Skinfaxi - 01.12.2007, Side 3
He'LjA Cfuðnítt Quðjónsd/fttir, jómuiSuv UMBÍ:
UMFÍersíungt
Öld er liðin og ný er hafin í starfi
ungmennafélagshreyfingarinnar.
Það er ekki einfalt að gera sér í
hugarlund allt það mikla sjálfboða-
liðastarfsem hefurverið unniðfrá
stofnun hreyfingarinnar, á Þingvöllum þann 2. ágúst 1907. Starfið hefur
ekki alltaf verið dans á rósum og hreyfingin lifað sín þrengingatímaþil en
náð að aðlagast örum breytingum sem hafa orðið á þjóðfélagi tuttugustu
aldarinnar. Hvað framtíðin ber í skauti sér er óskrifað blað en það er okkar
sem erum í forsvari í dag og á hverjum tíma, að skapa þann texta sem
verður grunntónn í því sem verður skráð um hreyfinguna í lok tuttugustu
og fyrstu aldarinnar.
Það er ögrandi en um leið heillandi verkefni að vera formaður Ung-
mennafélags fslands á þessum tímamótum. Ég vil þakka það traust sem
ungmennafélagar hafa sýnt með því að kjósa mig í þetta virðingarmikla
embætti og ég vona svo sannarlega að við eigum eftir að eiga gott sam-
starf næstu tvö árin. Mig langar, lesandi góður, til að greina hér í nokkrum
orðum hvernig ég sé fyrir mér starf hreyfingarinnar þessi fyrstu skref á
nýrri öld.
Leiðarljós framtíðarinnar verður áfram ræktun lýðs og lands, þar sem
áherslan verður á mannrækt í tengslum við menningu, íþróttir og
umhverfið. Þau gildi sem starfið mun áfram einkennast af eru heiðarleiki,
heilbrigði, traust, umburðarlyndi og virðing. í nútímasamfélagi er nauð-
synlegt að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi heilbrigðs lífsstíls, fjöl-
breytileika þjóðfélagsins og virðingu fyrir umhverfinu. Samvera fjölskyld-
unnar, ungs fólks og eldri kynslóða er þýðingarmikil til að nýta fortíðina
sem veganesti inn í framtíðina.
Okkur er það mikils virði að skapa vettvang til að efla félagsþroska,
samskiptahæfileika og læra gildi þess að starfa með öðru fólki að sam-
eiginlegum markmiðum. Þannig byggjum við uppfrumkvæði og for-
ystuhæfileika einstaklinga.
Til framtíðar litið sé ég ungmennafélaga stuðla að því að auka vitund
fólks um að við búum í síbreytilegu samfélagi' þar sem m.a. mikil fjölgun
fólks af erlendum uppruna hefur orðið hin síðari ár, mikil þróun hefur
verið varðandi tækninýjungar og aukinn þrýstingur er á um að íþrótta-
félög, æskulýðsfélög, félagsmiðstöðvar og skólar séu í samstarfi um að
skipuleggja tómstundastarf fyrir börn og unglinga. Þessar breytingar
kalla á að við höldum áfram að virkja fólk til þátttöku í félagsstarfi og
sjálfboðaliðastarfi ásamt því að mennta fólktil forystustarfa innan hreyf-
ingarinnar. Við þurfum einnig að halda á lofti gildum hreyfingarinnar og
sögu með því að skipuleggja kynningar í anda útbreiðsluferðanna hér
áður fyrr. Einnig er nauðsynlegt að vinna að því að brúa kynslóðabilið og
þannig auka líkurnar á því að við varðveitum menningararfinn.
íþróttir hafa ætíð skipað stóran sess í starfi hreyfingarinnar enda hafa
þær mikið forvarnagildi.Við viljum auka meðvitund um mikilvægi heil-
brigðs lífsstíls sem m.a. felst í hollu mataræði og hreyfingu og því að láta
vímuefni eiga sig. Framtíðarverkefni er að auka þátttöku fólks í almenn-
ings- og jaðaríþróttum, efla þjóðlegar íþróttir s.s. glfmu og þjóðdansa og
fjölga íþróttamótum þar sem þátttaka er aðalatriðið.
Einn er sá þáttur sem nauðsynlegt er að efla en það er foreldrasam-
starfið. (foreldrahópnum er falinn mikill mannauður sem okkur ber að
styðja, efla og virkja.
Við munum taka virkan þátt í umhverfismálum og láta að okkur kveða
í þeim málaflokki með því að auka vitund fólks um mikilvægi góðrar
umgengni og að fólk tileinki sér umhverfisvænan Iffsstíl. Höldum áfram
með útivistartengd verkefni til að sem flestir geti notið íslenskrar náttúru
og um leið að auka þátttöku almennings í ræktun og verndun náttúr-
unnar.
Að vera ungmennafélagi er í mínum huga það að vera manneskja. Þú
sem persóna skiptir öllu máli. Ungmennafélagsandinn er fólginn í því að
gefa af tíma sínum og þjóna öðrum eins og einn góðurfélagi sagði í mín
eyru fyrir stuttu. Ég er honum svo innilega sammála. Þegar við vinnum
í sjálfboðavinnu erum við að gefa af þeim tíma okkar sem við annars
myndum nýta í eigin þágu.Við erum að þjóna öðrum með því að taka
að okkur störf sem lúta að skipulagningu og framkvæmd í íþrótta- og
æskulýðsstarfi.
Hver vegferð hefst á einu skrefi. Saman tökum við mörg skref og sam-
an munum við halda við og styrkja ungmennafélagshreyfinguna eins og
hún og við öll eigum skilið.
Islandiallt!
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 3