Skinfaxi - 01.12.2007, Page 16
Bréf frá íþróttalýðháskólanum í Ollerup:
Héðan frá Danmörku er allt gott að frétta og alltaf nóg að gera. Ég hef það
mjög gott hérna í Ollerup, ég gæti ekki haft það betra. Krakkarnir hérna
eru alveg yndislegir og kennararnir gera allt fyrir mann.
Venjuleg vika hér í Ollerup er mjög skipulögð og manni leiðist aldrei.
Við byrjum á að vakna ki. 7 á morgnana og morgunmatur byrjar kl. 7:25.
Eftir morgunmat höldum við í svokallaða morgunstund þar sem er alltaf
sungið minnst eitt lag eða tvö og fleira sniðugt. Hver tími hér varir 80 mín.
en fimleikatímarnir eru 90 mín. Við erum með 2 tíma fyrir hádegi og 2 tíma
eftir hádegi, stundum 3.
Á hverjum þriðjudegi og fimmtudegi eru kaffi, te og kaka í stofunni á
kvöldin, mjög huggulegt.
Við erum í kringum 100 krakkar í skólanum og þar af eru um 20 lög-
reglumenn eða fólk sem er að æfa sig fyrir inntökupróf í lögregluna í Dan-
mörku. Ég er búin að kynnast alveg hellingi af fólki sem ég kem til með að
halda sambandi við í framtíðinni.
Þriðjudaginn 2. október var svokölluð íþróttastefna hérna í skólanum.
Við vorum í kringum 700 nemendur hérna á þessum degi og í kringum 40
Islendingar! Allir íþróttalýðháskólar á landinu komu til okkar til að keppa í
16 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands