Skinfaxi - 01.12.2007, Síða 28
Forvarnadagurinn var haldinn 21. nóvember um land allt:
Tími með fjölskyldunni hefur mikið forvarnagildi
Forvarnadagurinn var haldinn í öllum grunnskól-
um landsins 21. nóvember sl. Þá voru kynnt
nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og
unglingum frá fíkniefnum. Athygli foreldra ungl-
inganna var einnig vakin á þessum ráðum sem
og allra fjölskyldna í landinu.
Árla morguns hófu fulltrúar tengdir verkefn-
inu að heimsækja skóla landsins. í Klébergsskóla
á Kjalarnesi sýndu unglingarnir í 9. bekk verk-
efninu mikinn áhuga og spurðu spurninga.
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi UMFI og verk-
efnisstjóri Flott án fíknar, kynnti verkefnið eftir
ávarp forseta Islands, Ólafs Ragnars Grímssonar,
á myndbandi. Það kom fram í máli unglinganna
að stór hluti þeirra stundar íþróttir eða er í tón-
listarnámi. Umsjónarkennari 9. bekkjar í Klébergs-
skóla er Unnur Sigfúsdóttir.
Forvarnadagurinn er haldinn að frumkvæði
forseta (slands, í samvinnu við Samband íslenskra
sveitarfélaga, (þrótta- og Ólympíusamband
íslands, Ungmennafélag (slands, Bandalag
íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla (slands
og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af
lyfjafyrirtækinu www.actavis.is.
íslenskar rannsóknir hafa sýnt að þeir ungl-
ingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag
með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að
hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niður-
stöður að mun ólíklegra sé að ungmenni, sem
stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðs-
starf, falli fyrirfíkniefnum. í þriðja lagi sýna rann-
sóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni
bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim
mun ólíklegra erað þau neyti síðarfíkniefna.
Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vís-
indamanna við Háskóla (slands og Háskólann í
Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættu-
hegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóð-
lega eftirtekt.
Vinnum saman
1907 - 2007
Iandgræösla i 100 ár
Græðum ísland
Londgræðslufræ
Ef þú þarft að græða mela og rofabörð eða rækta
fallega grasflöt eigum við fræið handa þér.
Ráðgjöf um val á fræi við mismunandi aðstæður.
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 851 Hellu
Sími 488-3000, símbréf 488-3010, land@land.is, www.land.is
28 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands