Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.2007, Page 17

Skinfaxi - 01.12.2007, Page 17
sem var mjög skemmtilegt og fjölbreytt. Það reyndi samt sem áður heil- mikið á líkamann. Nú seinni 2 mánuðina hef ég fótbolta. Það kemur til með að verða kalt því að við æfum aðeins úti fram að jólum. Alls konar námskeið eru haldin hér í Ollerup um helgar og mörg fim- leikafélög eru með fimleikasalinn okkar á leigu um kvöldin og helgar. Tveir af fimleikakennunum mínum eru að þjálfa lið hérna nálægt og þau æfa ca. einu sinni í viku hér. Þá hjálpa ég þeim að taka á móti krökkunum og leiðrétti þau. Það er mjög skemmtilegt og þau eru á öllum aldri og eru auðvitað misjafnlega góð. I síðustu vikunni fyrir haustfríið vorum við með svokallaða menningar- viku. Vikan gekk þannig fyrir sig að okkur var skipt upp í hópa eftir því sem við vildum gera. Ég var í búninganefnd. Á mánudagsmorgni fengu allir hóparnir ákveðið verkefni eða sögu sem þeir áttu að vinna út frá. Við höfð- um tíma þangað til á fimmtudagskvöldi til að gera heila sýningu með bún- ingum á risasviði og gera allt klárt. Þetta gekk rosalega vel og allir foreldr- flestum íþróttagreinunum sem kenndar eru í mínum skóla, þ.e. handbolta, fótbolta, blaki, ævintýrakeppni, þríþraut (18 km hjólreiðar, 4,2 km hlaup og 400 m sund) o.fl. íþróttastefnan er sem sagt keppni á milli skólanna hér í Danmörku. Þar sem skólinn minn leggur ekki áherslu á neina af þessum iþróttum unnum við nú ekki mikið en sigurinn var okkar í blaki. Fyrir þá sem ekki vildu keppa í þessum íþróttagreinum voru stutt námskeið sem við gátum valið á milli. Ég valdi frekar að taka 3 námskeið yfir daginn. Það var mjög skemmtilegt. Ég valdi mér funkdans og á þriðja námskeiðinu var ég í vatnsíþróttum og ég get ekki annað sagt en það hafi verið erfitt. Alls konar þrek, leikir, sveiflur og sundfimleikar. Fyrstu vikuna í september fórum við til Austurríkis. Það var löng rútu- ferð sem beið okkar, rúmir 20 tímar hvora leið. Við lifðum það af þrátt fyrir mikla óþolinmæði. í Austurríki var planið að klifra fjöll, löng ganga upp fjall sem tekur um 8 tima upp og niður og svo river rafting á stórri á. Það var bara fyrsta daginn sem við gátum farið eftir áætlun, næstu daga fór að snjóa og við vorum hálfpartinn uppi í fjöllum svo að við urðum að hætta við planið. En á sama tíma í fýrra var um 30°C hiti og sól allan daginn. Þrátt fyrir snjó og kalt veður í Austurríki var mjög gaman. Það var mikið spilað og farið í alls konar innileiki. Einn daginn fórum við inn í Salzburg og skoðuðum kastalann þar, risastór og mjög auðvelt að villast. Svo er það danskan, danskan gengur bara mjög vel. Ég taia bara dönsku núna og segi nánast ekkert á ensku lengur. Og hvað suma kennara varðar þá fæ ég ekki leyfi til að tala ensku lengur. Fyrstu 2 mánuðina hér í Ollerup hafði ég sund sem aðra íþróttagrein arnir og skólarnir sem komu og horfðu á sýningarnar voru mjög ánægð. Það eru komnar myndir inn á heimasíðuna www.ollerup.dk undir dálknum galleri. (þeim dálk má finna fullt af myndum en aðeins myndirnar sem stendur E 2007 eru frá þessari önn. 'Íl'í /j/)st>l/tlYJ/<' S7& ■/ /il/t/tyc t/ it/fj/£lt' SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands 17

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.