og hrærst í henni og það hefur verið hans líf og yndi eins og hann kemst sjálfur að orði. Aðkoma Ómars Braga í íþróttahreyfingunni er víða en hann hefur setið í stjórn KSI í nokkur ár Ómar Bragi segist kynnast mörgu góðu fólki í starfinu vi'ða um land og það gefi honum ákveðin tækifæri. „Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið og verkefnin eru ærin. Við erum að vinna að mörgum áhugaverðum verkefnum sem koma brátt í Ijós. Það er bjart yfir ungmennahreyfingunni og gott fólk sem maður vinnur með,“ sagði Ómar Bragi. SKIHFAXI - gcíið út samílcytt síðan 1909

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.