Skinfaxi - 01.12.2007, Page 20
Silfurleikar ÍR í frjálsum íþróttum fóru fram í
Laugardalshöll 17. nóvember sl. Keppendur
voru 469 og var það metþátttaka. Mótið var
fyrst haldið haustið 1996 og hefur verið hald-
ið árlega síðan undir nafninu Haustleikar ÍR.
í fyrra var nafni mótsins breytt í Silfurleikar
ÍR til að minnast silfurverðlauna Vilhjálms
Einarssonar sem hann vann á Ólympíuleik-
unum í Melbourne í nóvember 1956.
Keppt var í flokkum 16 ára og yngri.
Hófst keppni í yngstu aldursflokkum
snemma á laugardagsmorguninn og lauk
keppni ekki fyrr en um kvöldmatarleytið.
Þetta er næstfjölmennasta innanhússfrjáls-
íþróttamót sem haldið hefur verið á
íslandi, aðeins í Stórmóti ÍR á þessu ári hafa
fleiri keppendurtekið þátt.
Mjög góður árangur náðist í mörgum
greinum en það sem skipti mestu máli var
einstök keppnisgleði og ánægjan sem skein
úrandlitum keppenda.
Þrjú aldursflokkametféllu á mótinu og
eitt var jafnað. Hekla Rún Ámundadóttir fR
bætti tvö met í flokki 12 ára og yngri
stelpna. Hekla varpaði 2 kg kúlu 14,28 m
og bætti gamla metið um 1,58 m, en það
var 12,70 m frá árinu 2003. Þá stökk Hekla
10,66 m í þrístökki, sem einnig er nýtt
stelpnamet, en gamla metið var 10,48 m
frá fyrra ári. Aníta Hinriksdóttir bætti metið
í flokki 12 ára og yngri stelpna í 800 m
hlaupi um rúmlega tvær sek., þegar hún
hljóp á 2:32,63 mín. og Mekkín Daníels-
dóttir ÍR jafnaði stelpnamet Heklu Rúnar í
hástökki, þegar hún stökk 1,55 m. Yngstu
aldursflokkar, sem skráð eru met í, eru
flokkar stráka og stelpna 12 ára og yngri.
Kjartan Lárusson verðlaunaður
fyrir störf sín í þágu glímunnar
Alþjóðlegu fangbragðasamtökin The Eastern U.S.A. International Martial Arts
Association héldu ársþing sitt á dögunum í Bandaríkjunum. Þingið sóttu nokkrir
íslendingar og hlutu þeir viðurkenningu fyrir ötul störf að glímumálum og fang-
brögðum. Þeirra á meðal var Kjartan Lárusson, glímufrömuður á Laugarvatni, en
hann hlaut viðurkenninguna„Silver Anniversary Achievement" fyrir mikil og farsæl
störf að glímu og sem glímudómari í áraraðir. Þá var haldin áhrifamikil kynning
og fyrirlestur um islenska glímu fyrir fullu húsi fagfólks á sviði fangbragða sem
lýsti aðdáun á tækni og fegurð íþróttarinnar en jafnframt áhuga á frekari vitneskju
um sögulega þróun hennar.
20 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands