Skinfaxi - 01.05.2005, Side 29
Ungmennafélagi í nsrmynd
Það ó vel vift mi| oð stjórna
Aldo Pálsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri
HSH í tæp þrjú ár. Hún segir að sér líki afar vel í
þessu starfi og það eigi vel við hana að stjórna.
„Starfið er erfitt en skemmtilegt og það skiptir mig mestu máli. Það eru
spennandi tímar fram undan hjá okkur í starfseminni sem er öll að lifna
við. Félögin hér áVesturlandi eru í enn meira mæli en áður að sameina
krafta sína og það gerir okkur enn öflugri. Það verður í nógu að snúast
í sumar og m.a. verður fjórðungsmót hestamanna á Kaldármelum í júlí.
Aðstaðan hjá okkur er með ágætum og hér um slóðir eru starfandi fjórir
golfklúbbar sem segir si'na sögu," segir Alda en þess má geta að félagar í
HSH eru í dag yfir tvö þúsund.
Fullt nafn: Alda Pálsdóttir
Fæðingarstaður: Stykkishólmur;
nafli alheimsins.
Maki: Bárður Eyþórsson.
Aldur: 31 árs.
Starf: Framkvæmdastjóri HSH.
Bifreið: Kia Carnival 2003.
Uppáhaldsmatur: Fiskur mat-
reiddur á ýmsa vegu.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Besti prentmiðillinn: Ég les
mest Fréttablaðið og skoða mest
Hús og híbýli. Annars er Skinfaxi á
þokkalegri góðri siglingu.
Besti Ijósvakamiðillinn: Fer
eftir afþreyingu sem ég leita að í
það og það skiptið.
Uppáhaldssjónvarpsþættir:
Hef lítið fylgst með þáttum í vetur
þar sem aðeins var eitt sjónvarp á
heimilinu, beintengt íþróttum.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Sigursteinn Másson.
Besta íslenska bíómynd sem
þú hefur séð: Stella í orlofi.
Besta erlenda bíómynd sem
þú hefur séð: Æ, ég sef yfirleitt
yfir þeim.
Besti leikari íslenskur: Stein-
unn Ólína.
PAPPIR HF
• POKAR • R
' / minni eða stærri
Kaplahrauni 13 • 220 Hfj,- S: 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is
ULLUR
upplögum!
í Q®
©
i
PAPPÍR
Sérprentanii
Alda Pálsdóttir, framkvæmdastjórí HSH.
Besti leikari erlendur: Morg-
an Freeman.
Uppáhaldstegund tónlistar:
Ég er nánast alæta á tónlist að
undanskildu því þyngsta.
Uppáhaldssöngvari: Tina
Turner og Robbie Williams sem
entertainer en íslenskur finnst
mér Páll Óskar langflottastur
Eftirminnilegasta augnablik-
ið: Þegar ég brenndi mig á kaffinu
hjá afa
Fyrirmynd: Ég lærði mikið á því
sem ömmur mi'nar höfðu fyrir
mér Annars engar sérstakar fyrir-
myndir - vil vera ég sjálf.
Fleygustu orð: Þú skalt ekki aka
undir áhrifum stýris. GJA.
Áhugamál: Útivera, íþróttin
félagsmál, vinin ferðalög, gróðun
hönnun o.fl. o.fl.
Hvers gætirðu síst verið án:
Að fá að stjórna.
Hvað tækirðu með þér á
eyðieyju: Fjölskyldu, vini, sjúkra-
tösku, mat og huggulegheit.
Hvað er ómissandi: Góð
heilsa.
Fallegasti staður á íslandi:
Stykkishólmur og Snæfellsnesið
allt.
Minnisstæðasta atvik frá
landsmóti: Að fá ekki afhentan
landsmótsbikarinn í körfu.
Ef þú ynnir milljón í happ-
drætti: Mundi ég eyða henni
eins og öðrum peningum, á ekki í
vandræðum með það.
Hvað gleður þig mest: Að
vera með skemmtilegu fólki.
Hvaða íslenskur íþróttamað-
ur stendur fremstur í dag:
Eiður Smári.
Besti íþróttamaður í heimi:
Pass.
Faliegasti karlmaður sem þú
hefur séð fyrir utan maka:
Enginn fallegri en hann Bárður
minn.
Mottó í framtíðinni: Að brosa
og bæta mig með hverjum deg-
inum.
Óvenjulegt skýjafar yfir Vík Rokský sem þessi myndast stöku sinnum yfir
fjöllum (Ljósmynd jónas Erlendsson)._____________________________________
I