Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Side 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1956, Side 18
Framhald af bls. 147 og setti víra í skipið, en varð of seinn fyrir* vegna mótmæla frá mr. Eden, og tók Þór vír^ ana til sín aftur, vegna hættu á að þeir sand- köstuðust, en smækkandi straumur í hönd. Er nú skipinu haldið þurru. Dittað var að öll- um þéttingum, grafin fleiri akkeri niður í sand- inn, festavírar styrktir og reynt að rétta skip- ið af. Boltaðir voru sverir plankar fyrir lúkarsdyr, er búnar voru að brotna inn 3svar sinnum. Stöð- ugt stríð var við að halda þéttum lestaropum,* og var búið að nota feikn af segldúk við það, þar til húðir voru sendar frá Reykjavík, en þær héldu að mestu það sem eftir var. Unnið var einnig við að hreinsa til í vélarúminu, en það var allt útatað í tjöruolíu, eins og reyndar allfc skipið, og olli það miklum óþægindum við alla vinnu og þá tala ég ekki um hreinlætið. Sem sagt, það var farið að líta mikið betur út hjá okkur, menn voru vongóðir og í góðu skapi, en sú dýrð stóð ekki lengi. Laugardaginn 31. er komið var niður á strandstað, eldsnemma um morguninn var logn, en komið var brim. Skipið búið að slíta fram- vírinn er var nýlegur togvír, og aftur orðið flatt fyrir sjó, vélarúm og káeta orðið fullt af sjó; þar með var hreinlætið úr sögunni og skap- ið lækkaði um nokkrar gráður. Var nú dælfc megninu af sjónum úr báðum stöðum, framJ vírinn settur saman og 2 togvírar í viðbót settir framaf skipinu, talía var sett á einn þeirra og seinna voru settar talíur á báða hliðarvíra og var það til mikilla bóta. 1 Á páskadagsmorgun er komizt varð um borði (stöðugt varð að fara um borð og frá borði í björgunarstól) var hurð fyrir kappa á bátaþil- fari brotin inn og vélarúm, káeta og „keis“ allfc bókstaflega fullt upp í topp. Var nú höfð sama aðferð og við lúkarsdyrnar að boltaðir voru sverir plankar fyrir kappaopið. Vel væri vert að geta manna þeirra sérstaklega, sem unnu það verk, þó það sé ekki gert hér til að gera ekki upp á milli manna, en það voru 2 bændur ún Meðallandinu er stóðu bundnir á snarbröttu og Lengst af varð að fara á milli skips og lands í björgunar- stól. Ef þraukað var lengi um borð, varð stundum að hafa snör handtök við tildráttarlínuna, ef sá, sem í stólnum var, átti ekki að fá á sig skvettu. liálu bátaþilfarinu, ýmist þurrum fótum eða bókstaflega á kafi í sjó, ég veit ekki hvað lengi, nema hurðin var smíðuð og boltuð föst og reynd^ íst svo að segja alveg þétt. Er nú farið að huga að „keisnum“, er var farinn að láta ískyggilega mikið undan. Var tekið það ráð að leggja 3 planka innan á ,,keisinn“ lóðrétt og stífa þá af yfir í næsta járnþil á móti og sumstaðar þvert yfir „keisinn" og var það mikill styrkur. Dælt var út mest öllum sjónum. Nokkuð var farið að draga úr briminu um kvöldið. Lokið var við að taka í land radar, loftskeyta- stöð og önnur tæki, en að því hafði verið unnið að undanförnu jafnframt öðru, og var það all- mikið verk. Næsta dag var enn kominn mikill sjór í skipið, vélarúm og káeta milli hálfs og íulls. Þótti mér sýnt að allmikill leki væri í skipinu neðan þilja og var nú reynt að finna hann. Tókst það eftir mjög mikla fyrirhöfn. fannst mikill leki niðri í opnum tank undir ká- etugólfi, en þar var fullt af kjölfestujárni er var mjög seinlegt og erfitt að ná upp. Reyndist iekinn vera niður við kjalarhæl. Var hellt þar niður miklu af sterkri sementssteypu og járni og varð alveg þétt. Framhald. ■Júlíus Havsteen, sýslumaður, varð sjötugur hinn 13. júlí. Afmælisgrein um þennan mæta mann mun birtast í september- blaði Víkings. ff/ lands og sjávar. ^Hélcisalan'í HAFNARHÚSINU - SÍMI S4Q1 15D V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.